Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 22
22 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Útgjöldin
> Kílóverð á harðfiski í ágúst ár hvert.
Bestu kaup Rögnvaldar Johnsen, sem starfar
á fyrirtækjasviði Nova og er fjármálastjóri
Good Times, er svartur trefill sem hann fékk
fyrir þremur vikum, rétt fyrir frostið mikla,
eins og hann orðar það.
„Hann hefur haldið í mér lífinu, ótrúlegt
en satt. Ég sá þennan trefil á Facebook-síðu
vinkonu minnar, sem bjó hann til,“ segir
Rögnvaldur. Á treflinum stendur „Time for
Iceland, probably the coolest bankrupt
country in the world“, eða Tími til kominn
fyrir Ísland, sem er að líkindum svalasta
gjaldþrota land í veröldinni. Rögnvaldur
stökk á tilboðið og sér sannarlega ekki eftir
því.
Verstu kaupin voru hins vegar þau að
hann keypti sér bíl, Volkswagen Passat.
„Þetta reyndust skelfileg kaup,“ segir Rögn-
valdur. „Rafkerfið bilaði og dælukerfið. Ég
held að þessi bíll hafi verið framleiddur á
löngum og leiðinlegum mánudegi!“ segir
hann og sýtir þær hér um bil tvær milljónir
sem hann borgaði fyrir gripinn. En Rögnvald-
ur losnaði þó til allrar hamingju við bílinn
að nýju. „Ég náði að plata honum inn á
einhvern, tók bara Rögga bílasala á þetta,“
segir hann.
Nú ekur Rögnvaldur um á Ford Explorer,
sem er „sjö manna tryllitæki“ að hans sögn.
Þrátt fyrir að Fordinn hafi verið keyptur
með gjaldeyrisláni er Rögnvaldur afar
ánægður með hann.
NEYTANDINN: RÖGNVALDUR JOHNSEN, STARFSMAÐUR NOVA OG GOOD TIMES
Trefillinn hefur haldið lífinu í mér
Heimild: Hagstofa Íslands.
2005 2006 2007 2008 2009
4.
77
2
kr
.
5.
04
2
kr
.
5.
27
9
kr
.
5.
81
7
kr
.
6.
19
6
kr
.
Þeir sem nota farsíma
fremur lítið gætu verið best
settir með frelsiskort hjá
NOVA, en þeir sem nota
símana meira gætu verið
betur settir með áskrift
hjá Símanum. Þetta kemur
fram í drögum að verð-
samanburði Póst- og fjar-
skiptastofnunar á verðskrá
símafyrirtækjanna.
Sérfræðingar Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS) eru nú að leggja
lokahönd á samanburð á kostnaði
við fjarskiptaþjónustu milli fyr-
irtækja. Þetta er líklega í fyrsta
skipti sem verðsamanburður af
þessu tagi er gerður af óvilhöll-
um aðila hér á landi.
„Markmið okkar er að reyna að
setja fram með einföldum hætti
samanburð á verðlagningu á far-
símaþjónustu, heimasímaþjónustu
og internetþjónustu,“ segir Hrafn-
kell V. Gíslason, forstjóri PFS.
Niðurstöðurnar verða gerð-
ar opinberar á sérstakri saman-
burðarvefsíðu sem opna á fyrir
áramót, en Fréttablaðið hefur
drög að niðurstöðum undir hönd-
um. Drögin voru send öllum fjar-
skiptafyrirtækjum og fengu þau
frest út síðastliðinn þriðjudag til
að gera athugasemdir. Hrafnkell
segir eitthvað af athugasemdum
hafa borist, en þær haggi vart
niðurstöðunum í drögunum.
Sérfræðingar PFS skiptu not-
endum í þrjá hópa, að norrænni
fyrirmynd. Í fyrsta flokknum eru
þeir sem nota þjónustuna frem-
ur lítið, þá þeir
sem nota þjón-
ustuna með -
almikið og að
lokum þeir sem
nota þjónustuna
mikið. Fundin
var meðalnotk-
un í hverjum
hópi, og kostn-
aður við kaup
á þjónustu hjá
hverju fyrir-
tæki, og eftir þjónustuleiðum hjá
hverju fyrirtæki, reiknaður út frá
því, segir Hrafnkell.
Samkvæmt drögum að niður-
stöðum er hagkvæmast fyrir þá
sem nota farsíma lítið að vera
með frelsisþjónustu hjá Nova.
Meðalnotendur eru best settir
með áskrift hjá Símanum og þeir
sem nota farsíma mikið sömuleið-
is.
Í samanburði á kostnaði við
heimasíma var hagstæðast verð
fyrir notendur, óháð notkun, hjá
Tali. Tal var einnig með hagstæð-
asta verðið þegar kom að netþjón-
ustu, hvort sem er fyrir þá sem
nota Netið mikið eða lítið.
Í dag þykir verulega snúið mál
fyrir neytendur að átta sig á því
af hvaða fjarskiptafyrirtæki er
hagstæðast að kaupa þjónustu,
þrátt fyrir að PFS birti verðskrár
fyrirtækjanna á vef sínum.
Hrafnkell segir að starfsmenn
stofnunarinnar hafi reynt að gera
samanburðinn eins einfaldan og
mögulegt hafi verið. Því hafi ekki
verið mögulegt að taka tillit til
allra þátta sem máli geti skipt,
til dæmis því að fyrirtækin bjóði
flest upp á ýmiss konar pakka.
brjann@frettabladid.is
Auðvelda verð-
samanburð á
símaþjónustu
Fyrir þá sem eru með létta pyngju og eru ekki svo
heppnir að vinna hjá fyrirtæki sem býður í jólahlað-
borð gæti verið sniðugt að skreppa í kvöldheimsókn í
Húsasmiðjuna í Skútuvogi. Þar er nú í boði jólahlað-
borð fyrir aðeins 990 krónur. Auk þess er barnamat-
seðill á 490 krónur. Á hlaðborðinu er meðal annars
pörusteik, bayonskinka, sveitapaté, kaldir sjávar-
rétttir, marineruð síld, rúgbrauð og flatkökur. Opið
er í hlaðborðið alla daga milli klukkan 18 og 20.
■ Jólahlaðborð á 990 krónur
Þótt vörur í Fríhöfninni í Leifsstöð
séu tollfrjálsar er ekki þar með
sagt að útilokað sé að finna þær
ódýrari en þar. Ung kona átti leið
um verslunina fyrir skemmstu og
keypti þar tvo maskara frá L‘Oréal
á kostakjörum, einungis um 5.000
krónur. Þegar hún settist upp í
flugvél Iceland Express og fletti
auglýsingabæklingnum með vörun-
um sem fengust um borð sá hún
nákvæmlega sama maskarapakka
frá L‘Oréal auglýstan á 2.999 krónur. Sem betur fer hafði hún ekki opnað pakk-
ann úr Fríhöfninni og gat því keypt annan um borð í vélinni og skipt hinum við
heimkomuna. Það borgar sig því að vera vel vakandi.
■ Fríhöfnin ekki endilega ódýrust
Kostnaður við fjarskiptaþjónustu*
Heimasími Síminn Vodafone Tal
Lítil notkun 2.422 2.620 2.243
Meðal notkun 3.319 3.759 2.913
Mikil notkun 4.486 5.570 3.984
HEIMILD: PÓST- OG FJARSKIPTASTOFNUN
Internet Síminn Vodafone Tal Hringiðjan Snerpa Netsamskipti
Lítil notkun 3.340 3.540 3.339 4.490 4.100 3.990
Meðal notkun 4.540 4.540 3.839 5.490 8.950 3.990
Mikil notkun 6.340 6.540 5.839 6.490 8.950 22.250
*Í vinnslu blaðsins eru eingöngu birt hagkvæmasta leiðin hjá hverju fyrirtæki, óháð leið.
Farsími Síminn Vodafone Tal Nova
Lítil notkun 1.395 1.477 1.451 1.081
Meðal notkun 1.990 2.942 2.914 2.545
Mikil notkun 4.075 5.728 5.741 4.936
HRAFNKELL V.
GÍSLASON
RÖGNVALDUR JOHNSEN Er einkar
lukkulegur með trefilinn sem
hann keypti af vinkonu sinni.
FRÉTTABLAÐIÐ / GVA