Vikan - 05.01.1961, Blaðsíða 25
nmn
Italska sniðið: Stuttur jakki og þröngar bux-
ur. Það átti að verða lausn á vandamálinu,
en útkoman varð sú, að það klæðir örfáa.
Karlmannafatatízkan anno 1800. Þarna er einhver lorda-stíll, sem nú er fyrir bí. Annars finnst
okkur nú, að þess háttar fatnaður mundi vera of kvenlegur, en um aldamótin 1800 var ekkert við
hann, sem minnti á kvenfatnað.
Herra Grámann anno 1961.
Svipuð efni, sömu sniðin ára-
tug eftir áratug, og fatnaður-
inn er ekki einu sinni þægi-
legur. Til hvers er þá haldið
dauðahaldi í hann?
VIKAN 13
Smóking og kjólföt eru fallegir hátíðabúningar, enda
þótt þar sé ekki hugsað um vellíðan fremur en ella í
karlmannafatnaði. Hér er smókíng með venjulegu sniði,
en boðangarnir eru „sanseraðir“. Einnig fylgir búningn-
um breitt belti og slaufa, en þannig sett eru mikið í tízku
núna og hafa sigrast á tepruskapnum.
liöndótt fataefni hafa orðið mjög vinsæl á árinu
sem leið, og þarf ekki annað en koma til klæð-
skeranna til að sannfærast um það. Þessi herra
er í fötum úr röndóttu, fremur þykku ullarefni.
Vestið er drapplitað og hatturinn er úr grófum
flóka með litlum börðum.