Veðrið - 01.09.1963, Síða 20

Veðrið - 01.09.1963, Síða 20
BREF UR ORÆFUM Eitt af hlutverkum íslenzkra veðurathugunarmanna er að skrá og senda Veður- stofunni skýrslur um óvenjuleg náttúrufyrirbæri og tjón af völdum veðurs. í bréfi því, sem hér fer á eftir, segir Helgi Arason, bóndi og veðurathugunar- maður á Fagurhólsmýri, lrá mjög óvenjulegu stórviðri á Svínafelli í Öræfum f miðjum janúarmánuði 1962. Einnig er hér birt bréf um veður þetta frá Magnúsi Lárussyni, bónda á Svínafelli, til Helga. Helgi getur þess, að mesti vindlrraði, sem hann hafi mælt í veðrinu, hafi verið 57 hnútar, en vafalaust er, að miklu livassara hefur verið á Svínafelli, þegar hvassast var og grjótflugið sem mest. Stórviðrið átti rætur sínar að rekja til mjög djúprar lægðar suður af landinu, svo sem meðfylgjandi veðurkort frá kl. 5 að morgni 16. janúar 1962 sýnir. Loft- þrýstingur í lægðarmiðjunni mun þá hafa verið rúmlega 940 mb. F. H. S. Bré£ Helga Arasonar til Veðurstofunnar Fagurhólsmýri 3. febrúar 1962. Veðurstofan Reykjavík. Hér var stormasöm NA-átt dagana 13.—16. janúar sl. Hvassast var hér nóttina 15—16/1. Kl. 06.10 þann sextánda mældist vindhraðinn hér 57 hnútar, og má vera að nokkru hafi verið hvessra áður. Um alla sveit varð mjög hvasst, en þó varð ekki ofsaveður á Kvískerjum. Engir skaðar urðu nema í Skaftafelli og Svínafelli. í Skaftafelli hvolfdist nokkuð þung dráttavélarkerra, en mun þó 60 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.