Vikan - 21.04.1960, Qupperneq 12
& '
IJrútsmerkiÖ <21. marz—20. april): Það mun koma margt
óvænt fyrir í vikunni, og ef þú hefur gert þér einhverjar
fastar áætlanir, skaltu vera við því búinn, að allt breytist,
en margt virðist benda til þess, að sú breyting verði til
batnaðar. Eftir helgina munt þú þurí'a að sinna mjög ung-
menni í fjölskyldunni, og reyndu að leysa það starf vel af hendi. Þú
og' félagi þinn fá skemmtilega hugmynd, sem þið skuluð reyna að
hrinda í framkvæmd.
Naut8merkiÖ (21. april—21. maí): Þú munt þurfa að leggja
hart að þér í vikunni, ef vel á að fara, og miklar kröfur
verða gerðar til Þin, að öllum líkindum á vinnustað. Á
miðvikudag eða fimmtudag berast þér undarlegar fréttir,
sem kunna að koma þér úr jafnvægi. Amor verður mikið á
ferðinni, en ekki er víst mikið mark á honum takandi í þessarri viku.
Talan 6 skiptir þig miklu í vikunni. Heillalitur rautt.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þér verður á dálítil
skyssa í lok vikunnar, sem draga mun dilk á eftir sér, en
endalokin verða Þó mjög óvænt og skemmtileg. Gamall
félagi þinn, líklega skólafélagi, kemur skyndilega fram á
sjónarsviðið og kemur þér í nokkur vandræði. Hætt er við
að eigingirni þin komi þér í óþarft klandur, ef þú breytir ekki strax
betur. Heillalitur blátt eða blágrænt.
Kra,bbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Bréf, sem þér berst, eða
sem þú skrifar, kemur lífi i tuskurnar næstu daga, og
kvöldin fram að helgi verða óvenju viðburðarík og sum
skemmtiieg. Ef þú kemur einhvers staðar fram opinber-
lega, skaltu vanda mál þitt, þvi að illviljaðir menn reyna
að finna þér allt til foráttu, þótt þú eigir það síður en svo skilið.
Hugmynd félaga þíns er of öfgakennd, og skaltu ekki skipta Þér af
því máli.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ágúst): Þú eignast að öllum lík-
indum nýjan vin i vikunni. Þetta verður liklega á sam-
komustað. Þessi nýi vinur mun verða til þess, að áform
þín breytast talsvert næstu daga, jafnvel vikur. Stutt ferða-
lag væri þér mjög hollt, og skaltu reyna að nota öll tæki-
færi sem þér gefast hvað það snertir. Hafðu ekki áhyggjur út af orð-
um góðkunningja þíns, því að þau eru sögð meira í gamni en alvöru.
______ MeyjarmerkiÖ (24. ágúst—23. september): Þú færð mörg
verkefni til úrlausnar i vikunni, og ef þú vinnur ötullega,
munt þú hækka mjög í áliti félaga þinna á vinnustað. Á
miðvikudag gerist eitthvað mjög óvænt, ekki er samt ljóst
hvers eðlis, nema hvað það krefst talsverðra peningaút-
láta, og skaltu ekki veigra þér við að „spandera“ ef þér er hagur í
því. Helgin verður allt öðru vísi en á horfðist. Heillatala 9.
VogarmerkiÖ (24. september—23. október): Lánið ætlar að
leika við Þig í þessari viku, og jaínvel svo mjög. að vinir
þínir fyllast öfund í þinn garð. Sýndu því vinum þínum
fyllstu nærgætni og fyrir alla muni skaltu ekki miklast
af velgengni þinni. Á opinberum stað kemur dálítið óvenju-
legt fyrir, sem snertir þig persónulega. Konur ættu að varast að verða
tilbreytingarleysinu að bráð, og ættu því að fara út að skemmta sér.
DrelcamerkiÖ (24. október—22. nóvember): E’kki gerist
ýkjamikið í þessarri viku, en Þú munt lifa þægilegu lífi.
Þó verður uppi fótur og fit á laugardag í sambandi við
brottför kunningja þíns. Fæðing í fjölskyldunni mun skapa
mikla gleði, og um leið verður þungu fargi af þér létt.
Farðu varlega með peninga í vikunni, því að hætta er á að þú sóir
peningum þínum í einskisnýta hluti. Heildarlitur gulleitt.
Bogmaöurinn (23. nóvember—21. desember): Taktu ekki
of mikið mark á því, sem þér verður sagt um einn kunn-
ingja þinn, reyndu heldur að rétta hlut hans. Ef þú gerir
það, mun þessi vinur verða þér afar þakklátur, því að hann
getur ekkert við þessu gert sjálfur. Áform Það sem þú
hefur á prjónunum virðist næsta vonlítið, en þú skalt alls ekki gefast
upp fyrr en í fulla hnefana, því að þér berst óvænt aðstoð. Heilla-
t cllcl 5
Geitarmerkiö (22. desember—20. janúar): Á miðvikudag
eða fimmtudag gerist dálitið, sem hefur áhrif á allar gerð-
ir þínar það sem eftir er vikunnar. Þú skalt ekki örvænta
út af kunningja þinum, þótt hann hagi sér vægast sagt
_______ furðulega þessa dagana, því að þetta líður hjá fyrr en
varir. Heimilislífið verður einkar ánægjulegt. Taktu ekki mark á
orðum konu, sem kemur til þín um helgina. Talan 4 kemur við sögu.
Vatnsberamerkiö (21. janúar—19. febrúar): Stjörnurnar
lofa skemmtilegri viku, sem þó gæti orðið allt annað en
skemmtileg, ef þú ferð ekki varlega i máli, sem þér er
mjög hjartfólgið. Einkum gerist mikið um helgina, og ein-
mitt þá mun gamall draumur þinn rætast, og átt þú fyrir
því, þótt fyrr hefði verið. Hætt er við að þrákelkni þín komi þér í
klípu, ef þú ferð ekki að öllu með gát. Þú getur haft rangt fyrir þér,
eins og aðrir.
FiekamerkiÖ (20. febrúar—20. marz): Þú munt þurfa að
leysa úr vandamáli, sem er mjög viðkvæmt, og verður þú
að beita allri þinni kænsku og hugkvæmni, ef vel á að fara.
Ef þér lánast að leysa úr þessu, mun þér verða ríkulega
launað. Líklega ferð þú i stutt en ákaflega skemmtilegt
ferðalag um eða eftir helgi. Vinur þinn bíður eftir bréfi eða skila-
boðum frá þér. Láttu ekki standa á Því. Heillalitur bleikt eða gult.
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjóri: Ritsljórn og anglýsingar:
Gtsli Signrttsson (ábm.) Skipholti 33.
Auglýsineastjóri: Símar: 35320, 35321. 85322.
Asbjörn Magnássson Pós,bólf 149'
Framkvæindastjóri: Afgreiðsla og dreifing:
Hilmar A. Kriatjánsgon Blaðadreifing, Miklubraut 15, sínii 15017
Verð í Iausasöiu kr. 10. Áskriftarverð kr. Prentun: Hitmir h.f.
216.00 fyrir hálfl árið, grei'ðist fyrirfram. Mymiamót: Myndumót h.f.
Annar þáttur verðlaunakeppninnar.
Einn í biðsal dauðans.
Fiskurinn má ekki kólna, saga eftir Sigurð
Hreiðar.
Þannig býr Erhard.
Hugsaðu óttann burtu.
Molar úr „Menntó“.
Rætt við Kristinn biiasala.
Ilvað segja
g framííð?
stjörnurnar um hæfileika yðar, möguleika
Viljið þér fá svar við þessu þá sendið upplýsingar um
nafn, heimilisfang, fæðingardag og ár, fæðingarstað og hve-
nær sólarhringsins þér fæddust ásamt kr. 500,00 í umslagi
merkt pósthólf 2000, Kópavogi og svarið mun berast yður
ineð pósti.
BARNATREYJA
Hér er uppskrift af sérkennilegri barnatreyju. — Stærð: 3ja, G
og 9 mánaða.
Efni: ca. 60, 65 og 70 gr. hvítt 4 þráða ullargarn. 20 gr. af ljós-
bláu (eða bleiku) ullargarni af sömu tegund og gróflelka.
Prjónar nr. 2%.
17 1. prjónaðar með sléttu prjóni á prjóna nr. 2%, 24 umferðir
= 5 sm.
FRAMSTYKKI.
Byrjið að neðan og fitjið upp 80 (84) 88 1. með hvitu garni i prj.
nr. 2% og prj. 2 sm. sléttprjón, 6 umferðir garðaprjón með ljósbláu
garni og síðan 12 (13) 14 sm. með hvítu garni. Leggið stykkið til
hliðar.