Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 64

Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 64
48 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is > Reading vill semja við Gunnar Heiðar Eyjapeyinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem er búinn að vera á reynslu hjá enska b-deildarfélaginu Reading, skoraði bæði mörk varaliðs félagsins í 2-1 sigri liðsins gegn Bristol Rovers í vináttuleik sem var spilaður fyrir luktum dyrum í gærdag. Gunnar Heiðar skoraði mörkin tvö snemma leiksins en síðara markið var að sögn vefmiðilsins getbracknell einkar glæsilegt. Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers hjá Reading vonast samkvæmt heimildum áðurnefnds vefmiðils til þess að geta gengið bráðlega frá félagaskiptum Gunnars Heiðars en Gunnar Heiðar er á mála hjá danska félaginu Esbjerg. N1 deild karla Akureyri-HK 27-26 (16-16) Mörk Akureyrar (skot): Oddur Grétarsson 6 (7), Jónatan Magnússon 5 (8/1), Árni Þór Sigtryggs son 5 (13), Andri Snær Stefánsson 4/1 (6), Hörður F. Sigþórsson 3 (3), Heimir Örn Árnason 3 (7), Guðmundur H. Helgason 1 (2). Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 17 (43) 40% Mörk HK: Valdimar Þórsson 8/4 (16), Ólafur Víðir Ólafsson 7/1 (9), Atli Ingólfsson 5 (7), Sverrir Hermannsson 3 (8/1), Vilhelm Gauti Bergsveins son 2 (5), Hákon Hermannsson Bridde 1 (3), Atli Bachmann 1 (2), Ragnar Hjaltested 0 (5). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16 (43) 37% N1-deild kvenna Valur-Fram 21-21 (11-10) Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdóttir 4 (8), Hrafnhildur Skúladóttir 4/1 (11/3), Ágústa Edda Björnsdóttir 3 (7), Katrín Andrésdóttir 3 (7/1), Hildigunnur Einarsdóttir 2 (2), Anna Úrsúla Guð mundsdóttir 2 (3), Íris Ásta Pétursdóttir 2 (5). Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 16 (43%) Mörk Fram (skot):Karen Knútsdóttir 5/3 (13/4), Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 4 (6), Stella Sigurð ardóttir 4/1 (14/2), Pavla Nevarilova 2 (2), Ásta Birna Gunnarsdóttir 2 (3), Hildur Þorgeirsdóttir 2 (3), Marthe Sördal 2 (3). Varin skot: Írís Björk Símonard. 25/1 (53%). Iceland Express kvenna Keflavík-Hamar 72-53 (22-26) Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 23, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 15, Kristi Smith 13, Marín Rós Karlsdóttir 7, Svava Ósk Stefánsdóttir 6, Rannveig Randversdóttir 4, Hrönn Þorgríms dóttir 2, Sigrún Albertsdóttir 2. Stig Hamars: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19, Koren Schram 14, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Fanney Lind Guðmundsdóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Jenný Harðardóttir 2, Hafrún Hálfdánardóttir 1. Grindavík-Haukar 95-80 (52-36) Atkvæðamestar: Michele DeVault 26 (11 frák.), Íris Sverrisdóttir 22 (9 fráköst, 6 stoðsendingar), Petrúnella Skúladóttir 21 - Heather Ezell 37, Telma Björk Fjalarsdóttir 17. Snæfell-Valur 73-52 (34-21) Atkvæðamestar: Kristen Green 21 (12 frák., 6 stoðs.), Gunnhildur Gunnarsdóttir 12 (7 stoðs.) - Birna Eiríksdóttir 16, Hanna Hálfdanardóttir 12, . KR-Njarðvík 82-58 (39-28) Meistaradeildin: A-RIÐILL Bayern Munich-Maccabi Haifa 1-0 1-0 Ivica Olic (62.). Bordeaux-Juventus 2-0 1-0 Fernando (54.), 2-0 Marouane Chamakh (90.) Stigin: Bordeaux 13, Juventus 8, Bayern Munich 7, Maccabi Haifa 0. B-RIÐILL Man Utd v Besiktas 0-1 0-1 Rodrigo Tello (20.). CSKA Moskva-Wolfsburg 2-1 0-1 Edin Dzeko (19.), 1-1 Tomas Necid (58.), 2-1 Milos Krasic (66.). Stigin: Manchester United 10, Wolfsburg 7, CSKA Moskva 7, Besiktas 4. C-RIÐILL AC Milan-Marseille 1-1 1-0 Mario Borriello (10.), 1-1 Lucho González(16.) Real Madrid-FC Zurich 1-0 1-0 Gonzalo Higuain (21.) Stigin: Real Madrid 10, AC Milan 8, Marseille 7, FC Zurich 3. D-RIÐILL FC Porto-Chelsea 0-1 0-1 Nicolas Anelka (69.). Apoel Nicosia-Atletico Madrid 1-1 1-0 Nenad Mirosavljevic (5.), 1-1 Simao Sabrosa (62.) Stigin: Chelsea 13, Porto 9, Atletico Madrid 3, Apoel Nicosia 2. Enska úrvalsdeildin: Hull-Everton 3-2 1-0 Stephen Hunt (9.), 2-0 Andy Dawson (20.), 3-0 Dean Marney (28.) 3-1 Sjálfsmark (49.), 3-2 Louis Saha (64.), Fulham-Blackburn 3-0 1-0 Erik Nevland (43.). 2-0 Clint Dempsay (67.), 3-0 Dempsay (88.) ÚRSLIT Í GÆR KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur unnu sinn fjórða leik í röð þegar liðið vann 19 stiga sigur á Hamar, 72- 53, í kvennakörfunni í gærkvöldi. Keflavíkurkonur létu ekki slæma byrjun koma í veg fyrir að þær héldu sigurgöngu sinni áfram. Hamar komst í 24-12 og var 26-22 yfir í hálfleik. Frábær sprettur í þriðja leik- hluta breytti hinsvegar öllu, Keflavíkurliðið skoraði 14 stig í röð og breytti stöðunni úr 26-35 í 40-35 á rúmum fimm mínútum. Keflavík kláraði síðan leikinn með sannfærandi hætti. Brynd- ís Guðmundsdóttir átti enn einn stórleikinn með Keflavíkurliðinu en liðið hefur unnið 4 af 5 leikjum sínum síðan hún kom inn í liðið. Tap Hamars þýddi að KR- konur juku forskot sitt í sex stig eftir áttunda sigur sinn í röð þegar liðið vann nýliða Njarð- víkur. Grindavík vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið vann Íslandsmeistara Hauka sannfær- andi og Snæfell vann síðan fyrsta sigur sinn í meira en mánuð þegar liðið vann Kanalaust Vals- liðið með 21 stigs mun. - óój Iceland Express kvenna: Keflavík komið á mikið flug 23 STIG Bryndís Guðmundsdóttir var góð hjá Keflavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Valur og Fram gerðu jafntefli, 21-21, í miklum baráttu- leik í N1-deild kvenna í handbolta í gærkvöldi. Einar Jónsson, þjálfari Fram, var svekktur í leikslok yfir að taka ekki öll stigin. „Ég hefði nú viljað taka bæði stigin hér í kvöld. Þetta var samt eiginlega alveg dæmigerður leikur á milli Vals og Fram þar sem liðin skiptast á að eiga góða leikkafla. Liðin eru bæði mjög hröð og eru fljót að refsa og þetta verður mjög kaflaskipt og það er það skemmti- lega við handboltann að maður veit aldrei hverju maður á von á,“ sagði Einar. Gestirnir í Fram mættu betur stemmdir til leiks í vægast sagt kaflaskiptum fyrri hálfleik og komust fljótlega í 1-5 forystu. Það reyndist hins vegar skammgóður vermir því Valsstúlkur hrukku þá í gang og skoruðu átta mörk í röð og breyttu stöðunni í 9-5. Markvörð- urinn Íris Björk Símonardóttir sá hins vegar til þess að Fram náði að klóra sig aftur inn í leikinn en hún varði 18 skot í skrautlegum fyrri hálfleiknum. Staðan var 11-10 Val í vil þegar hálfleiksflautan gall í miklum baráttuleik eins og gjarn- an tíðkast þegar þessi lið mætast. Síðari hálfleikurinn var mjög jafn og spennandi en Fram var alltaf skrefinu á undan og stað- an var 17-19 þegar um tíu mínútur voru eftir af leik. Munurinn var enn tvö mörk þegar fimm mínútur voru eftir á leikklukkunni en þá fylgdu tvö mörk í röð hjá Val. Lokamínúturn- ar voru æsispennandi. Hildur Þorgeirsdóttir kom Fram í 20-21 og gestirnir í fínni stöðu til þess að hirða þau stig sem í boði voru en Kristín Guðmundsdóttir var á öðru máli og jafnaði leikinn 21-21 og það reyndist niðurstaðan. Valur er enn taplaus í deildinni og aðeins stigi á eftir toppliði Stjörn- unnar og á leik til góða og Stefán Arnarson, þjálfari Vals, var því ágætlega sáttur í leikslok. „Við tökum það frá þessum leik að við erum enn þá taplaus. Byrj- unin var náttúrulega skelfileg hjá okkur en við náðum að svara því eftir gott leikhlé. Ég vissi annars alltaf að þetta yrði jafn leikur og mér fannst lið mitt leggja sig mjög mikið fram, sérstaklega á stórum leikköflum í síðari hálfleik þegar við vorum manni færri. Ég hefði annars vilj- að fá fleiri mörk úr hraðaupphlaup- um og við þurfum að vinna betur í því,“ sagði Stefán að lokum. - óþ Erkifjendurnir Valur og Fram gerðu jafntefli í baráttuleik í N1-deild kvenna í handbolta í gærkvöldi: Jafntefli í spennandi Reykjavíkurslag HART Á TEKIST Stella Sigurðardóttir fær hér óblíðar móttökur hjá Valsstúlkum í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Enn og aftur bauð Akureyri upp á spennandi leik á heimavelli, nú gegn HK í gær. Og enn og aftur var það óþarfi hjá liðinu sem leiddi með fjórum mörkum þegar tíu mínútur lifðu leiks. Liðið var heppið, HK jafnaði og hefði getað komist yfir, gestirnir skutu síðan í stöngina, stöngina og út og skoruðu síðan um leið og lokaflautan gall en markið var ekki dæmt gilt. „Við erum að bjóða upp á mestu spennuleikina hérna hvað eftir annað án þess að þurfa það. Við erum með leikinn í höndunum þegar það eru tíu mínútur eftir en við urðum að hafa spennu í þessu. Ég efast ekki um að við séum lið fólksins, þeir sem mættu núna mæta líka næst. Þetta er ekki fyrir hjartveika,“ sagði Rúnar Sigtryggs- son, glaðbeittur þjálfari Akureyrar eftir leikinn. HK byrjaði betur, komst í 3-7 en þá skoraði Akureyri fimm í röð og komst yfir. Jafnt var í hálfleik 16-16 en Akureyri var betra liðið fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik. Liðið var svo einfaldlega heppið að landa sigri. „Þegar það er stutt eftir ætlum við að fara að verja forskotið sem við erum búnir að vinna okkur inn og við eigum skilið. Á sama tíma taka þeir sénsa og ná að komast inn í leikinn. Á meðan hættum við að spila okkar leik,“ sagði Rúnar sem var augljóslega létt eftir leikinn. Kollegi hans hjá HK, Gunnar Magnússon, var að vonum svekktur eftir leik en hrósaði sínum mönnum fyrir góðan karakter. „Þetta er bara dæmigert fyrir það að það er ekki alveg allt að ganga upp hjá okkur eins og staðan er í dag. Ég er ánægður með varnarleikinn og Sveinbjörn var góður fyrir aftan. Sóknarleikurinn var ekkert frábær, við eigum aðeins inni þar, en ég er engu að síður ánægður með karakterinn í liðinu. Baráttan var alveg til fyrirmyndar og við gáfumst aldrei upp. Ég verð að hrósa strákunum fyrir þennan leik,“ sagði Gunnar. „Að mínu mati hefði jafntefli verið sanngjarnt en engu að síður endar þetta svona. Við fáum á okkur tvær mínútur þegar það eru tvær mínútur eftir fyrir kjaft sem ég get bara ekki útskýrt. Það er óafsakanlegt og algjört lykildæmi í þessum leik, svo stórt að við réðum bara ekki við það. Það er bara staðreynd.“ AKUREYRALIÐIÐ Í N-1 DEILD KARLA Í HANDBOLTA: VANN NAUMAN 27-26 SIGUR Á HK Í FRÁBÆRUM LEIK Í GÆR Leikir Akureyringa eru ekki fyrir hjartveika FÓTBOLTI Ekkert lið náði að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum þegar næst síðasta umferðin fór fram í riðlum A til D í Meistara- deildinni í fótbolta í gær. Juventus, Wolfsburg, Real Madrid og AC Milan áttu öll möguleika á að tryggja sig áfram en þurfa þess í stað að bíða þangað til í síðustu umferð til þess að tryggja sér sæti í hópi sextán bestu lið Evrópu. Bayern München vann sér inn hreinan úrslitaleik á móti Juventus eftir 1-0 sigur á Maccabi Haifa. Juventus hefði getað tryggt sig áfram en tapaði hins vegar 2-0 á útivelli á móti Bordeaux. Franska liðið tryggði sér með því sigur í riðlinum. Sigur Bayern var ekki sannfærandi og liðið þarf að spila betur í lokaumferðinni þar sem þýska liðið mætir Juventus á Ítalíu. AC Milan slapp á sama tíma með skrekkinn á móti franska liðinu Marseille og er í ágætum málum eftir 1-1 jafntefli á San Siro. Mars- eille fékk nokkur góð færi til þess að tryggja sér sigurinn en þarf nú annaðhvort að vinna Real með meira en fjórum mörkum eða treysta á það að AC Milan takist ekki að vinna Zürich. Real Madrid vann 1-0 sigur á FC Zürich og er með tveggja stiga for- skot á Milan fyrir lokaumferðina. Nicolas Anelka tryggði Chelsea 1-0 útisigur á Porto og um leið sigurinn í D-riðlinuum. Atlet- ico Madrid náði aðeins jafntefli á Kýpur. Það urðu mjög óvænt úrslit á Old Trafford þegar Manchester Unit- ed tapaði sínum fyrsta heimaleik í keppninni í fjögur ár. Sir Alex Fergusson gerði átta breytingar á liði Manchester Unit- ed sem vann Everton í deildinni á sunnudaginn og telfdi fram hálf- gerðu varaliði á móti Besiktas. Það nýttu Tyrkirnir í Besiktas sér og unnu 1-0 sigur. United-liðið hefur þar með lent í vandræðum í tveimur síðustu heimaleikjum sínum í keppninni og liðinu mistókst að tryggja sér sigurinn í riðlinum. Manchester var fyrir leikinn búið að spila 23 heimaleiki í röð í Meistaradeild- inni án Það verður mikil spenna í loka- umferðinni, bæði um hvaða lið fylgir United inn í 16 liða úrslit- in en einnig um hvaða lið vinnur riðilinn. Wolfsburg tapaði fyrir CSKA Moskvu og liðin eru þar með jöfn að stigum. Þýska liðið fær þá topp- liðið Manchester í heimsókn. Sigur Wolfsburg myndi ekki aðeins tryggja liðinu sæti í hópi sextán bestu heldur myndi þýska liðið þá einnig tryggja sér sigur í riðlin- um vinni liðið leikinn með tveggja marka mun. ooj@frettabladid.is Bayern München enn á lífi AC Milan slapp með skrekkinn á heimavelli á móti Marseille og er í ágætum málum. Chelsea tryggði sér sigur í sínum riðli en Manchester United tókst það ekki þar sem liðið tapaði fyrir Besiktas á Old Trafford. MIKILVÆGT Leikmenn Bayern München unnu mikilvægan sigur á Maccabi Haifa í gær og eiga því enn möguleika á sæti í sextán liða úrslitum. MYND/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.