Vikan


Vikan - 15.12.1955, Síða 13

Vikan - 15.12.1955, Síða 13
stundin, sem hann þráði, renna upp. Drottningln var búin að ákveða að fyrirgefa honum og' sættast við hann heilum sáttum. Hún hafði allra náðusamlegast fallist á að veita honum leynilega áheyrn. Þetta var vandlega undirbúið. Það var komið rökkur þetta sumarkvöld í Versalagarðinum, þegar de Rohan kardináli kom til stefnumótsins. XJt úr rökkrinu kom ung og tíguleg kona. Jeanne og maður hennar voru í fylgd með henni. Hún var klædd í kjól, sem öll hirðin kannaðist við af frægu málverki af drottningu. Kardinálinn kraup í auðmjúkri lotningu og kyssti kjólfald hennar. Konan tók rós úr barmi sér, fékk honum og hvíslaði þýðri röddu: „Lítið á hana sem tákn um fyrirgefningu mína.“ En á þessu andartaki kom einkennisklæddur þjónn hlaupandi og hrópaði: „Flýtið yður brott, yðar hátign. D’Artois greifynja er að koma!“ Stefnumótinu var lokið, en sá var samt árangurinn af þessum loddaraleik, að kardinálinn varð upp frá þeirri stundu eins og deig í höndunum á ’sanne. Henni hafði ekki brugðist bogalistin frekar en fyrri daginn. Hún hafði fengið í lið við sig unga stúlku, sem starfaði í hattaverzlun og var lík Marie Antoinette. Einkennisklæddi þjónninn var enginn annar en Vilette skjala- falsari. Og inn í þennan svikavef byrjaði Jeanne nú af mikilli fimi að vefa' hálsmenið fagTa. Hún fór sér undurhægt, en lét kardinálann smásaman á sér skilja, að drottningin æskti þess að kaupa hálsmenið svo lítið bæri á — og með hans hjálp. Gat hún auðsýnt honum meiri heiður og trúnað ? Drottningin fól honum að kaupa hálsmenið fyrir hennar hönd og borga það með af- borgunum, en mundi síðan með leynd endurgreiða andvirðið. De Rohan kardináli greip tækifærið fegins hendi. Honum var það fagnaðarefni, tjáði hann Jeanne, að geta gert hennar hátign ofurlítinn greiða. Hið fræga hálsmen var keypt og afhent sendiboða, sem látið var heita að ætti að skunda með það beint á fund drottningar. Jeanne gat ekki neitað sér um að bera það eina kvöldstund — í íæstu herbergi heima hjá sér. Daginn eftir var það tekið í sundur og hinir dýrmætu steinar byrjuðu að birtast á gimsteinamörkuðum Parísar og Lundúna. Jeanne, tötralingurinn úr fátækrahverfi Parísar, var orðin forrík á einni nóttu. Treysti hún þvi, að de Rohan kardináli mundi kjósa að þegja, þegar hann kæmist að sannleikanum, frekar en að ljóstra upp um, hvilíkur auli hann hafði verið? Eða hugði hún á flótta, þegar þar að kæmi? Það er ekki gott að segja. En nú syrtir skyndilega yfir lífi þessarar fögru ævintýrakonu. Hún fréttir það kvöld nokkurt, að de Rohan hafi ver- ið handtekinn. Hann hafði neitað að halda áfram með greiðslur fyrir háls- menið, þegar hann heyrði ekkert frá drottningunni. Skartgripasalinn hafði þá snúið sér beint til drottningar um greiðslu, einungis til þess að gera þá hræðilegu uppgötvun, að hún vissi alls ekkert um málið. Kardinálinn var naumast búinn að átta sig á, hve rækilega hann hafði verið gabbaðui', þegar hann var leiddur inn um fangelsishliðið. Og Jeanne? Jú, sennilegast hefur hún ætlað að flýja. En hún var of sein. Þeir komu að henni hálfklæddri i svefnherberginu hennar. Á rúminu lá fatnaður af daglaunamanni. Ætlaði hún að laumast út í borg- ina þannig dulbúin? Þegar lögreglufulltrúinn lagði spurninguna fyrir hana, anzaði hún ekki. Hún bað um að fá að fara i kjól. Svo var hún leidd út úr húsinu með bundnar hendur. Málið vakti feiknmikla athygli. Drottningin var æf. Nafn hennar hafði veiúð dregið niður í svaðið; þetta voru drottinsvik, og Jeanne, höfuð- paurinn, gat ekki vænst neinnar miskunnar. Hún reyndi engu að síður að klóra í bakkann og lét ekki bugast þrátt fyrir strangasta varðhald. Það var ekki fyrr en dómurinn var lesinn yfir henni, að henni sást bregða. Hún var dæmd til að brennimerkjast og húðstrýkjast og til ævilangrar fangelsisvistar. Þannig lýkur ferli hennar i París í jafnvel meiri eymd og vesaldómi en þegar hún dróst klæðlitil og svöng um stræti borgarinnar með betli- skálina sína. Hún er ennþá ung. En hver tekur nú eftir fegurð hennar, eins og fyrir henni er komið ? Andlit hennar er náhvítt, þegar hún er leidd út úr réttarsalnum. Svo er það einn morgun, að hún er tekin úr dýflissunni og færð út á torg. Það er rigning. Hún situr grafkyrr í vagninum, sem ekur henni til torgsins, en þegar hún sér hýðingarstaurinn á pallinum og böðlarnir seil- ast til hennar, missir hún alla stjórn á sjálfri sér. Hún emjar og brýst um í böndunum og hrópar á hjálp á meðan verið er að binda hana við staurinn. Hún hrópar enn á hjálp þegar yfirböðullinn tætir kjólinn af baki hennar, en neyðarópin kafna í háðglósum fólksins. Hún er í öngviti, þegar þessu líkur. Hún rankar ekki við sér fyrr en hún er aftur komin í dýflissuna. Hún var hálf nakin og á baki hennar eru djúpar rauðar rákir -eftii' svipuhöggin. Á öðru herðablaðinu er stórt V. Brennimarkið V þýðir voleuse, eða þjófur. Þannig lýkur sögunni um Jeanne og hálsmenið, og þarna ætti maður ef til vill að skilja við hana. Og þó? Við skulum fylgja henni á leiðar- enda. Hún er tekin upp úr dýflissunni aftur og færð i fangelsið, sem á að geyma hana til æviloka. Þai' situr hún i rammgerðum steinklefa í níu mánuði, klædd strigakufli og með tréskó á fótum og i fótajárnum. Og svo, einn góðan veðurdag — er fuglinn floginn! Kannski sá drottningin aumur á henni. Það hjálpaði henni að minnsta kosti einhver að flýja. Hún komst til London, þar sem maðurinn hennar, sem þangað hafði flúið, tók á móti henni, og þar sem hún græddi drjúgan skilding á að géfa út ævisögu sína. En hún var enn sami auðnuleysinginn. Hún komst i skuldir. Og dag nokkurn, þegar hún hugðist forða sér frá álcitnum lánardrottni með því að klifra út um glugga, missti hún hand- festuna og hrapaði til jarðar. Þar lauk sögu hennar. — ROSSANA MANN. Bezti maturinn tæst hjá okkur Matarbúðir SLÁ TURFÉLAGS SUÐURLANDS GLEÐILEG JÚL! G. Kristjánsson & Co. h.f. skipamiðlari 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.