Vikan


Vikan - 21.04.1960, Blaðsíða 27

Vikan - 21.04.1960, Blaðsíða 27
HENTUGAR SUMARKAPUR SAVA-poplínkápa með stórum, fallegum kraga. Kápan er með mjóu bundnu belti, lokufellingu að aftan og breiðum uppbrotum a ermum. Á tízkusýningum í vor ber mikið á allskonar léttum kápum úr poplíni og flaueli. Hér heima hefur SAVA hafið framleiðslu á einföldum og þægilegum poplín- kápum sem eru tilvaldar fyrir sumarið. Efnið er ofurlítið mynztrað, þétt og ber sig vel. Kápurnar eru saumaðar eftir nýjum þýzkum sniðum, sem hæfa jafnt eldri sem yngri dömum. Níu fallegir litir eru á boðstól- um og þar á meðal hlýtur óska- liturinn að leynast. Stærðirnar eru: 40 — 42 — 44. Flauel er eitt aðal tízkuefnið í ár, og mikið notað f ytri sem innri kvenfatnað. SAVA framleiðir kápur úr grófriffluðu flaueli, með frönsku og þýzku sniði. Flauelið er franskt, þykkt og mjög áferðarfallegt. Sniðin eru tvennskonar. Annað er hið sígilda frakkasnið, sem nú er svo mikið í tízku. Hitt er létt og sport- legt, með raglanermum og. bundnu belti. — Kápurnar eru í sex fallegum litum, þ. á. m. mosagrænt og koksgrátt. Stærðir: 40 — 42 — 44. Þessar íslenzku kápur eru mun ódýrari en erlendar kápur af svipaðri gerð sem n úeru á markaðnum. í Reykjavík fást þær aðeins á tveim stöðum: Dömudeild Vöruhússins, Laugavegi 38 og Verzl. Tízkan, Laugavegi 17. | j I j | SAVA-kápur úr flau- eli og poplíni. Káp- an til vinstri er úr riffluðu flaueli, með hinu vinsæla frakka- sniði. Stór horn, tví- hnepping og belti. Til hægri er poplín- kápa með hornum, fallegum vösum og bundnu belti.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.