Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 45
„Ég get alveg sagt að platan
Parklife með Blur hafi breytt
lífi mínu. Systir mín fékk hana
þegar pabbi kom heim frá
Bretlandi, árið 1995, og ég
stalst til að hlusta á hana
nokkuð oft. Þá var ég ellefu ára
og var alveg geðsjúk-
ur Blur-aðdáandi. Ég
gekk með Blur-húfu
og allan pakkann,“
útskýrir Snorri.
„Blur var fyrsta
uppáhaldshljóm-
sveitin mín og er
það í rauninni enn þá í dag.
Það hefur tvímælalaust haft
áhrif á mína tónlist og ég
hlusta enn þá mikið á þá.
Versta birtingarmyndin af
þessari kreppu fyrir mig var
að ég komst ekki til Bretlands
í sumar til að sjá Blur spila í
Hyde Park, en það voru
fyrstu tónleikar þeirra síðan
2001. Maður veit ekki
hvort þeir ætla að gera
eitthvað meira, en ef þeir
gera eitthvað verð ég að
sjá það,“ segir Snorri.
BLUR
Snorri Helgason tónlistarmaður
ÁHRIFA-
valdurinn
B
andaríska snyrtivörufyrir-
tækið Estée Lauder hefur
sent frá sér fallega haust-
línu sem kallast „Sensous
Gold“. Þar er á ferðinni kvenleg og
skínandi litalína í brúnum og rós-
rauðum tónum sem með gylltu
yfirbragði. Púðrið veitir húðinni
sérstakan gylltan ljóma og gerir
hana frísklega með dúnmjúkri
áferð. Augu eru förðuð með brún-
um, ferskjulituðum og koparlit-
um tónum og varir eru kopar- og
plómulitaðar. Heildarútkoman er
einstaklega kvenleg og falleg.
- amb
Gyllt lína frá
Estée Lauder
P arið Mia Lisa Spoon og Rui Andersen Rodrigues Diogo
hafa unnið saman undanfarin fjög-
ur ár og settu á fót merkið Spon
Diogo árið 2008. Mia hefur unnið
sem klæðskeri í mörg ár en Rui rak
gallerí í Reykjavík á sínum tíma
með Önnu Maríu Helgadóttur sem
nefndist Gallerí 101. „Ég ber enn
sterkar tilfinningar til Íslands og á
góða vini þar,“ segir Rui. „Við Mia
unnum saman fyrir nokkur fyrir-
tæki í Kaupmannahöfn og gerðum
meðal annars skartgripi og töskur.
Okkur langaði að skapa merki fyrir
konur með áherslu á einfaldleika
og skarpa hönnun og munaðarfull
efni. Spoon Diogo-konan á að vera
sjálfsörugg borgardama.“ Fyrsta lína
Spoon Diogo leit dagsins ljós síðast-
liðið haust og var seld í versluninni
ParisTexas í Kaupmannahöfn. Vetr-
ar- og haustlínan fyrir 2009 inni-
heldur 36 „capsule“-stykki og kall-
ast Facets. „Við höldum okkar fyrstu
tískusýningu á tískuvikunni í Kaup-
mannahöfn hinn 5. ágúst og í kjöl-
farið förum við á tískuvikuna í París
og við erum ofsalega spennt fyrir
því.“ www.spondiogo.com -amb
Nýtt danskt hönnunarteymi:
SPOON DIOGO
Búa saman og vinna saman Mia Spoon og Rui Diogo hanna fyrir sjálfstæðar konur.
POPP er nýtt fylgirit Fréttablaðsins
og kemur út mánaðarlega.
Við viljum að þið sendið okkur
klikkuðustu símamyndirnar ykkar.
Bestu myndirnar birtast í næsta tölublaði og
höfundur bestu myndarinnar fær tvo kassa
af Doritos í verðlaun.
Sendið myndirnar í síma:
696 POPP (696 7677) eða á
popp@frettabladid.is
Við viljum tvífara fræga fólksins!
Er kærastan þín eins og Angelina Jolie eða er
vinur þinn eins og Jack Black? Sendu okkur mynd
til sönnunar og hún gæti birst í næsta tölublaði.