Vikan - 21.04.1960, Síða 14
Það er almennt viðurkennt, að Italir teikni föt og
bíla flestum betur. Þeir eiga líka
hrós skilið fyrir byggingarlistina, og þar
dettur þeim ýmislegt frumlegt og skemmtilegt í
hug. Hér höfum við sýnishorn af nýrri íbúð
í sjálfri Rómaborg. Þvi miður
höfum við ekki útlitsmynd af húsinu. Þið sjáið,
að húsgögnin eru með sérstökum hætti
og nokkuð í öðrum stíl en við þekkjum. Til dæmis
nota þeir mikið járnfætur, bæði á borðum
og stólum. Stiginn upp á efri hæð
er mjög léttur, og takið eftir því, að þeir
koma skemmtilega fyrir léttum bitum í loftum og
sums staðar líka á veggjum. Heildaráferðin
er ef til vill nokkuð köld og nakin, en þess ber að
gæta, að loftslag er hlýrra á Ítalíu en liér
hjá okkur og þeir þurfa elcki að
leggja eins mikla áherzlu á hlýleg húsakynni.
EPLAKAKA MEÐ MARENGS.
250 gr hveiti, 200 gr smjörl., 60 gr sykur, 2 eggjarauður. — Marengs: 2
stífþeyttar eggjahvítur, 100 gr sykur.
Eplamúsin: Sjóðið eplasneiðar í svo litlu vatni sem mögulegt er, þar til þær
eru orðnar að þykku mauki. Hrærið deigið og setjið það í hringform og bakið
ljósbrúnt. Látið því næst eplamaukið í formið ofan á deigbotninn, og marengs-
deigið þar ofan á og stingið forminu aftur inn í ofninn. Þegar marengsinn
er stífnaður og hefur fengið ljósbrúnan lit, er formið tekið út úr ofninum.
Kakan er bezt meðan hún er volg.
YANILLUKRANSAR.
375 gr hveiti, 350 gr smjörl., 250 gr sylcur,
125'gr möndlur, 1 egg, 1 stór vanillustöng.
Deigiö er hnoðaö meö möndlunum í, sett i
gegn um halckavélina og stjörnuplatan notuö.
Síöan eru búnir til kransar sem bakaöir eru
Ijósbrúnir.
GÓÐIR DRAUMAR.
125 gr kartöflumjöl, 50 gr smjörl., 50 gr
14
flórsykur, 1 egg, 1 tsk. ger og 1 tsk van-
illudropar.
öllu blandaö saman og hnoöaö í smá kúlur,
sem eru settar á plötu og geröar flatar meö
því aö þrýsta á þœr meö gaffli. BakaÖar Ijós-
brúnar viö góöan hita.
SNJÓBOLLUR.
50 gr smjörl., 50 gr hveiti, 50 gr kartöflu-
mús, 3 egg, 2 dl vatn og % tsk. lyftiduft.
Smjör, hveiti og kartöflumjöl er hrært út í
sjóöheitu vatni. Lyftidufti og eggjunum, einu
og eýnu í senn bætt í. Hræriö deigiö vel eftir
aö síöasta eggiö hefur veriö sett í. Næst er
aö búa til litlar bollur og steikja þær í feiti,
þar til þær eru Ijósbrúnar. Færiö þær upp á
pappír og látiö fituna síast úr þeim. Nú kemur
skýringin á nafninu; en þaö er þannig til-
komiö, aö flórsykri er stráö á bollurnar og
þær síöan boröaöar meö sultutaui.
VIKAN