Vikan


Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 14

Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 14
Vetrartízkan er fyrst og fremst miSuS við dömuna og segir ungpíutízkunni, sem liefur verið allsráðandi undan- farið, stríð á hendur. Austurlenzkra álirifa gætir mjög, bæði í kjólum og höttum. Pilsin eru stutt, en þó örlítið síðari en þau voru, þannig að hnén eru nú alveg hulin. Eitt hið sérkennilegasta í vetur er hið svonefnda tunika-snið, en tunilca þýðir lafafrakki. Áhrif frá tunika-sniðinu er hin vinsæla 9/10 langa kápa, sem notuð er utan yfir kjól úr sama efni. Þessi klæðnaður er sérlega heppilegur fyrir smávöxnu konurnar. Kjólarnir eru gjarnan tvískiptir og nær þá blússan niður á mjaðmir. Stundum er kögur neðan á þeim og einnig ermunum. í vetur er mittið á réttum stað, enda fer það flestum konum bezt. Ivápurnar eru feiknavíðar um axlirnar og annaðhvort með mjög stórum krögum eða þá alveg kragalausar. Hettukápur eru mikið í tizku. Vetrarhattarnir eru állir gerðir upp á austur- lenzkan máta, og eru það aðallega loðhattar, kósakka- húfur, zarhúfur, fezar og túrbanar i öllum mögu- legum myndum. Þessir liattar eru mjög stórir og miklir um sig. Einnig eru liattarnir gerðir úr fjöðrum og tjulli og þá skreyttir með atlaskböndum eða semelíunælum. Handskjól úr skinnum eru mikið i tízku. Dior-tízkuhúsið kom fram með liina umdeildu kjóla, sem eru rykktir saman að neðan, og eru þeir ekki sérlega vinsælir. Yves St. Laurent, hinn ungi eftirmaður Diors, þykir ganga of langt í að húa til sérkennileg föt. Dragtarjakkarnir hafa síkkað mjög mikið, og eru þeir komnir langt niður fyrir mjaðmir. Helztu tízku- • litirnir eru brúnt í öllum blæbrigðum, grænt og svo fjólubláir litir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.