Vikan - 11.12.1952, Blaðsíða 23
**♦* FÉLAGSVIST ♦*♦*
ÞETTA var eng-in stórkostleg
félagsvist, enda bara haldin til
þess að vinna upp tapið af dans-
leiknum, sem var haldinn til þess
að vinna upp tapið af afmælisliá-
tíðinni í júií. I>að voru aðeins átta
borð, og þegar ein umferð var eft-
ir, virtust góðar likur fyrir því,
að ég fengi fyrstu verðlaun: rak-
vél og sex rakblöð. Það var ekki
lítið spennandi, því að rakvélin
min hefur ekki verið upp á marga
fiskana síðan 1942, þegar Alli fékk
hana lánaða í útileguna.
Samspilara minn í síðasta spil-
inu hafði ég aldrei séð áður; það
var búlduleit kona með langa f jöð-
ur upp úr hattinum.
„Það bezta við fámennar félags-
vistir,“ sagði hún, „er það hvað
allir taka því með miklu jafnaðar-
geði, þó maður spili svolítið vit-
laust. Á stóru félagsvistunum má
heita að samspilarinn drepi mann,
ef manni til dæmis verður það á
að trompa ásinn hans eða eitthvað
þessháttar."
„Við reynum að taka þetta ekki
of hátíðlega hérna,“ sagði ég, „en
auðvitað ...
„Og ef maður svíkur lit,“ hélt
konan áfram. „Ef maður svíkur lit
í stóru félagsvistunum, þá er
keppnisstjórinn strax kominn og
farinn að spyrja um nafnið, og
áður en maður veit af, er hann
búinn að banna manni að koma
oftar inn fyrir dyr. Hvað er
tromp?“
„Spaði,“ sagði ég.
Hún spilaði út spaðatvisti og
næsti drap hann með þristinum,
og ég lét ásinn og átti slaginn.
Eg hélt hún hefði spilað tvistin-
um af því að hún ætti kónginn,
svo ég lét út annan lágspaða, og
andstæðingur minn drap með
kóngnum, og þá skrikti skríti-
lega í samspilara mínum og hún
sagði, að þetta væri meira grínið,
hún hefði víst tekið skakkt eftir
kóngunum, lialdið hún hefði spaða-
kóng, en liefði bara tígulkóng. En
það gerði raunar ekltert til, af
því að hún væri þá alveg spaða-
laus og mundi þess vegna trompa
og taka slaginn.
„Það getið þér ekki,“ sagði ég.
„Spaði er nefnilega tromp.“
Hún sagðist ekki muna betur en
ég hefði sagt sér að lijörtu væru
tromp og að ég mætti tii að passa
mig á svona löguðu.
Kvenmaðurinn, sem spilaði á
móti okkur, sagði, að hún hefði
hreinasta yndi af svona fjörug-
um samræðum, en hún yrði að
ná í strætisvagn klukkan fimm
mínútur yfir ellefu, svo að ef
okkur væri sama ....
Hún hafði látiö út tígul, og sam-
spilari minn trompaði hann með
spaðagosanum.
„Þér svíkið lit,“ sagði maður-
inn, sem spilaði á móti okkur, og
vaknaði úr dauðadáinu, sem karl-
menn falla undantekningarlaust í
þegar sígur á seinni hluta félags-
vista.
Það skríkti aftur í samspilara
mínum.
„Það er alveg dagsatt hjá yð-
ur,“ sagði hún, „ég er með tígul
hérna, ég týndi honum innan um
hjörtun. Meiri vitleysan annars að
vera að hafa tvo rauða liti og
tvo svarta liti. Það væri miklu
auðveldara að átta sig á þessu,
ef þeir hefðu bláa og græna liti.
Ég skrifaði einu sinni Víkverja Um
þetta, en hann birti bréfið ekki.“
Hún tók upp spaðann og lét tíg-
ul í staðinn.
„Þér gáfuð hjarta i síðasta
spaða-útspil,“ sagði kvenmaður-
inn, sem spilaði á móti okkur.
„Það er of seint að fást um
það núna,“ sagði samspilari minn.
„Þér hefðuð átt að segja það þá.“
Kvenmaðurinn, sem spilaði á
móti okkur, kallaði á keppnis-
stjórann, sem sagði, að það kost-
aði okkur sex slagi að svíkja lit
tvisvar. Við höfðum fengið sjö
slagi, svo að nú var einn eftir,
og ég var tveimur stigum lægri
en efsti maður og missti af fyrstu
verðlaununum. Þau vann svart-
brýndur náungi, sem ég kannaðist
ekkert við.
Samspilari minn brosti glaðlega
framao í mig.
„Þetta er maðurinn minn,“
sagði hún. „Það er alveg ótrú-
legt, hvað hann er heppinn í fé-
lagsvist, þegar þátttalrendurnir
eru ekki allt of margir.“
Þurrkaðir ávextir
nýkomnir beint frá
Californiu
BLANDAÐIR AVEXTIR
SVESKJUR
tJRVALS TEGUND
ÝMSAR STÆRÐIR
ÞURRKUÐ EPLI
EPLI
PERUR
KURENUR
RÚSÍNUR
I PÖKKUM OG LAUSU
í PÖKKUM OG LAUSU
Frá SPÁI eru nýkomnar APRIKÓSUR
Eggert Kristjánsson & Coh.f.
PL UTOSILFUR:
Borðbúnaður Pappírshnífar
Kertastjakar Bókamerki
Blómavasar Armbönd
Konfektskálar Hálsmen
Vindlingakassar Manchetthnappar
Skartgripaskrín Eymalokkar
Glasabakka Erakkaskildir.
Vínstaup
Cocktailhristara
TRÚLDFUNARHRINGIR.
Munið PlÚtÓSÍlfur
PLUTO H.F.
Sími 7017 — Skipholfc 25 — Sími 7017.
23