Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 64
44 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fáðu þér miða á www.hhi.is eða í síma 800 6611
á einn miða í desember
milljónir
75
Þeir sem eiga miða í Happdrætti Háskólans geta átt von
á 75 milljóna afmælisvinningi í síðasta útdrætti ársins.
Þú getur ennþá verið með! Tryggðu þér miða fyrir aðeins
1.000 kr. á mánuði. Við drögum næst 24. nóvember!
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
9
19
03
Leikarinn Kellan Lutz sagði
Ryan Seacrest frá því að upp-
haflega hefði hann verið beð-
inn um að taka að sér hlutverk
vampírunnar Edwards Cullen
í Twilight-
þríleiknum.
Honum þótti
hlutverkið ekki
nógu heillandi
og hafnaði
tilboðinu.
„Ég var
staddur í Afr-
íku við tökur
á sjónvarps-
þáttum þegar ég fékk handritið
sent til mín. Ég las það og þegar
ég mætti í prufurnar sagðist
ég ekki vilja leika Edward.
Hann er of flókinn karakter
og alltof þunglyndur.“ Eftir að
Lutz afþakkaði hlutverkið var
honum boðið að leika vampír-
una Emmett Cullen sem honum
þótti hæfa sér betur. Þegar
Lutz var spurður hvort hann
sæi eftir ákvörðun sinni nú
þegar Robert Pattinson hefur
hlotið heimsfrægð segir hann
svo ekki vera. „Frægð er frægð
og Robert tekst á við hana eins
og meistari. Allt sem fylgir
þessu er ótrúlegt og ég held
að það sé ekki hægt að undir-
búa manneskju fyrir það. Ég er
ánægður með hlutverk mitt sem
Emmett og ég hef ekki áhuga á
heimsfrægð.“
Sagði nei
við Edward
KELLAN LUTZ
Hljómsveitin Pascal Pinon var
stofnuð af fjórum fjórtán ára stelp-
um í desember í fyrra. Þær eru ekk-
ert að tvínóna við hlutina og gefa á
sunnudaginn út fyrstu plötuna sína.
Hún inniheldur ellefu frumsamin
lög.
„Við erum allar í Hagaskóla,“
segir Kristín Ylfa, þar sem hún
er einmitt stödd í stærðfræðitíma.
„Ætli megi ekki bara kalla okkur
Vesturbæjar eftir-krútt hljómsveit.
Við tókum plötuna upp sjálfar. Flest
lögin eru á íslensku og flest eftir
Jófríði. Hún hlustar voða mikið
á Björk en ég veit ekki hvort það
hefur einhver áhrif á lagasmíð-
arnar hennar. Hún samdi allt efnið
á plötunni nema eitt lag sem við
gerðum allar saman. Svo er einn
texti eftir Davíð Stefánsson.“
Hljómsveitin hefur spilað á fjöl-
mörgum tónleikum, meðal annars á
Innipúkanum, Réttum og Airwaves.
Þær hafa áður gefið út smáskífu og
áttu eitt lag á Trúbatrix safndisk-
inum. „Þetta hefur bara gengið
mjög vel,“ segir Kristín. „Okkur er
tekið mjög vel í bransanum og ekk-
ert vesen að komast inn á staði að
spila.“
Plata Pascal Pinon kemur eins
og áður segir út á sunnudaginn
22. nóvember. Samdægurs heldur
hljómsveitin útgáfutónleika í Nor-
ræna húsinu klukkan 19. Upphitun
verður í höndum hljómsveitarinnar
Nolo. Aðgangseyrir er 500 kr. - drg
Vesturbæjar eftir-krútt
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Á SUNNUDAGINN Pascal Pinon: Ásthildur, Halla, Jófríður og
Kristín Ylfa.
> FLUTT YFIR HAFIÐ
Dansarinn Dita Von Teese hefur
ákveðið að flytja til Parísar og
hefur fest kaup á fallegri íbúð
þar í borg ásamt unnusta sínum.
Ástæðuna fyrir flutningunum
segir hún vera þá að hún þoli
ekki lengur lágmenninguna sem
ríkir í heimalandinu.
„Maður hefur auðvitað
saknað vina sinna og fjöl-
skyldu hræðilega mikið og
ég get ekki beðið eftir að
komast á hestbak hjá pabba
í sveitinni,“ segir hönnuður-
inn Harpa Einarsdóttir.
Harpa hefur verið búsett
í Atlanta undanfarið ár
þar sem hún starfar sem
hönnuður fyrir tölvuleikja-
fyrirtækið CCP. Hún er á
leið heim til Íslands um jólin
þar sem önnur og ný verk-
efni bíða hennar.
Harpa starfaði sem yfir-
hönnuður í tísku- og per-
sónusköpun við hinn nýja
tölvuleik World of Darkness
sem CCP hannar og segir
hún vinnuna hafa verið
mjög krefjandi. „Atlanta er
í Suðurríkjunum og kannski
ekki skemmtilegasti stað-
urinn til að vera á ef maður
starfar innan tískubransans.
Hér er þó mikil tónlistar- og
myndlistarmenning sem ég
náði ekki að njóta eins mikið
og ég hefði viljað sökum
anna,“ segir Harpa og bætir
við að það hafi gert henni
gott að komast aðeins frá
Íslandi. „Það víkkar sjón-
deildarhringinn að komast
svona í burtu og fyrir vikið
kann maður betur að meta
það sem Ísland hefur upp á
að bjóða.“
Harpa segir eina af
ástæðunum fyrir heimflutn-
ingunum vera þá að sonur
hennar átti erfitt með að
aðlagast breyttum aðstæð-
um. „Það var erfitt að vinna
fulla vinnu og vera einstæð
móðir án fjölskyldunetsins
sem maður hafði heima. Svo
var heldur ekki eins ódýrt
að búa í Ameríku og maður
hélt og mér þótti erfiðara að
ná endum saman en heima.“
Harpa hefur mörg járn í
eldinum og hefur í nógu að
snúast við heimkomuna og
hefur meðal annars verið
beðin um að hanna tvær
fatalínur auk þess sem hún
mun sinna myndlistinni
áfram. -sm
Hlakkar til að fara á hestbak hjá pabba
FLYTUR HEIM Harpa Einarsdóttir
hefur dvalið í Atlanta síðastliðið ár
og starfaði þar sem hönnuður hjá
CCP. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hljómsveitin Feldberg er
skipuð þeim Einari „Eberg“
Tönsberg og Rósu Birgittu
Ísfeld. Hljómsveitin gaf
nýlega út plötuna Don‘t Be
a Stranger, sem er troðfull
af smekklegu eðalpoppi.
Þau kynntu plötuna í
Þjóðleikhúskjallaranum á
miðvikudagskvöldið ásamt
hljómsveit og var múgur
og margmenni mætt til að
gæða sér á brakandi fersku
poppinu.
Feldberg fór á kostum í Kjallaranum
HRESS MAUSARI Daníel „Danni í Maus“ Þorsteinsson er í hljómsveitinni Sometime
með Rósu. Hann var mættur til að sjá hana með Feldberg. Spúsa hans, Kolbrún Ýr
Gunnarsdóttir, mætti líka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJÖR HJÁ STELPUNUM Katrín Sverris-
dóttir, Brynhildur Axelsdóttir og Guðrún
Helga Gunnarsdóttir fengu sér einn
kaldan í Kjallaranum.
HÓPFERÐ Guðrún Einarsdóttir, Þorkell
Guðbrandsson, Jóakim Reynisson, Hild-
ur Jóhannesdóttir og Sverrir Hauksson
biðu eftir að Feldberg kæmi á svið.
GÓÐAR Lóa Einarsdóttir og Rakel Rún-
arsdóttir voru slakar á kantinum.
SÆT SAMAN Andri Hermannsson og
Sóley Birna létu sig ekki vanta.
MEÐ BLÖÐRU Í BANDI Sigtryggur Ari
Jóhannsson spilar í Feldberg og var í
hátíðarskapi.