Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 39
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009
Öllu var tjaldað til á tískusýningu í Kol-
ombó, höfuðborg Srí Lanka, á dög-
unum. Tilgangurinn með sýning-
unni var, fyrir utan að sýna allt
það nýjasta í innlendri hönnun, að
safna í sjóð til styrktar her-
mönnum stjórnarhers
Srí Lanka sem særðust
eða fjölskyldna þeirra
sem létust í átökum
við uppreisnarmenn
Tamíl-tígra í norðurhluta
landsins. Þeim lauk með
uppgjöf uppreisnarmann-
anna í maí á þessu ári.
- rve
Óhætt er að segja
að í engu hafi verið
til sparað við gerð
kjólanna, eins og
sést af þessum
brúðarkjól.
Áhersla var ekki
síður lögð á fagra
fylgihluti en kjóla,
svo sem eyrnalokka
og hárskraut.
Svart og gyllt.
Fyrirsæta sýnir
fallega mynstr-
að sjal.
Gyðjur og
glæsileiki
Pallíettukjólar njóta vinsælda
í vetur. Kemur sér vel, segir
Eva Pálsdóttir, verslunarstjóri
Vila, þar sem fátt sé fegurra en
glitrandi gersemar um jólin.
„Ætli það séu ekki einna helst
silfruðu, gylltu og svörtu pallí-
ettukjólarnir,“ segir Eva Pálsdótt-
ir, verslunarstjóri Vila í Smára-
lind, beðin um að lýsa því hvers
konar kjóla konur kaupi einna helst
fyrir þessi jól og áramót. Eva kann
enga skýringu á vinsældum pallí-
ettukjóla aðra en þá að þeir komist
reglulega í tísku. Eiginlega sé það
hálfgerð heppni að það skuli bera
upp rétt fyrir jól, þar sem slík-
ir kjólar – jafn skrautlegir og þeir
geta verið – henti vel við hátíðleg
tækifæri.
Þá segir Eva kjóla í rokkaðri
kantinum eftirsótta en af þeim fæst
gott úrval í Vila. „Þá á ég til dæmis
við stutta pallíettukjóla í alls kyns
litum, sem ná niður á hné,“ útskýr-
ir hún og bætir við að þrátt fyrir
gott litaúrval gangi svartur best í
íslenskar konur.
Eva bendir á að stílhreinir kjólar
séu líka í boði. „Þessir svörtu sem
henta við öll tækifæri. Slíkur kjóll
og leggings er kjörin samsetning
við hversdagsleg tilefni. Svartur
kjóll, háir hælar og fallegar sokka-
buxur við klikka hins vegar ekki á
fínni uppákomum.“
Hún tekur fram að við kjólana
fáist fullt af fylgihlutum í búðinni.
Nefnir til sögunnar skartgripi,
golftreyjur og hlýra- og blúnduboli
undir kjóla. „Þeir eru heitir núna og
hafa sést á öllum sýningarpöllum.“
Eva bætir við að konur á öllum
aldri ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi og tekur fram að kjólarn-
ir kosti flestir um eða undir 10.000
krónum.
Prinsessulegir pallíettu-
kjólar eftirsóttir fyrir jól
Evu Pálsdóttur, verslunarstjóra Vila, finnst það mikið gleðiefni að pallíettukjólar
skuli vera komnir í tísku fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● JAPANSKI ÞJÓÐBÚNINGURINN Hinn japanski kimono kemur okkur fyrir sjón-
ir eins og hálfgerður kjóll þótt kufl væri líklega réttara orð. Japanar hafa gengið í kimono í rúm
1.200 ár. Í byrjun þótti hann praktískur, hentaði í öllum veðrum og japönsk alþýða gat klæðst
mörgum lögum undir honum. Seinna notuðu Japanar kimono til að aðgreina fólk eftir
þjóðfélagsstéttum. Á Kamakura-tímabilinu 1192 til 1338 klæddust karlar sem konur kim-
ono. Stríðandi aðilar áttu líka sína eigin einkennisliti og stundum voru orrustur samúraja
eins og tískusýningar á að líta. Á Meiji-tímabilinu 1868-1912 hvöttu stjórnvöld lands-
menn til að klæða sig að vestrænum sið. Þeim fækkaði því smám saman sem klæddust
kimono. Nú er hann helst notaður sem viðhafnarbúningur í giftingum og því um líku.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
A
FP