Fréttablaðið - 20.11.2009, Qupperneq 34
2 föstudagur 20. nóvember
núna
✽ fylgist vel með
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd
Mary Ellen Mark Hönnun Steinunn Sigurðar
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Ritstjórn
Anna M. Björnsson Auglýsingar Sigríður
Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík, sími 512 5000
R
okkabillíaðdáendur ættu að hafa
heyrt bassaleikarans Smutty Smiff
getið. Hann hefur getið sér góðan
orðstír á rokksenunni í London en
hann spilaði meðal annars með hinum goð-
sagnakenndu hljómsveitum The Clash og The
Stray Cats. Hann er í dag meðlimur hljóm-
sveitarinnar The Dark Angels sem nýtur mik-
illa vinsælda í Bretlandi og víðar. Smiff, sem
heitir Stephen Smith í raun og veru, er þó
fluttur búferlum til Íslands en hann kynntist
núverandi eiginkonu sinni, Katrínu Rósu Stef-
ánsdóttur, í London og eiga þau lítinn son.
„Það var annaðhvort að duga eða drepast.
Ég hugsaði með mér að ég hefði aldrei
áður komið til Íslands og því væri kjörið
að gefa þessu séns og búa hér í nokkur ár,“
útskýrir Smiff. „Mér líkar stórvel á landinu
og hef verið að spila með strákunum Krumma
og Daníel Ágústi í Esju.“ En Smiff fannst al-
deilis kominn tími til að kynna rokkabillí-sen-
una almennilega fyrir Íslendingum. „Það er
frábært úrval af tísku í Reykjavík en okkur
fannst vöntun á sérverslunum og nýjum og
skemmtilegum krókum og kimum. Ég hef
verið partur af rokkabillí-senunni í London til
fjölda ára og held að hún eigi vel heima hér í
Reykjavík. Hér er heilmikið af skemmtilegum
hlutum að gerast í tísku og tónlist.“ Úr þessu
varð verslunin Wildcat sem verður opnuð í
dag á Hverfisgötunni en þar hyggjast Smiff
og Katrín Rós bjóða upp á úrval af „vintage“
rokkabillí-fötum, vínyl-plötum og geisladisk-
um, gömlum plakötum og alls kyns fleiri
skemmtilegum hlutum sem tengjast fimmta
og sjötta áratugnum. Þar að auki hyggjast
þau bjóða upp á rokkabillí-klippingar og hár-
greiðslur á næstunni þar sem Smiff er mennt-
aður hárskeri. „Stelpur munu geta fengið hár-
greiðslur í anda Ditu Von Teese hjá okkur og
fengið glamúrskot frá fimmta áratugnum.“
- amb
Wildcat er á Hverfisgötu 39, 101 Reykjavík.
VERSLUNIN WILDCAT OPNUÐ Á HVERFISGÖTU
KEMUR MEÐ ROKKA-
BILLÍ TIL ÍSLANDS
Spilar með Krumma og Daníel Ágústi Smutty Smiff hefur spilað með hljómsveitunum Stray Cats og The Clash
og er nú í bresku sveitinni The Dark Angels. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKEMMTILEGT Nýjasta lína ítalska
tískuhússins MiuMiu vakti verðskuld-
aða athygli á dögunum en þar gaf að
líta perluskreytt siffon með kúreka-
áhrifum.
É
g held að það verði ótrúlega notaleg
stemning. Tónleikarnir verða í bóka-
salnum í Þjóðmenningarhúsinu. Hann er
svo ótrúlega fallegur, þar er gaman að setjast
niður og láta sig dreyma,“ segir Kristín Bergs-
dóttir um útgáfutónleika sína á sunnudaginn
kemur.
Með tónleikunum fagnar Kristín sinni fyrstu
plötu, sem heitir Mubla. Aðdáendur orðaleikja
sjá samstundis að það er Album stafað aftur
á bak. Það er engin tilviljun, því Kristín dáir
leiki að orðum. Henni þykir líka vænt um orð,
segir hún, og því ekki að undra að hún semur
ekki aðeins lögin á plötunni heldur textana
líka. „Í þessari plötu sameinast allt sem ég
hef verið að vinna í á árunum 2002 þangað til
í dag,“ segir Kristín, sem var ekki nema átján
ára þegar hún samdi sum lögin á plötunni.
Flest lögin eru í rólegri kantinum en áhrifa
gætir einnig úr hip hop og r&b.
Tónleikarnir hefjast á sunnudagskvöldið
klukkan átta. - hhs
Söngkonan Kristín Bergsdóttir fagnar sinni fyrstu plötu með útgáfutónleikum:
Lofar notalegri stemningu
Orðelskandi Kristín Bergsdóttir leggur mikið upp úr textagerð og semur
sjálf alla textana á sinni fyrstu plötu, Mublu.
LINDA LOESKOW HÖNNUÐUR
„Á föstudaginn fer ég í bústað fyrir norðan með góðum vinum. Á
laugardagskvöldið er Gus Gus svo að spila í Sjallanum og ég ætla
að vera þar að selja ýmislegt sem ég hannaði fyrir hljómsveitina. Svo
býst ég við að við verðum á heilsulindinni Abaco að tjilla á sunnudaginn.“
helgin
MÍN
Baby kemur aftur út
Nýbakaðar mæður landsins geta
tekið gleði sína við að heyra að
hin vinsæla plata
Ragnhildar Gísla-
dóttur, Baby,
kemur út á ný eftir
nokkurra ára bið.
Fyrir þá sem ekki
þekkja til er Baby
samin með ný-
fædd börn í huga
og er sungin á
óskiljanlegu en afar krúttlegu ung-
barnamáli sem minnir helst á jap-
önsku. Platan er mjög róandi fyrir
litlu krílin og er einnig góð til að
svæfa þreyttar mæður.
Hugleikur fellur í kramið
hjá Dönum
Konungur hæðninnar, Hugleikur
Dagsson, fékk afbragðs góða
dóma í dagblaðinu Politiken en bók
hans „Skulle det
være sjovt?“
kom út í
Danmörku
á dögun-
um. Gagnrýn-
andi lofar Hugleik
í hástert og kallar
hann eina skær-
ustu stjörnu Íslendinga um þess-
ar mundir. Bókina segir hann bráð-
fyndna og fulla af greindri samfé-
lagsádeilu auk þess sem danska
þýðingin á að hafa heppnast einkar
vel.
Jólagjöfin í ár?
Hárgel og greið-
ur merktar Gus
Gus eru meðal
þeirra munaðar-
vara sem brjál-
aðir aðdáend-
ur partísveitar-
innar Gus Gus
geta nú eignast.
Hárvörurnar eru
vísun í þá staðreynd að hljómsveit-
in hefur fengið „make-over“. Með-
limir hennar eru nú iðulega vatns-
greiddir og vel til fara og gefst nú
áheyrendum kostur á að feta í fót-
spor þeirra í snyrtimennskunni.
Innan skamms verður svo hægt að
kaupa hárdótið og fleiri vörur, eins
og á vefsíðunni www.gusgus.com.
þetta
HELST