Fréttablaðið - 26.11.2009, Síða 24
24 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
H
eldri herramönnum sem hættir eru í pólitíkinni og
lifa á vænum eftirlaunum er tíðrætt þessi dægrin
um brúarsmíð í pólitísku lífi landsmanna. Brúin
sú er vitaskuld með annan enda í landi þeirra sem
misstu völdin í lýðræðislegum kosningum fyrir
fáum mánuðum. Eins og það sé sami skikinn undir Framsókn
og Sjálfstæðisflokknum, en þaðan liggur brúin: hinn endinn á
brúnni er umluktur óveðursskýjum, enda vandséð að hinir hug-
prúðu brúarsmiðir andans viti vel hver á að annast brúarsporð-
inn á hinum bakkanum. Brúarsmíðin byggist á gömlu hugtaki
hægri og vinstri og ákallið hljómar til hinnar svokölluðu miðju-
hreyfingar í íslenskum stjórnmálum.
Miðjan í pólitísku lífi á Íslandi byggðist lengi vel á hentistefnu-
siðum íslenskra smáflokka eða flokksbrota, þeirra hreyfinga sem
voru svo lausar í hugsjónarásinni að þær voru tilbúnar að láta
undan í flestum efnum, gefa sig á vald hinum stærri hreyfingum
og tryggja þeim meirihluta á þingi. Lengi gegndi Alþýðuflokkur-
inn þessu hlutverki en svo tók Framsókn við, annar flokkurinn
er kompa í skúffu eldri krata, hinn flokkurinn hefur gengið í
gegnum endurnýjun á mannskap eftir að fyrri áhöfn sat lengi
á valdastólum í skjóli sjálfstæðismanna. Og nú gera menn sér
vonir um að þessir flokkar geti aftur fengið stjórnartaumana:
Nú get ég, segir hin unga kynslóð reynslulítilla flokksmanna sem
röðuðu sér á listana í vor.
Víst má deila um það lengi og mikið hvort núverandi ríkis-
stjórn sé öll að aðhafast hið rétta í hinni erfiðu stöðu íslenskra
stjórnmála, hún kann að vera sundruð og ósamstíga, hún kann
að vera að gera allt vitlaust, en þótt þeir sitji flötum beinum í
rústunum nýir og eldri forystumenn Framsóknar og íhaldsins
og fægi látlaust allt grjót sem hönd á festir í þeirri von að þar
séu lausnar- eða óskasteinar sem færi þeim völdin á ný, blasir
sú staðreynd við að starfandi meirihluti býr við bærilegan þing-
styrk í flestum málum. Það væri pólitískt óráð þeirra flokka að
gefast upp á sínu erfiða verkefni. Því ekki að feisa það?
Vilji menn byggja brýr, má reyna það á málefnalegum grund-
velli – til að byrja með. Fátt í málflutningi stjórnarandstöðu
bendir til að þar sé nokkur vilji til málamiðlana. Þvert á móti
standa menn daglangt og brjóta öll borð sem liggja í átt til sam-
stöðu með hertum munni, æsilegum augum og handaslætti. Og
meðan þannig fer fram í þingsölum er engin von til að þjóðin,
kjósendur, sjái brýr byggðar milli manna og flokka.
Miðjuna rak burt úr íslenskum stjórnmálum fyrir löngu og
vilji menn finna einhverja sökudólga er hollast að leita fyrst í
eigin ranni.
Nú get ég!
Hin mædda miðja
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
Og nú gera menn sér vonir um að þessir flokkar geti
aftur fengið stjórnartaumanna: Nú get ég, segir hin
unga kynslóð reynslulítilla flokksmanna sem röðuðu
sér á listana í vor.
UMRÆÐAN
Magnea Marinósdóttir skrifar
um konur, frið og öryggi
Kerfisbundnar nauðganir á konum í svokölluðum „nauðg-
unarbúðum“ voru liður í þjóðern-
ishreinsunum serbneska stjórnar-
hersins á múslimum í Bosníu árið
1992-1995. Talið er að um 500 þús-
und konum og stúlkum hafi verið
nauðgað þegar þjóðarmorðin í Rúanda voru framin
árið 1994.
Kynbundið ofbeldi hefur fylgt stríði frá örófi
alda. Eftir þjóðarmorðin í Bosníu og Rúanda urðu
hins vegar þau vatnaskil að stofnaðir voru sérstak-
ir dómstólar til að dæma stríðsglæpamenn og voru
nauðganir meðal kæruatriða. Sakfellingar hafa ekki
verið margar. Allar sakfellingar hafa þó mikið vægi
til að vega upp á móti því refsileysi sem hefur verið
við lýði gagnvart nauðgunum í stríði og ekki síður á
friðartímum. Eftir því sem konur eru undirokaðri í
samfélögum sínum á friðartímum, því hörmulegra
verður ofbeldið á stríðstímum.
Ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325
um konur, frið og öryggi var samþykkt árið 2000.
Samþykktin felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á
því að raunverulegur friður og öryggi séu ekki fyrir
hendi ef helmingur mannkyns býr í skugga ofbeld-
is og ótta. Ályktunin felur í sér endurskilgreiningu
öryggishugtaksins frá því að vera takmarkað við
þjóðaröryggi ríkisins yfir í mannöryggi, sem lýtur
að öryggi einstaklinga eða hópa. Ályktunin var mik-
ill áfangasigur í mannréttindabaráttu kvenna.
Nú, níu árum síðar, hefur öryggisráð SÞ auk þess
samþykkt ályktun 1820 sem fordæmir notkun kyn-
bundins ofbeldis sem vopn í stríðsátökum, 1888 sem
skerpir á skyldum friðargæslusveita að vernda sér-
staklega konur og stúlkur gegn kynbundnu ofbeldi
og 1889 sem áréttar mikilvægi þess að konur komi
að friðaruppbyggingu eftir stríð. Lokaályktunin á að
tryggja það að uppbygging eftir stríð skili sér ekki í
afturhvarfi til fortíðar fyrir konur, endurreisn mis-
réttis. Rúanda er dæmi um slíkt. Aukin völd kvenna
í Rúanda eftir þjóðarmorðin 1994 hafa meðal annars
leitt til þess að rótgróin feðraveldislög, sem enn eru
við lýði í mörgum löndum og t.d. meina konum að
eiga land, hafa verið afnumin auk þess sem lög hafa
tekið gildi sem miða að því að binda enda á heimilis-
ofbeldi og annað misrétti.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og varaformaður UNIFEM á Íslandi.
Kvenlíkaminn vígvöllur í stríði
MAGNEA
MARINÓSDÓTTIR
Umsátrið eftir Styrmi Gunnars-
son, fyrrum ritstjóra Morgunblaðs-
ins, er furðusmíð. Bókin vitnar
um takmarkaðan skilning höfund-
arins og helzta heimildarmanns
hans, fyrrum seðlabankastjóra, á
efnahagsmálum. Við þetta bætist
vandræðaleg hlutdrægni höfundar-
ins ásamt veikri sannmæliskennd.
Að lesa bókina er hálfpartinn eins
og að hlusta á Richard Nixon seint
um kvöld, en þó án formæling-
anna, sem voru fangamark Nixons.
Styrmir notar engin stóryrði.
Ein lítil saga á bls. 51 bregður
gagnlegri birtu á verkið. Þar er
lýst samtali seðlabankastjórans við
Timothy Geithner, nú fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, um mitt ár
2008 og viðbrögðum Geithners við
þeim tíðindum, að forstjóri Evr-
ópska seðlabankans „hefði nefnt
þann möguleika, að Ísland leit-
aði til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Viðbrögð Geithners voru þessi …;
„Aha. He offered you the kiss of
death.““ ... Og höfundur bókarinn-
ar bætir við: „Þessi ummæli segja
harla afdráttarlausa sögu um við-
horf Timothys Geithner til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.“ Höfundurinn
virðist ekki vita, að Geithner vann
áður hjá AGS og stýrði þá þeirri
lykildeild sjóðsins, sem mótar skil-
yrðin fyrir lánveitingum til aðild-
arlanda. Það er nær óhugsandi, að
Geithner hafi reynt að varpa rýrð
á AGS í samtali við erlendan seðla-
bankastjóra. Hver tryði þeim, sem
héldi því fram, að höfundur Umsát-
ursins hefði hallmælt Sjálfstæð-
isflokknum? Þeir, sem þekkja til
AGS, hljóta að taka slíkri frásögn
með fyrirvara, þótt höfundur bók-
arinnar taki hana trúanlega.
Sögunni af Geithner og öðrum
slíkum sögum virðist ætlað að
styrkja þann boðskap höfundarins,
að Íslendingar hafi verið beittir
„fantatökum“ (bls. 103) og „flæmd-
ir í fang Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins“ (bls. 107). Hann hljómar eins
og vitorðsmaður brennuvargsins,
sem sagðist hafa verið flæmdur í
fangið á slökkviliðinu. Þessi tónn
bergmálar ræðu seðlabankastjór-
ans hjá Viðskiptaráði fyrir ári. Þar
færði hann Færeyingum „heila
þökk og blessun“ og öðrum ekki,
þar eð Færeyingar reyndust einir
þjóða fúsir til að lána Íslending-
um fé án skilyrða og án milligöngu
AGS. Höfundur Umsátursins hefði
heldur kosið skilyrðislaust lán frá
Færeyjum, hefði það dugað, en lán
AGS, sem var háð því skilyrði, að
hagstjórnin væri færð í heilbrigt
og traustvekjandi horf. Í bókinni
örlar hvergi á skilningi á þörfinni
fyrir að komast hjá mun meira
gengisfalli en varð til að hlífa efna-
hag fólks og fyrirtækja með miklar
skuldir í erlendri mynt. Þar liggur
rauði þráðurinn í efnahagsáætlun-
inni, sem var gangsett meðan Sjálf-
stæðisflokkurinn var enn við völd
og enn er unnið eftir.
Höfundur Umsátursins skilur
ekki, hvers vegna ríkisstjórninni
og Seðlabankanum var settur stóll-
inn fyrir dyrnar. Hann virðist ekki
heldur skilja, að fjölskyldur þurfa
stundum að sammælast um að
stöðva ofdrykkju með afskiptum,
sem sjúklingurinn kallar umsátur
og fantatök. Honum er fyrirmun-
að að fjalla hlutlaust um orsak-
ir bankahrunsins, enda skautar
hann fram hjá því, að: (a) Sjálf-
stæðisflokkurinn seldi Landsbank-
ann í hendur dæmdum sakamanni
og syni hans við þriðja mann; (b)
flokkurinn tryggði þannig fram-
kvæmdastjóra flokksins fram-
haldslíf í bankaráðinu; (c) bankinn
stofnaði útibú í Sankti Pétursborg,
háborg rússnesku mafíunnar, svo
sem Ríkisútvarpið greindi frá; (d)
bankinn raðaði flokksmönnum
á garðann; (e) aðaleigandi bank-
ans og formaður bankaráðsins
keypti Morgunblaðið; (f) nokkrum
misserum síðar komst bankinn í
þrot, og nema kröfurnar á hendur
þrotabúinu nú meira en fjórfaldri
landsframleiðslu; (g) aðaleigandi
bankans lýsti sig síðan gjaldþrota í
einu mesta gjaldþroti einstaklings,
sem sögur fara af um heiminn; (h)
bankastjórn Seðlabankans keyrði
bankann í þrot og lagði þannig á
herðar skattgreiðenda skuld, sem
nemur um fimmtungi landsfram-
leiðslunnar að mati AGS; og (i)
nokkrir nánir samherjar höfund-
arins í Sjálfstæðisflokknum sæta
nú opinberri rannsókn vegna gruns
yfirvalda um lögbrot. Þögnin um
allt þetta er ærandi á köflum og
grefur undan gildi bókarinnar.
Höfundur Umsátursins ber samt
léttari farangur en sumir flokksfé-
lagar hans. Hann skilur, að upphaf
hörmunganna má að nokkru leyti
rekja til kvótakerfisins og til einka-
væðingar bankanna eftir sömu for-
skrift. Kvótakóngar keyptu stjórn-
málamenn í kippum, segir hann
fullum fetum. Hann segir hneyksl-
aður: „Bæði í Danmörku og Svíþjóð
ráða innmúraðar og innvígðar klík-
ur ferðinni í viðskiptalífinu.“ (bls.
105). Hann hafði áður notað sama
orðalag um tiltekinn leynifund:
„Þegar ég talaði um þetta mál við
Jón Steinar hafði ég Kjartan með.
Þetta er eins innmúrað og inn-
vígt og nokkur hlutur getur verið
…“ Þagnameistarinn lýsir nú eftir
opnu og gagnsæju samfélagi. Hann
hefur snúizt gegn sjálfum sér.
Þagnameistarinn
Í DAG |
ÞORVALDUR GYLFASON
Umsátrið
Allir nema ég
Samtök iðnaðarins birtu auglýsingu
í gær þar sem vakin var athygli á
vanda gos-, sælgætis- og kexfram-
leiðenda. Þeir ættu nú undir högg
að sækja – ekki vegna minnkandi
neyslu, landinn héldi tryggð
við lakkrísrörin og appelsínið,
heldur væri hækkandi rekstr-
arkostnaði um að kenna. Að
hækka virðisaukaskatt á nammi
og kexi upp í fjórtán prósent
myndi bæta gráu ofan á svart.
Sá hagsmunahópur er líklega
ekki til á Íslandi sem ekki
hefur viðrað álíka skoðanir:
sársaukafullar aðgerðir séu
óumflýjanlegar – þær megi
bara ekki bitna á þeim. En
hverjum þá?
Atvinnulausir nemar
Á Mbl.is í gær var sagt frá nýju
spili, Heilaspuna, sem kemur
á markað nú fyrir jól. Í frétt-
inni voru höfundar spilsins
sagðir vera „atvinnulausir
hagfræðinemar“. Óneit-
anlega skýtur skökku
við að kalla fólk í
námi atvinnulaust.
Á dögunum var
hópur fólks staðinn
að verki við að vera
bæði á námslánum
og atvinnuleysisbót-
um. Þeim hefur ekki
dottið í hug að nota
þetta sér til málsbóta
– að þeir væru
atvinnulausir nemar.
Margt í mörgu
Starfsmaður Orkuveitu Reykja-
víkur vill ekki að boðið verði
upp á dýrt jólahlaðborð fyrst
laun starfsmanna hafa verið
lækkuð. Haft var eftir vinnusál-
fræðingi í Fréttablaðinu í gær
að þetta væri málum bland-
ið; rök væru bæði með og
á móti fyrirtækjaskemmt-
unum í kreppunni. Þetta
eru sláandi niðurstöður.
En í kjölfarið vaknar upp
sú spurning hvort einhvern
tímann hafi komið upp
þær aðstæður í þjóðfé-
laginu að öll rök mæltu
með – eða gegn – því að
fyrirtæki efndu til veislu.
bergsteinn@frettabladid.is
Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.bloggar.is
Hot jóga
Hatha Jóga
Byrjendanámskeið
Meðgöngujóga námskeið
Stakur tími 1.500 kr.
Mánaðarkort 9.265 kr.
3 mánaðakort 20.315 kr.
6 mánaðakort 30.600 kr.
15%
afsláttur af
öllum kortum
opnunartilboð
Byrjendanámskeið 12.665 kr.
Meðgöngujóga námskeið 9.265 kr.
Innifalið í kortum eru allir opnir tímar
ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á
í Veggsport.
Ný og persónuleg jógastöð