Veðrið - 01.09.1963, Side 13
Um miðjan mánuðinn barst hafís upp að Vestfjörðum, en hvarf von bráðar.
Júli. I viku var ýmist hægviðri eða vestan-gola. Oft var sól, en stundum
jioka, einkum á Vesturlandi.
Áttunda júlí brá til norðanáttar, sem hélzt að kalla óslitin til 26. Þennan
tíma var kalsaveður og rigning eða jafnvel slydda fyrir norðan, en oft bjart og
góðir þurrkar suðvestan til á landinu.
Eftir þetta var suðlæg átt, vætusamt á Suðurlandi, en sól flesta daga fyrir
norðan.
Agúst. Fyrstu fimm dagana var veðrið svipað og síðustu dagana í júlí, en síðan
komu nokkrir dagar með hægri norðlægri átt, sól vestan lands, en þokulofti
norðaustan til á landinu.
Þann þrettánda gerði mikla norðan rigningu og kólnaði fyrir norðan, svo að
snjóaði niður í miðjar hlíðar. Eftir miðjan mánuð var oftast austan hægviðri
og aðgerðarlaust veður. Bezt var á Vesturlandi, en sól og dálítil úrkoma var til
skiptis á Suður- og Norðurlandi. Síðustu þrjá dagana var suðvestan gola með,
skúrum vestan lands og sunnan, en sól og hlýju á Norður- og Austurlandi.
Sumarið í heild var heldur kalt, einkum seinni hlutinn og norðvestan til á
landinu. í Strandasýslu var þannig mesta ótíð, þrálátar norðanáttir.
Næturfrost byrjuðu snemma. Þann tíunda júlí varð t. d. eins stigs frost á
Hornbjargsvita, þann tuttugasta varð eins stigs frost á Þingvöllum, tuttugasta
og annan komst frostið í 3 stig á Staðarhóli í Aðaldal og tuttugasta og áttunda
var fimm stiga frost á Grímsstöðum. Hefur á þessu tímabili fallið eða skemmzt
kartöflugras víða á landinu.
Að lokum kemur svo yfirlit yfir meðalhita, úrkomumagn og sólskinsstundir á
jrremur stöðum í sumar.
Hiti, ° C.
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1931—1960)
Apríl Maí Júní Júlí Ágúst
Reykjavík 4.1 5.1 10.0 10.1 10.0'
(3.1) (6.9) (9.5) (11.2) (10.8>
Akureyri 1.9 4.3 10.1 9.1 8.5
(1.7) (6.3) (9.3) (10.9) (10.3>
Hólar 3.4 6.0 9.9 9.8 9.7
(3.0) (6.5) (9.3) (10.9) (10.4),
Úrkoma, mm.
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1931- -1960)
Apríl Maí Júní Júlí Ágúst.
Reykjavík 51 43 31 40 10.
(53) (42) (41) (48) (66>
Akureyri 47 39 34 35 10,
(32) (15) (22) (35) (39))
Hólar 167 234 64 185 39’
(108) (90) (83) (93) (116>
VEÐRIÐ — 53;