Vikan - 22.12.1959, Side 30
Heims um ból . . .
Framhald af bls. 5.
erkibiskupsins. Hann var löngum í herferð-
um og stóð í orustum, en Anna kona hans
varð að sjá fyrir sér sjálf og syni þeirra.
Hún hafði ofan af fyrir sér með þvi að prjóna,
og var það rýr atvinna. Þegar hún dó, var
Jósef barn að aldri og varð þá munaðar-
laus. En honum varð það til happs, að að-
stoðarpresturinn við dómkirkjuna, hinn há-
virðulegi séra Hiernle, veitti því athygli, hve
greindur hann var og vel gefinn. Hann tók að
sér munaðarleysingjann og kom honum í
Sankti Pétursskólann í Benediktsklaustrinu í
Salzburg, en það var viðfrægur skóli.
Þar stundaði Jósef nám sitt af siikri alúð
og dugnaði, að hann hlaut sérstakt lof kenn-
ara sinna. Það var hans mesta yndi að syngja
í söngflokki kiaustursins. Söngur var hans
líf og yndi. Og munkarnir í klaustrinu áttu
fullt í fangi með að svara öllum spurning-
um hans um þá hluti. Hann dreymdi um að
verða víðfrægur söngvari og fljúga á vængj-
um sönglistarinnar út í viða veröld, ef til vill
aila leið til Vínarborgar, þar sem keisarinn
hafði aðsetur sitt. En þegar hann skýrði
fóstra sínum frá þessum draumórum sinum,
fékk hann hara daufar undirtektir hjá þeim
góða guðsmanni. Jósef átti að verða prestur.
Um það dugðu engar vífilengjur. Og til þess
að forða honum frá að víkja af þeirri beinu
braut, kom séra Hiernle því til leiðar, að
hann var settur til prestþjónustu í fjalla-
þorpinu iitla, jafnskjótt og hann hafði lokið
námi og hlotið vigslu.
Þegar hann kom í þorpið, hitti hann þegar
annan aðkomumann nýkominn. Það var
kennarinn, Franz Xaver Gruber. Hann var
fimm árum eldri en séra Mohr. Hann var
mjög ánægður með hlutskipti sitt, að hafa
hlotið kennarastöðuna í þorpinu. Gruber hafði
ekki átt þvi láni að fagna að eiga mikils-
megandi fósturföður eins og presturinn.
Foreidrar hans voru vefarar i litlu þorpi,
sárfátæk. Franz var hneigður til söngs þegar
á barnsaldri eins og Jósef Mohr. En faðir hans,
sem var liarður karl í horn að taka, bannaði
honum með öllu að eyða tímanum í þann
hégóma. Drengurinn varð að sitja í vefstóln-
um frá morgni til kvölds, og það var ekki
fyrr en seint á kvöldin, þegar faðir hans
var sofnaður, að hann gat laumazt að heim-
an i kennslustundir sínar hjá organistanum,
Andrési Peterlechner. Hljóðfæri hafði hann
ekkert tii þess að æfa sig á. Þess i stað æfði
hann fingur sína á spýtukubbum, sem hann
festi á nagla í veggnum uppi i þakherberg-
inu, þar sem hann svaf.
Nú viidi svo til einn sunnudag, að Peter-
lechner var veikur. Hann gat þvi ekki komið
til kirkju. En söfnuðinum brá i brún, þegar
hann heyrði samt áður, að leikið var á
orgeiið. Hljómar þess fylltu kirkjuna, miklir
og fagrir. Þegar það joagnaði i messulok, varð
dauðaþögn í kirkjunni. Fólk hélt niðri i sér
andanum. Aldrei hafði það heyrt svona vel
leikið á orgelið áður. Og þegar það gægð-
ist inn i söngstúkuna, sá það, að það var
enginn annar en Franz litli Gruber, sem
hafði setið við hljóðfærið. Hann hafði feng-
ið leyfi kennara síns til þess að sýna, hvað
hann gæti, og honum hafði tekizt vel.
Faðir hans hafði verið í kirkju, og þetta
varð til þess, að hann skipti alveg um skoð-
un á sönglistinni. Hann hafði sparað sam-
an dálítið fé, og fyrir það keypti hann nú
spinettu handa syni sinum. Það er gamalt
liljóðfæri, líkt og lítil siagharpa, með falleg-
um, blíðlegum tónum. Þetta hljóðfæri hafði
Franz með sér, þegar hann komst i fram-
haldsskóla í borginni og seinna í kennara-
skóia. En áður en hann lauk námi, var það
orðið ónýtt. Hann var tuttugu og níu ára
gamall, þegar hann fékk kennarastöðuna í
þorpinu. Þá var hann hljóðfærislaus. En
brátt lærði hann að leika á gitar hjá vini
sinum. nrestinum, og var það skólahörnun-
um óuianrMn ánæffia. Oft stóðn þau á götunni
biá r>rpstsscti-inu os hlustuðu og sögðu: „Heyr-
ið hið. nú svngja þeir saman, presturinn
og kennarinn“.
Þeir höfðu þekkzt í tvö ár á jólunnm,
sem áðnr er sagt frá, þesar séra Jósef Mohr
orti sálminn. Hann hafði næstum gleymt
frægðardraumum bernskuáranna, og ekki kom
honum til husar, að þessi sálmur kæmist
nokkiirn tima út fyrir dalinn og yrði honum
tii lofs og frægðar. Hann hafði ekki gert ann-
að en færa dýrð jólanna, sem honum hafði
birzt, í búning orðanna. Og hann langaði að
gefa vini sinum sálminn i jólagjöf. Snemma
um morguninn fór liann' með hann til Gru-
bers.
Kennarinn las liann undir eins, ekki einu
sinni, heldur tvisvar. Hann komst mjög við
og sagði: „Þetta er jólasálmurinn. sem okk-
ur hefur vantað. Guði sé iof“.
„En meðan iagið vantar við hann er hann
ekki nema hálfur“, sagði séra Mohr.
Franz Gruber lét til ieiðast að semja lag
við sálminn. Orgeiið í kirkjunni var bilað,
og þurfti hann því ekki að vera við messu.
Hann tók þvi strax til við að semja lagið.
En presturinn vann sín skylduverk. Eins og
siður var á jólunum, var mynd úr vaxi í
kirkjunni af jötunni og Jesúbarninu og Mariu
mey og Jósef, sem stóðu hjá. Séra Mohr
fannst, að aldrei hefði honum sýnzt myndin
jafniifandi og nú. Þó að ekki væri leikið á
orgelið, þóttist hann heyra klukknahljóm og
söng, meðan á messunni stóð, eins og himnesk-
ir hijómar ómuðu í kirkjunni.
Skömmu eftir messu, og fyrr en ráðgert
var, kom Franz Gruber að finna hann. Hann
var með nótnablaðið í hendinni og bros-
andi út að eyrum. „Hérna kemur það“, sagði
hann. „Það var auðvelt, orðin þin sungu
sig sjálf. Við skulum ieika það“.
„Hvernig getum við það?“ sagði prestur-
inn. „Við höfum ekkert orgel“.
Gruber hló. Hann liafði munað eftir þvi
og sett út lnffið fyrir jiað, sem fyrir hendi
var, tvær raddir og gitar.
„Góður guð heyrir til okkar“, sagði hann,
,,þó að við höfum ekkert orgeI“.
Þetta var á jóladaginn 1818. .Börnin i þorn-
inu stóðu enn sem oftar á götunni hjá
nrestssetrinu oíj kinkuðu kolli hvert til annars.
Þau vissu ekki, að hér var merkilegur
atburður að gerast. Sízt gat þeim til hugar
komið. að bér var i fvrsta sinn sungið iag,
sem átti eftir að verða kunnuet i ölium iönd-
nm. þar sem iól pru haidin. Þau heyrðu aðeins,
eíns og svo nft áður, að presturinn og kenn-
arinn voru að svngja og léku undir á gitar.
Heirrw nm hól
helq eru jól.
Sif/nucS mær
son qufls ól,
frelsun mnnnunnci, frelsisins lind,
frumglæfli Ijóssins. En gjörvöll mannkind
meinvill i mgrkrunum lá.
JÓLAGJAFIR
Til jólagjafa
Kven- og karlmannsúr, stofu-
klukkur, eldhúsklukkur, vekjara-
klukkur, skákklukkur.
Nivada
Tissot
Roamer
Alpina
Terval
«sa ííss
Kienzle
Junghans
Mauthe
Smiths
Úrval af gjafavörum
hentugum til jólagjafa
URVIDGERDIR
fljótt og vel af hendi leystar
Nivada
\
Jfívada
VÖNDUÐ
ÓDtB ®
i. -m. -«-7)
Póstsendum um allt land
Mflönús E. Bnldvinsson
úra og skartgripaverzlun
Laugavegi 12 - Sími 228 04
80
VIKAN