Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 36

Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 36
 26. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR Jólakjólarnir streyma nú inn í verslanir Zöru, bæði í Kringlu og Smáralind. Fjölbreytni er ráðandi í sniðum og gerð- um og þótt svarti liturinn sé ríkjandi eru aðrir glaðlegri inni á milli. „Við erum með sæta kjóla í vinn- una og líka spari,“ segir Jóna Dóra Ásgeirsdóttir, verslunarstjóri í Zöru og nefnir kjóla fyrir ólík- an aldur, allt frá ungu stúlkunni sem er ekki lengur í barnadeild – og upp úr. „Við erum með klass- íska kjóla sem ganga alltaf því sumar vilja bara svarta, einfalda kokteilkjóla en svo erum við líka með það sem er í tískublöðunum í dag. Það ættu allar að geta fundið kjóla við sitt hæfi því ekkert eitt er í gangi heldur fjölmargt,“ held- ur hún áfram. En hvað skyldi helst vera í tísku núna? „Svarti liturinn er áberandi í vetur,“ svarar hún. „Svört blúnda til dæmis. Sumir kjólar eru allir úr fóðraðri blúndu og í sumum tilfell- um er toppstykkið blúnda en pilsið úr siffoni og varla þarf að taka fram að kjólarnir eru fóðraðir. Ég er líka með kjóla úr bómull að öllu leyti nema hvað bakið er blúnda.“ Hlýralausir kjólar eru vinsælir og líka kjólar með hlýra yfir aðra öxlina en skyldu engir vera með ermum? „Jú, það er ekki vanda- mál,“ svarar verslunarstjórinn glaðlega. „Bæði stuttum ermum og löngum. Við erum til dæmis með rosa flotta blúndukjóla með síðum ermum.“ Þó að svart sé afgerandi er auð- vitað fleira í boði því fallegir litir eru með, til dæmis blár og fjólu- blár. „Svo kemur alltaf eitthvað gyllt fyrir jólin, sparilegt og há- tíðlegt,“ tekur Jóna Dóra fram. Ein ný gerð kjóla er komin í Zöru sem lítur út eins og pils og blússa. Jóna Dóra lýsir henni svo: „Há pils eru vinsæl í vetur og nú hafa verið gerðir kjólar sem líta út eins og há pils og einföld blússa en er samt ein flík. Mjög flott.“ Zara er spænskt fyrirtæki þannig að fötin koma öll frá Spáni og Jóna Dóra segir sama úrval í Kringlunni og Smáralind í lang- flestum tilfellum. Stærðirnar eru frá XSmall upp í XLarge. Það sam- svarar númerunum frá 8 til 16 – eða 34 til 44. Sniðin eru fjölbreytt og henta alls konar vexti að henn- ar sögn. Verðið er frá 5.900 upp í 12.900. „Þú færð virkilega flottan kjól undir tíu þúsund kalli,“ full- yrðir hún sannfærandi. Svört blúnda vinsæl í vetur „Það ættu allar að geta fundið kjóla við sitt hæfi því ekkert eitt er í gangi heldur fjölmargt,“ segir Jóna Dóra verslunarstjóri í Zöru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA á flottum kjólum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.