Fréttablaðið - 26.11.2009, Qupperneq 54
38 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Á laugardag var haldið fjölsótt þing
til að minnast frelsunar dönsku
nýlendunnar fyrir tvö hundr-
uð árum. Jörn Dyrholm, danskur
fræðimaður sem hefur rannsakað
Jörund sennilega meira en nokkur
annar lifandi maður, hélt því fram
á ráðstefnunni sem haldin var á
vegum Sagnfræðistofnunar um
helgina að hið þekkta málverk af
Jörundi sé alls ekki af Jörundi og
ekki heldur málað af Eckersberg
(1783-1853) eins og haldið hefur
verið fram. Eckersberg hefur verið
kallaður faðir danskrar málaralist-
ar og málaði meðal annars Friðrik
VI. Danakonung.
Dyrholm heldur því fram að
Hans Hansen (1769-1828) hafi
málað myndina en skiptar skoðan-
ir eru um það meðal danskra list-
fræðinga. Þar að auki telur Dyr-
holm afar ólíklegt að myndin sé af
Jörundi og færir fyrir því margs
konar rök. Samkvæmt lýsing-
um þegar Jörundur var tekinn til
fanga af Bretum var hann sagður
dökkhærður og með „hnotubrún“
(e. hazelbrown) augu – sem pass-
ar ekki við manninn á myndinni,
sem er ljóseygður. Hann telur and-
lit hans of „barnalegt“, ólíklegt að
hér sé á ferð maður sem er búinn að
vera stöðugt á sjó í fjórtán ár.
Jörgensen var blankur og hefur
ekki haft efni á því að fá málaða
mynd af sér. Faðir hans, hirðúr-
smiðurinn, lét til dæmis aldrei
mála mynd af sjálfum sér. Á þess-
um tíma í Danmörku voru það aðal-
lega aðalsmenn eða mjög auðugir
menn sem létu mála myndir af sér.
Það var ekki það fólk sem Jörgen-
sen-fjölskyldan umgekkst daglega.
Þau voru ekki hluti af listamanna-
samfélaginu. Engar sögur fara af
málverkum í dánarbúum Jörgen-
sen-fjölskyldunnar (eingöngu spegl-
um sem veggskraut). Eldri bróðir
Jörundar, Urban, varð mjög fræg-
ur úrsmiður en aðeins er til kopar-
stunga af honum. Faðir Jörundar
lét hins vegar gera „silhouettur“ af
sér og konu sinni og eru þær til.
Myndin er talin máluð á fyrsta
áratug 19. aldar. Jörgensen kom
heim til Danmerkur í ágúst 1806
og gerðist skipstjóri á víkingaskip-
inu Admiral Juul í desember 1807.
Náðu þeir nokkrum skipum áður
en skipið var hertekið af Bretum í
byrjun mars 1808 og var Jörgensen
þá tekinn til fanga. Ef málverkið er
af Jörundi hefur það verið málað
á þessu tiltölulega þrönga tímabili.
Dyrholm telur að ef myndin hefði
verið máluð af Jörgensen 1806-1807
hefði hann verið málaður í einhvers
konar flotabúningi sem hann hafði
rétt til að bera.
Margt annað tíndi Dyrholm til í
erindi sínu á ráðstefnunni og ætlar
hann að skrifa grein um málverkið
sem birtist væntanlega í íslensku
tímariti. Ráðstefnan var mjög fjöl-
sótt en auk Jörns Dyrholm flutti
hinn þekkti breski rithöfundur
Sarah Bakewell fyrirlestur ásamt
Önnu Agnarsdóttur, prófessor í
sagnfræði, og Óla Má Hrólfssyni
sagnfræðinema.
Vitlaus maður á mynd
MENNING Hið umrædda málverk sem
til þessa hefur verið talið af Jörgen
Jörgensen.
Út er komið fjórða og
síðasta hefti
Tímarits Máls
og menningar
á þessu ári.
Meðal efnis
má nefna brot
úr Dagbókum
Matthíasar
Johannessen
frá árunum
1999 og
2000 en þessar færslur hafa ekki
áður birst á prenti og hafa að geyma
margt hnýsilegt fyrir áhugafólk um
bókmenntir og samtímasögu. Tvær
greiningar eru á bankahruninu og
aðdraganda þess: Guðni Elísson bók-
menntafræðingur skrifar um Staðleys-
una Ísland og mýtuna um okkur sjálf
en Jón Ólafsson, prófessor á Bifröst,
fjallar um andrúmsloftið í þjóðfélag-
inu fyrir hrun sem hann kennir við
nokkurs konar samfélagssáttmála.
Úlfhildur Dagsdóttir skrifar grein um Tinna áttræðan og Þorsteinn
Antonsson dregur fram gömul bréfa-
skipti þeirra Elíasar Marar og Ragnars
í Smára sem sýna erfitt samband
höfundar og forleggjara en Sigurjón
Árni Eyjólfsson guðfræðingur skrifar
seinni grein sína um bækur Bjarna
Bjarnasonar í ljósi kristinnar kenning-
ar. Ritdómar eru margir og ýtarlegir
og ljóð meðal annars eftir Hermann
Stefánsson og Hallgrím Helgason.
Ritstjóri TMM er Guðmundur Andri
Thorsson.
NÝ TÍMARIT
B R Y N H I L D U R G U Ð J Ó N S D Ó T T I R
SÝNT Í L ANDNÁMSSETRI ÍSL AND BORGARNESI
MIÐASAL A Í SÍMA 437 1600 OG landnamssetur@landnam.is
w w w.landnamssetur. is
LEIKSTJÓRI ATLI RAFN SIGURÐARSON
EKKI MISSA AF
J k
Bert
Carlos Fue
Fede
Francis Ba
Gabrie
Márquez
Guðbergur
Fr
L
Milan Kundera fjallar af
alkun
um þá listamenn sem hafa
skipt hann mestu máli.
Upplý
menningu Evrópu síðustu
fimm
ýmsum spennandi útúr-
dúrum
Friðrik
eos anace
Fj d D t j kío or os
Upplestrarkvöld á Súfistanum,
Laugavegi 18, í kvöld kl. 20
Inga Dóra Björnsdóttir - Kona þriggja eyja,
ævisaga Ásu Guðmundsdóttur Wright
Steinar Bragi - Himinninn yfir Þingvöllum
Sigurður Pálsson - Ljóðorkuþörf
Jónína Leósdóttir - Ég & þú
Allir hjartanlega velkomnir
Brot af
því besta
Leikritið Fyrir framan annað fólk
fékk prýðisgóðar viðtökur þegar
það var frumsýnt í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu í haust. Fram undan
eru hins vegar þrjár síðustu sýn-
ingarnar. Um helgina verða tvær
sýningar, ein á laugardagskvöld
en hin á sunnudagskvöld og síð-
asta sýning er síðan laugardag-
inn 5. desember.
Síðustu sýningar
Paul á plötu
Ringo Starr
Persónulegasta plata Ringo
Starr heitir Y not og kemur út
í byrjun næsta árs. Þetta er
fyrsta platan sem Ringo hljóð-
vinnur sjálfur og segist hann
borubrattur ætla að sjá um
þetta framvegis. Þekkt lið eins
og Ben Harper, Joss Stone,
Joe Walsh, Dave Stewart, Glen
Ballard, Richard Marx og Van
Dyke Parks kemur við sögu
á plötunni og Paul McCartn-
ey spilar á bassa í einu lagi
og syngur með Ringo í laginu
„Walk with You“. Það er sagt
vera einlægt lag um gamal-
gróna vináttu.