Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 41
20. nóvember föstudagur 9
hlutunum þá fór þetta alltsaman
fyrst að rúlla.“ Gínurnar sem bera
fötin á sýningunni eru frá fræg-
asta gínufyrirtæki heims, Root-
stein. „Það byggir gínur sínar á
þekktum fyrirsætum og þetta eru
ekki venjulegar gínur heldur hafa
þær öðruvísi yfirbragð og fágun en
venjulegar gínur. Við fengum þær
lánaðar til landsins því það er ekki
alveg sama hvernig föt eru kynnt
á svona sýningu. Þær hafa ólíka
andlitsdrætti og eru í mismunandi
stellingum og eru í raun grunnur-
inn að sýningunni.
SAMVINNAN VIÐ MARY
ELLEN MARK
Það sem einnig er útgangspunkt-
ur sýningarinnar eru einstakar og
fágætar ljósmyndir bandaríska
ljósmyndarans Mary Ellen Mark.
Steinunn kynntist henni fyrst árið
2005 þegar sú fyrrnefnda var að
mynda andlega og líkamlega fötl-
uð börn í Öskjuhlíðarskóla. Sonur
Steinunnar, Alexander, sem nú er
orðinn fjórtán ára, er fjölfatlaður
og tókst mikil vinátta milli hans
og Mary-Ellen.
„Ljósmyndirnar eru teknar á
fyrstu Polaroid-vélina sem var
framleidd. Hún er mjög stór og
það þarf þrjá til að halda á henni.
Myndirnar koma svona beint úr
vélinni. Allar myndirnar hér á
veggjunum eru frumrit á polaroid-
pappír og það er ekki unnt að
eftirvinna þær á neinn hátt. Vinna
Mary Ellen Mark er eins fagmann-
leg og maður getur hugsað sér og
það er hreint ótrúlegt hversu full-
komnar myndirnar eru. Hún hefur
einstakan skilning á viðfangsefni
sínu og þar sem hún er ekki tísku-
ljósmyndari fá þær annan blæ en
maður venjulega sér.“ Mary Ellen
Mark hefur myndað fatalínur
Steinunnar allt frá árinu 2006 og
fanga þær allar ákveðinn gamal-
dags anda sem einnig hvílir yfir
fötum Steinunnar á vissan hátt.
„Þessar ljósmyndir eru mikil og
alveg einstök listaverk. Það hefur
verið mikil gæfa að kynnast Mary
Ellen.“ Steinunn þagnar og brosir.
„Sonur minn hefur gert meira
fallegt fyrir mig í lífinu heldur
en nokkur getur gert sér grein
fyrir. Ég á honum svo margt að
þakka.“
Sýningin opnar á Kjarvalsstöð-
um á morgun, laugardag og stend-
ur yfir til 31 janúar.
Mary Ellen Mark fæddist i Fíladelfíu árið 1940 og byrjaði
að mynda þegar hún var aðeins níu ára gömul. Hún út-
skrifaðist með BA-gráðu í listfræði og myndlist árið 1962
og síðar með mastersgráðu í ljósmyndun. Á sjöunda
áratugnum flutti hún til New York-borgar þar sem hún
hófst handa við að mynda allt frá mótmælum gegn Víet-
nam-stríðinu og jafnréttisbaráttu kvenna til minnihluta-
hópa eins og klæðskiptinga og hjólhýsafólks. Hún hefur
gefið út margar merkar ljósmyndabækur eins og Expos-
ure, American Odyssey og Twins og hefur einnig mynd-
að fyrir tímarit eins og Vanity Fair og Rolling Stone. Mary
Ellen Mark myndaði börn í Öskjuhlíðarskóla árið 2006
og þær myndir birtust í bók og samnefndri sýningu sem
nefnist Extraordinary Child.
Einn merkasti ljós-
myndari samtímans
Prjónað - í dagsins önn
Prjónað á börn
Skráðu þig í Hugmyndabanka heimilanna og fáðu
þessar frábæru bækur saman á aðeins 2.880 krónur.
Skráðu þig núna á www.edda.is
Fullt verð 3.990 kr.
Fullt verð 3.990 kr.