Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 31
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 2009 3
Sýningin mun bera
yfirheitið „Grace
Kelly: Style Icon“
en þar verða sýnd-
ir kjólar sem hún
klæddist í myndum
á borð við High Society
og Rear Window auk kjóls
sem hún klæddist þegar
hún tók við Óskarsverð-
launum árið 1955. Farið verður
yfir sögu Kelly með tilvísun í fata-
val. Til dæmis hvernig smekkurinn
breyttist eftir að hún giftist Raini-
er prins. Til dæmis verða til sýnis
fötin sem hún klæddist þegar
hún hitti Rainier í fyrsta sinn auk
hátískukjóla eftir uppáhaldshönn-
uði hennar líkt og Christian Dior,
Balenciaga, Givenchy og Yves
St. Laurent. Sýningin sem verð-
ur opnuð í apríl 2010 verður þrí-
skipt eftir flokkunum leikkonan,
brúðurin og prinsessan. Stór hluti
sýningarmuna er fenginn að láni
frá Palace Princier í Mónakó en
einnig hefur safnið Balenciaga á
Spáni lánað hluta auk einkaaðila í
Bandaríkjunum. - sg
Sýning á fötum
Grace Kelly
FRÆGUSTU KJÓLAR
PRINSESSUNNAR AF
MÓNAKÓ VERÐA
TIL SÝNIS HJÁ
SAFNINU V&A Í
LONDON.
Grace Kelly á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni 1955.
Hönnuðir eru mis-jafnlega lagnir við að aðlagast breytt-um aðstæðum þegar
harðnar í ári og viðskiptavin-
um fækkar. Sem dæmi má nefna
Christian Lacroix, einn af þeim
frægustu í hátískunni, en tísku-
hús hans hefur verið í greiðslu-
stöðvun síðan í júní og í næsta
mánuði kemur í ljós hvort nýtt
fjármagn fáist til að fjármagna
tískuhúsið. Lacroix hefur farið
einstaklega illa út úr kreppunni
og endaði 2008 með tíu milljóna
evra tapi vegna fjöldaframleiðsl-
unnar sem ekki seldist lengur.
Fjöldi tískuhúsa býður upp á
fleiri en eina tískulínu og nær
þannig til breiðari viðskipta-
vinahóps. Margir þekkja eflaust
See by Chloé, D & G frá Dolce
& Gabbana eða RED hjá Val-
entino. Allar eiga þessar línur
það sammerkt að vera ódýrari
en aðallínurnar sem sýndar eru
á sýningarpöllunum en eru þó
undir merkjum tískuhúsanna og
draga þannig að viðskiptavin-
ina. Að sjálfsögðu er hver flík
vandlega merkt tískuhúsinu svo
ekki fari milli mála hvaðan hún
kemur. Versace er nýbúinn að
endurvekja Versus sem var eins
konar ,,junior-lína“ en hún hvarf
af markaðinum fyrir nokkrum
árum. Ricardo Tisci hjá Givency
hefur valið úr frægum flík-
um tískuhússins og framleið-
ir nú með miklu minni tilkostn-
aði en áður. Svona mætti áfram
telja þær mismunandi leiðir
sem tískuhúsin fara til að halda
velli á víðsjárverðum tímum og
hvernig þau leita leiða til að brúa
bilið milli hins dýra lúxusvarn-
ings og hinna ódýru fatamerkja.
Svo eru þeir sem fara þver-
öfuga leið eins og tískuhús
Carven sem á sér langa sögu,
var stofnað á lýðveldisárinu 1944
af Carmen de Tommaso sem
fór að hanna föt af því að henni
fannst hún of lítil. Eftir að hafa
átt sína gullöld gekk þetta tísku-
hús kaupum og sölum en komst
2008 í eigu keðju, SCM Group
að nafni. Carven dró sig út úr
hátískunni og hefur verið að fóta
sig í pret-à-porter-framleiðsl-
unni (tilbúið til notkunar) und-
anfarið. Á komandi vori kemur
á markaðinn fyrsta tískulína
Carven eftir Guillaume Henry
sem hannaði áður fyrir Paule
Ka og Givenchy. Markmiðið er
að byggja á hefð og þekkingu
hátískuhússins en framleiða
tískulínu á verði sem höfðar til
stærri og yngri markhópa en
áður sem er vissulega mikil-
vægt á krepputímum. Klæðn-
aðurinn er fyrir virkar konur,
þægilegur og nothæfur en ber
merki hágæðahönnunar. Sam-
bland af aga við snið og form til
dæmis hvað varðar kjóla en þeir
eru úr efnum sem eru þægileg
og sem hægt er að smeygja sér í
líkt og einföldustu bolir úr bóm-
ull. Buxurnar minna stundum á
náttföt og ,,perfecto-leðurfrakk-
ar“ sjást einnig. Þessi lína er
ólík hinum svokölluðu ,,second
line-tískuhúsanna“ því hún er sú
eina sem er í boði hjá Carven og
á hóflegu verði.
bergb75@free.fr
Carven – hátískuhús sem hannar fyrir fólk
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, sem
áður var með verslunina KVK,
opnar nú nýja verslun sem ber
heitið KOW á Laugavegi 51 þar
sem hún selur eigin hönnun.
Kolbrún Ýr hefur ásamt Írisi Egg-
ertsdóttur rekið verslunina KVK
við Laugaveg í fjögur ár. Vinsæld-
irnar hafa verið miklar og verslunin
er orðin fastur punktur í lífi margra
kvenna sem vilja falleg föt.
„Við Íris vorum samt alltaf að
hanna undir eigin merkjum. Okkur
fannst því eðlilegt framhald á þessu
sambandi að opna okkar eigin
búðir,“ segir Kolbrún Ýr. Íris opn-
aði sína búð í síðustu viku en hún
heitir Liber en Kolbrún opnar sína
verslun í dag á Laugavegi 51.
Kolbrún segir vissulega nokkra
eftirsjá að samstarfinu enda hafi
þær Íris orðið góðar vinkonur á
þessum árum. „En eins og Íris
orðar það þá erum við búnar að
taka hjálpardekkin af hvor annarri
og nú er draumurinn að rætast um
að maður fái að sjá sína eigin hönn-
un njóta sín,“ segir hún og telur að
margir hafi ekki áttað sig á að þær
væru að gera mismunandi hluti.
Kolbrún heldur opnunarteiti í
nýrri verslun sinni milli klukkan 18
og 21 í kvöld. Léttar veitingar verða
í boði og hljómsveitin Sometime
kemur og spilar órafmagnað fyrir
þá sem líta við. Boðið er öllum opið
og Kolbrún býður alla velkomna að
fagna opnuninni með sér og skoða
það sem hún hefur upp á að bjóða.
- sg
Hætt í KVK og opn-
ar í staðinn KOW
Kolbrún Ýr opnar í dag nýja verslun sína KOW á Laugavegi 51.