Vikan


Vikan - 25.02.1960, Side 23

Vikan - 25.02.1960, Side 23
MAZETTI — elskhugi Yvette. YYETTE hjákona lögmannsins. GOBILLOT kunnur franskur lögmaður. VIVIANE — eiginkona lögmannsins. virðast undur einkennileg, og gerir sitt ítrasta til að byggja upp einskonar öryggissvæði um- hverfis okkur. Ég get ekki gert mér fulla grein fyrir þessu sjálfur. Bftir atvik það sem áðan var lýst, væri hlægilegt að tala um móðurlegar tilfinningar, og er mér það þó efst í huga. Það er orðið henni leikur, að láta Yvette líða vel, og takmark hennar í lífinu. Hún er mér þakklát fyrir að hafa lagt stund á það, á undan henni, og samþykkir allt sem ég geri í þessa átt. Það er líkast því sem hún vilji einnig vernda mig. Þó er það svo, að ef ég tæki upp aðra hætti, til dæmis ef rifrildi eða þræta kæmi upp milli okkar Yvette, á ég víst að mæta þar and- stæðingi, sem Jeanine er. Þetta gerir ekkert til. Ég man ekki hvers vegna mér datt það í hug, þegar ég kom heim. Nánar tiltekið, bjóst ég ekki við að það yrði sett í sam- band við siðari atvik. En nú skil ég ástæðuna fyrir því, að hún að- varaði mig á sunnudaginn: „Þú skalt ekki þreyta hana of mikið í dag.“ „Þú ættir heldur að lofa henni að sofa,“ sagði Jeanine. Ég veit ekki hvað kom að mér. Jú. auðvitað veit ég það. Eftir mikia áreynslu við erfiðan málflutning í réttinum, og eftir að biða með eftir- væntingu uppkvaðningu dómsins, þarfnast ég æv inlegra einhverra nautna. Og árum saman hafði ég það fyrir venju að ganga beint á gleðihús við Rue Duphot. Ég er engin undantekning í þvi efni. Ég sá Yvette, sofandi, gegnum hálfopnar dyrn- ar. Ég hikaði og leit spurnaraugum til Jeanine. Hún roðnaði ofurlítið. „Hérna?“ nvíslaði hún til svars við ómæltri spurn minni. Ég kinkaði kolli. Einskis þarfnaðist ég frekar, eins og nú stóð á. Skömmu síðar heyrðum við Yvette kalla: „Skemmtið þið ykkur vel þarna? Hvers vegna hafið þið ekki opnar dyrnar, svo ég geti séð ykkur?“ Hún var ekki afbrýðisöm. Þegar ég kom og kyssti hana, spurði hún: Hún fylgdi mér út á dyrapallinn. „Það er bezt að ég segi Þér eins og er. Það sem veldur henni áhyggjum er, að hún heldur að hún sé orðin ófrísk, og kvíðir fyrir hvernig þú munir taka því.“ Ég stóð kyrr, með annan lófann á handriðinu, og starði út í loftið. Ég gerði mér ekki grein fyrir geðshræringu minni og get ekki lýst henni enn. En ég hefi aldrei orðið fyrir henni jafn óvæntri og ofsafenginni á ævi minni. Það tók mig nokkurn tíma að ná valdi yfir sjálfum mér, svo ýtti ég Jeanine til hliðar og gekk aftur upp stigann. Ég hljóp inn i svefnherbergið og hrópaði: „Yvette!“ E'kki veit ég hvernig rödd mín hefir verið, eða hvernig ég hefi verið á svipinn meðan hún var að reyna til að setjast upp. „Er það satt?“ „Hvað?“ „Það sem Jeanine var að segja mér.“ „Hvað sagði hún þér?“ Ég var hissa á því, að hún skyldi ekki sjá það 17. HLUTI Þriöjudagurinn, 13. des. „Caillard." Uppgefinn eftir eríiðan dag í réttinum, — þrjár stundir samfleytt i áróðri á kviðdóminn, til þess að knýja fram dómsúrskurð um tíu ára refsi- vist til handa skjólstæðingi mínum. En hefði mér ekki tekst með einhverjum yfirnáttúrulegum hætti að draga fram í dagsljósið sitt hvað sem dró úr sekt hans, hefði hann orðið að sitja með ævilanga þrælkunarvinnu. 1 stað þess að þakka mér, leit hann kuldalega til mín og tuldraði: „Það var svo sem heilmikið sem vannst á þessu f jarstæðufleipri! “ Vegna álits þess er ég naut, hafði hann talið sér sýknu vísa. Hann heitir Caillard, og ég er farinn að iðrast eftir að ég skyldi ekki lofa þeim að taka hann úr umferð fyrir íullt og allt, þvi hann verðskuldar það. Þegar ég kom, klukkan níu um kvöldið, var Yvette háttuð. „Varstu ánægður með hana?“ Svo sneri hún sér á hliðina og hélt áfram að SOfa. Miövikudagur, 11,. des. ????.“ Jeanine yrti ekki á mig fyrr en i -stiganum, þegar hún fylgdi mér til dyra. Klukkan ellefu um morguninn var Yvette enn í rúminu. Hún var mjög veikluleg og ég tók eítir því, að morgun- verður hennar var ósnertur á bakka. „Hafðu ekki áhyggjur af þvi. Það er ekkert. Ertu búinn að ná í íarseðlana með lestinni?" „Ég keypti þá í gær. Þeir eru í vasa minum." „Týndu þeim ekki. Veiztu að þetta verður í íyrsta sinn er ég ferðast i svefnvagni?" Mér sýndist hún eitthvað svo veikindaleg, og dálítið tekin eins og ég sæi hana gegnum hxilu, svo ég spurði Jeanine frammi í anddyrinu: „Það er ekki af þessu í gær, er það?" „Nei ... Þey! ...“ undir eins, að ég var svona uppvægur af ein- skærri gleði. „Ertu reiður?" „Nei, ástin mín! Ekki nema það þó! Og í fyrrinótt, ... ég ., Einmitt! Og af sömu ástæðu hafði Jeanine varað mig við að ofþreyta Yvette, á sunnudaginn. Hjá okkur hjónunum var aldrei um barneign að tala. Það var atriði sem hún minntist aldrei á, og vegna þess og varúðarráðstafana sem hún ætíð viðhafði, ályktaði ég að hún vildi ekki eign- ast börn. Auk þess hefi ég aldrei séð hana svo mikið sem líta á barn á götu, baðströnd eða í annarra manna húsum. Þau eru henni framandi, talandi tákn um dónaskap, jaínvel siðleysi. Ég man eftir hreimnum i rödd hennar einu sinni, þegar okkur var sagt að kona einhvers starfsbróður míns væri orðin þunguð að þriðja barni: Framh. í næsta blaði.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.