Vikan


Vikan - 22.12.1959, Blaðsíða 8

Vikan - 22.12.1959, Blaðsíða 8
Þrettán ára að aldri t'ór Kenneth á sjóinn sem létta- drengur á vörufiutningaskipi. Síðan eru nú 28 ár, og nú er Kenneth Wood forstjóri fyrirtækis, sem vélvæðir eldhúsin fyrir húsmæður um heim allan. — KENWOOD — en við það fyrirtæki og framleiðslu þess kannast fjö?di húsmæðra hér á landi. SJÓMAÐURINN SEM VARÐ STÓRIÐJUHÖLDUR Fyrirtækið hóf starfsemi sina i lágum skúr við hliðina á fisksölu að Goldsworth-stræti í Woking. Það var árið 1948. Nú liefur það reist nýtizku verksmiðju, þar sem tólf hundruð manna vinnur stöðugt að framleiðslunni. Fyrir níu árum voru það brauðristar, sem framleiddar voru á vegum þess; nú eru full- smíðaðar þar hinar fjölvirkustu hrærivélar, svo þúsundum skiptir á mánuði hverjum, og feiknin öll af hitaþyrlum, rafknúnum hand- hrærivéium þar að auki uppþvottavélum og sorpeyðingartækjum. Þessi mikli viðgangur fyrirtækisins er að sínu leyti eins atliyglisverður og stofnandi þess og forstjóri. Kenneth Wood, sem nú hefur einn um fertugt. Hann stóð uppi föðurlaus þegar hann var aðeins þrettán ára að aldri, og þar sem enginn ættingja hans eða aðstándenda var líklegur til að geta styrkt hann til mennta, hleypti hann heimdraganum og fór á sjóinn. Hann réðist um horð i vöruflutningaskip: svo átti að heita að það væri fyrsta skrefið á námsbraut hans sem tilvonandi stýrimanns og skipstjóra í verzlunarflotanum, en í raun réttri var nám hans i því fólgið, að hann vann allt það, sem enginn annar vildi vinna. Þegar Kenneth Wood kom í land aftur eftir fjögurra ára svalk á sjónum, hafði hann öðlast Iífsreynslu og lífsþekkingu þrítugs manns; og hann hafði komizt að raun um, að það dugar engin iinka, ef maður vill komast áfram í heiminum. Hnn er maður gjörvulegur og vel vaxinn, svipurinn festulegur og framkoman hiklaus og ákveðin. Sé betur að gætt kemur þó í ljós að góðvild og viðkvæmni niuni leynast undir skelinni. En þótt hann beri umhyggju fyrir öðrtim, vill hann helzt láta álíta sig hörkutól, sem ekki taki tillit til neins. Séu starfsmennirnir spurðir hvernig þeim falli að vinna hjá honum, svara þeir yfirleitt undantekningarlaust: „Hann tekur hvorki gilda neitun né mótbárur. Engir örðugleikar fá stöðv- að hann, ef hann hefur einhverja von um að fá vilja sinum framgengt". Einn af fram- kvæmdastjórum hans lætur svo um mælt, að liann sé kröfuharður húsbóndi, sem ekki geri sig ánægðan með neitt minna en að maður leggi sig allan frain. Einn af umboðsmönnum fyrirtækisins, hú- settur í Manchester, kveður Ken Wood oft og tíðum setja á tali við sig fram undir morgun, þegar hann sé þar á ferðinni. „Síðast þegar hann var staddur hérna, kallaði konan niður til mín og spurði hvort ég væri nokkuð að hugsa um að ganga til rekkju — eða hvort hún ætti að koma niður og matreiða morgunverð“. Skömmu eftir að Kenneth Wood kvaddi sjó- inn, hóf hann nám í vélfræði; vann á daginn en sótti skólann fjögur kvöld í viku. Þegar síðari heimsstyrjöldin hófst, hafði honum tekist að koma sér upp vinnustofu og eigin atvinnu- rekstri, en stofnféð nam þó ekki nema þrjátiu sterlingspundum! En styrjöldin krafðist fram- lags hans — og hann lét kunningja sínum, 'cm átti i einhverjum erfiðleikum, eftir at- vinnureksturinn án þess að minnast á nokkra þóknun fyrir. Þegar styrjöldinni lauk, hófst Kenneth handa fyrir alvöru. Vélvæðingin — það var framtið- in; slíkt gaf auga leið, og fyrst hún skyldi upp tekin á öllum vinnustöðvum — þvi þá ekki að vélvæða eldhúsin? Næg atvinna fyrir alla hlaut að hafa það i för með sér að konurn- ar yrðu að annast heimilisstörfin, einar og að- stoðarlaust. Auk þess vildi nútímakonan gjarna mega frjálst um höfuð strjúka svona endrum og eins. Kenneth Wood Ieizt að sama skapi betur á jiessa hugmynd og hann braut heilann lengur um hana. Hann þóttist komast að þeirri niður- stöðu, að mannlegu eðli yrði ekki skipt þannig \ tvennt, að nokkur karl eða kona léti sér lynda gamaldags tæki og tækni heima fyrir, eftir að hafa kynnst nýtízku tækniþróun í starfi sínu utan heimilis. Vélvæðingin í eldhúsinu var beinlinis einn þátturinn i tæknilegu uppeldi nútímakynslóðar. Ekki hafði Kenneth Wood yfir. mildu stofnfé að ráða fremur en fyrri daginn. En ekki lét hann það aftra sér; með átta hundruð sterl- ingspund í stofnsjóði kom liann sér upp vísi að verksmiðju í skúr í Woking, og þar sem hann hafði ekki efni á að kaupa nema einföldustu og ódýrustu tæki til framleiðslunnar, varð hann að sníða henni stakk eftir þvi, og fyrst i stað var smíði hrauðrista hið eina, sem þeir gátu fengizt við þarna i skúrnum. „Um þetta leyti var gífurleg vöruþurrð. Ég 8 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.