Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 29
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ég keypti þessa kápu á prúttsölu
í Rokki og rósum fyrir þremur
árum,“ segir Kristín Bergsdótt-
ir um uppáhaldsflíkina sína sem
var alger happafengur. „Ég fór
með hana í hreinsun og þá varð
hún eins og ný. Mér finnst hún fal-
legasta kápan sem ég á og þó á ég
mjög margar,“ segir hún og tekur
fram að hún eigi kápur í öllum
litum.
Skór eru Kristínu einnig hug-
leiknir og á myndinni klæðist hún
skóm frá Chie Mihara sem hún
fékk í Kron. „Hún er alger snill-
ingur og býr til hæla sem eru með
jafngott stuðningskerfi og íþrótta-
skór,“ segir hún og finnst þeir ótrú-
lega þægilegir. Trefilinn prjónaði
Kristín sjálf. „Í haust átti ég ekki
mikinn pening en langaði í eitt-
hvað nýtt. Þá ákvað ég að prjóna
mér trefil í alls konar litum,“ segir
hún glaðlega.
Kristín útskrifaðist úr söngnámi
frá Tónlistarskóla FÍH síðasta vor
og lýkur næsta vor námi í tón-
smíðum við Listaháskóla Íslands.
Hún gaf nýlega út sinn fyrsta disk
sem heitir Mubla en á honum eru
lög eftir Kristínu sem hún syng-
ur sjálf. „Þetta er tónlist sem ég
samdi á árunum 2002 til 2007.
Þetta er poppplata en undir áhrif-
um frá djassi, hipphoppi og sálar-
tónlist,“ segir hún og er ánægð með
útkomuna. Hún stefnir því ótrauð á
frama í söng. Næsta skref hennar
er að fara til Brasilíu í janúar þar
sem hún mun dvelja í þrjá mánuði.
Þar ætlar hún að drekka í sig tón-
listarmenningu Suður-Ameríku og
halda áfram að þroska sjálfa sig
sem tónlistarmann.
solveig@frettabladid.is
Á kápur í öllum litum
Kristín Bergsdóttir elskar kápur og taldi sig heppna þegar hún eignaðist heiðgula kápu á prúttmarkaði
fyrir nokkrum árum. Kápan hefur reynst vel enda alveg eins og ný.
Kristín Bergsdóttir gaf nýlega út diskinn Mubla þar sem hún syngur lög eftir sjálfa sig. „Þetta er poppdiskur með áhrifum frá
djassi, hipphoppi og sálartónlist.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NOKKRIR KJÓLAR AUDREY HEPBURN verða boðnir upp í London
8. desember. Kjólarnir sem boðnir verða upp nú eru í eigu Tönju Star-Busmann,
æskuvinkonu Hepburn. Hepburn gaf vinkonu sinni oft kjólana sína sem voru
frá tískuhönnuðum á borð við Givenchy. Alls verða 48 munir boðnir upp í
desember; kjólar, bréf, hattar og ljósmyndir.
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
JÓLATILBOÐ
á stillanlegum rúmum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is