Fréttablaðið - 26.11.2009, Qupperneq 61
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 2009 45
Fjaðrir og flottheit
hjá Victoria‘S Secret
„Við ætlum að fara svolítið USA-
leiðina og búa til alvöru tískusýn-
ingu með danssýningu og partíi
eftir á,“ segir Sveinbjörn Gísli
Þorsteinsson eða Sveinbi, eig-
andi superman.is, sem skipulegg-
ur svokallað Fashion Party 2009
á Rúbín næstkomandi föstudag,
27. nóvember.
„Ég var að tala við eiganda
fataverslunarinnar fabulous.is
og fékk þá þessa hugmynd. Dag-
inn eftir fór ég af stað og það er
búinn að fara rosalega mikill
undirbúningur í þetta. Það eru
æfingar tvisvar í viku hjá okkur
fyrir tískusýninguna og búið að
semja fjögur dansatriði,“ segir
Sveinbi, en dansþjálfunin er í
höndum Lindu Óskar Valdimars-
dóttur.
Aðspurður segir Sveinbi margt
um að vera í partíinu á föstudag.
„Við verðum með eldgleypi fyrir
utan sem tekur á móti gestum og
sportbíla svona fyrir „lúkkið“.
Sverrir Tattú verður svo á svæð-
inu með sinn stól. Hann mun
byrja á því að tattúvera strák
sem er búinn að panta verk og ef
hann nær að klára það er mögu-
leiki fyrir aðra að setjast í stól-
inn,“ útskýrir Sveinbi, en kynn-
ir kvöldsins verður Haffi Haff.
„Miðasala verður við innganginn
og svo ætlum við að bjóða hlust-
endum Flass FM 104,5 að hringja
inn og komast á gestalista,“ segir
hann og býst við góðri mætingu á
Rúbín á föstudag, en húsið verður
opnað klukkan 21.30. „Viðbrögðin
eru búin að vera alveg svakaleg
og við stefnum í að það mæti hátt
í 500 manns,“ segir Sveinbi. - ag
Sportbílar og eld-
gleypir á tískusýningu
FASHION PARTY 2009 Sveinbi skipuleggur tísku- og danssýningu á Rúbín ásamt
Rósinkrans Má Konráðssyni og Lindu Ósk Valdimarsdóttur danskennara.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Árleg tískusýning undirfatafyrirtækisins Victoria‘s
Secret fór fram á fimmtudagskvöld á The Lexington
Armory í New York. Hljómsveitin Black Eyed Peas opnaði
sýninguna með lagi sínu Boom Boom Pow við góðar undir-
tektir. Áhorfendur voru ekki síður ánægðir þegar ofurfyr-
irsætan Heidi Klum steig á svið í fyrsta sinn frá því að
hún eignaðist sitt fjórða barn fyrir fimm vikum.
„Amma mín lést úr brjóstakrabba-
meini svo ég hef alltaf viljað gera
eitthvað fyrir krabbameinsfélag-
ið,“ segir Alan Jones söngvari sem
endurgerir lagið All You Need Is
Love með Bítlunum. Allan ágóða
af sölu gefur hann til rannsókna
á brjóstakrabbameini.
„Textinn í þessu lagi er svo ein-
faldur, en náði beint til mín. „Allt
sem þú þarft er ást“ og það er
svo rétt,“ segir Alan. Þetta verð-
ur „live“ upptaka í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði. Ég, Arnar Jónsson
og Kristín Ósk Wium Hjartardótt-
ir syngjum lagið saman og verð-
um með kvennakór í bakröddum.
Steinþór Teavue spilar undir á
píanó og Elva Björk Rúnarsdóttir
á fiðlu. Við tökum upp um miðjan
desember og lagið kemur út fyrir
jól. Það verður fáanlegt á ton-
list.is og allur söluágóðinn renn-
ur beint í rannsóknir á brjósta-
krabbameini,“ útskýrir Alan sem
mun jafnframt halda tónleika til
styrktar málefninu í Fríkirkjunni
18. desember.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Alan gefur ágóðann af tónlist sinn
til góðgerðarmála, en hann hélt
nýverið styrktartónleika fyrir
Ellu Dís og gaf allan ágóðann í
læknismeðferð hennar. Aðspurð-
ur segir hann peningana ekki
skipta sig máli. „Þetta snýst allt
um að gefa til baka og það skiptir
mig meira máli en peningar. Þeir
munu koma síðar,“ segir Alan.
- ag
Lætur gott af sér leiða
ENDURGERIR ALL YOU NEED IS LOVE
Alan Jones ætlar að endurgera lagið All
you need og mun allur söluágóðinn fara
í rannsóknir á brjóstakrabbameini.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í FÍNU FORMI Ofurfyrirsætan Heidi Klum
geislaði á sýningu Victoria‘s Secret,
aðeins fimm vikum eftir að hún eignað-
ist sitt fjórða barn.
HANSKAR OG FJAÐRIR Fyrirsætan
Miranda Kerr tók sig vel út í dökku
nærfatasetti.
GLÆSILEG Í GRÆNU Fergie úr Black Eyes
Peas var glæsileg í grænni samfellu,
korseletti og pilsi þegar hún steig á svið
og söng á sýningunni.
BLACK EYED PEAS Hljómsveitin Black Eyed Peas opnaði sýningu Victoria‘s
Secret með lagi sínu Boom Boom Pow.
FLOTT Fyrirsætan
Marissa Miller var
flott í rauðum og
svörtum nærfötum,
með svarta vængi.
amborgarar
4 brauð
alltaf í leiðinni!
h
g
4
o498 kr.pk.
ÓDÝRT
ALLA DAGA!