Vikan


Vikan - 21.04.1960, Blaðsíða 10

Vikan - 21.04.1960, Blaðsíða 10
HRÍMNIR: Scotland A 5TDKK5EYRI Kambsránið vakti óhemju mikla athygli á sínum tíma. Grunurinn beindist fljótt að ákveðnum mönnum í nágrenninu, þótt lengi yrði ekkert á þá sannað þrátt fyrir ágæta rannsókn Þórðar sýslumanns Árnes- inga. Er jafnvel óvíst, hvemig farið hefði, ef Þuríður formaður, fyrsti leynilögreglumaður á íslandi, hefði ekki komið til skjalanna. Leynilögreglusögur eru eitt vinsælasta lestrarefni, sem um getur i öllum menningarlöndum, og höfundar þeirra, sem frægð liljóta, bera einna mest úr býtum af öllum þeim, er við ritstörf fást. Sir Conan Doyle varð lieims- frægur fyrir sagnabálk sinn af leynilögreglumanninum Sherlock 'Holmes; muna nú fæstir að hann hafði nokkuð annað ritað, enda þótt eftir hann liggi margar góðar skáldsögur um annað efni, en almenningur á Bretlandi — og raunar viðar — trúir þvi statt og stöðugt að Sherlock Holmes hafi verið til; húsið, sem hann og Watson eiga að hafa búið í, er jafnvel sýnt ferðalöngum til sannindamerkis um það. Leynilögregiusagnaskáldkon- an Agatha Christie nýtur meiri frægðar en nokkur Nóbelsverðlaunahöf- undur, og Edgar Wallace, einhver snjallasti höfundur slikra sagna, sem uppi hefur verið, var á sinum tima einn af tekjuhæstu mönnum á Bret- landi. iÞannig mætti lengi telja. Menn af öllum stéttum lesa leynilögreglu- sögur; lærðustu visindamenn, frægir listamenn og stjórnmálamenn hafa sagt frá þvi — og skammast sin ekkert fyrir — að þœr séu þeim kærast lestrarefni, þegar þeir vilji njóta hvildar frá erfiði og hversdagsstriti, Vitað er og að nokkrir kunnir rithöfundar hafa skrifað levnilögreglu- sögur undir dulnefni; vildu ekki kasta rýrð á meiri háttar ritverk sín, en um suma þeirra hefur þó raunin orðið sú. að beir urðu ölhi fræanri undir dulnefnum. I>á hafa ýmsir stiórnmálamenn oa listamenn. iafnvel kunn'r vísindamenn, samið slíkar söaur nndir dulnefni — meðal annars einn af kunnustu stiórnmálamönnnrn Frakklands á siðari árunt og heimsfræsur kjarnorkufræðingur, vestur-býzkur. Þótt íslenzkir rithöfundar hnfi verið fiölhæfir i skáldsaöna"erð. virðisf leynilögreglusagan löngum hafa orðið útundan hiá beim. Fioinlega er ekki hægt að benda á nema tvær slikar söaur eftir islenzka höfunda. og eru báðar skrifaðar á siðari áratugum, en á hvoruga skal hér neinn dóm- ur lagður. Þetta er því furðulegra, sem einhver snjallasta sagnfræðileg leyni- lögreglusaga, sem rituð hefur verið á Vesturlöndum, var skráð á íslandi, og það nokkru áður en slíkra bókmennta getur nokkuð að ráði annars- staðar, enda má fullvist telja, að ekki hafi sá er færði hana í letur, nokkru sinni séð eða heyrt lögregluspæjara eða afreka þeirra getið. En svo snilld- arlega heldur hann þó á efninu, að óljúgfróðir menn telja þessa frásögn hans standa sjálfum íslendinga sögum litið að baki. Ekki dregur það heldur úr undri þessu, að aðalpersónan — lögreglu- spæjarinn — i frásögninni er kona, og meira að segja um margt einhver sérstæðasta og sérkeunilegasta kona, sem sögur fara af á fslandi á ^iðari öldum, en ekki er langt siðan þeir voru enn á Jífi, sem mundu hana. Höfundurinn, sem hér um ræðir, var Brynjólfur Jónsson frá Minna- Núpi, hinn kunni fræðimaður, og ritverk það, sem við er átt. Sagan af Þuriði formanni og Kambsránsmönnum, en Þuriður formaður er lög- regluspæjarinn, sá fyrsti er um getur hér á landi i skráðum sögnum. Frá Kambsráninu er áður sagt í „Vikunni“, en af þvi spratt einhver harð- vítugasta og erfiðasta réttarrannsókn, sem islenzkir dómsannálar kunna frá að greina. J?n rétt er að gera Þuriði formanni nokkpr skil, áður en frá þvi er sagt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.