Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 60
vín&veisla2
Ágúst Reynisson hefur verið í veitingageiranum í mörg ár og fylgst með þróun vín-
menningarinnar hér landi, sem
hann segir hafa breyst mikið.
Sjálfur er hann mikil áhugamað-
ur og hefur meðal annars skoðað
nokkrar vínekrur.
„Það er mikil upplifun að heim-
sækja vínekru og sjá hvern-
ig framleiðslan fer fram,“ segir
Ágúst Reynisson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri veitingastaðar-
ins Fiskmarkaðarins, sem hefur
heimsótt nokkrar vínekrur bæði
í gamla og nýja heiminum eins
og þeir eru gjarnan nefndir í vín-
heiminum. „Ég hef heimsótt vín-
ekrur í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um og svo í Bordeaux í Frakklandi,
Rioja á Spáni, og svo Jerez á suður-
Spáni.“
Ágúst segir heimsóknina til
Bordeaux eftirminnilegasta en
þar gisti hann á herrasetri. „Ég
skoðaði framleiðsluna frá
a-ö, smakkaði á þrúg-
unum og fann hvern-
ig þær brögðuðust, en
maður finnur mun á því
bæði á milli árstíma og
svo á milli svæða. Vínberin
sem fara í vínin eru allt öðruvísi
en þau sem við kaupum út úr búð.
Þau eru ekki beinlínis vond en þau
eru ekki góð heldur,“ segir Ágúst
og hlær.
„Það var líka mikil upplifun að
sjá framleiðsluferlið, þegar vínið
var komið á eikartunnur, og svo
tappað á flöskur. Í vínkjallaran-
um voru áratugagamlar flösk-
ur og jafnvel þótt ég fengi ekki að
smakka úr þeim fengum við að
kvöldi dags að bragða á víninu sem
framleitt var á þessari vínekru við
gómsætan kvöldverð.“
Ágúst segir að vínin frá gamla
heiminum eins og Frakklandi, Ít-
alíu og Spáni séu ólík þeim frá nýja
heiminum eins og Bandaríkjun-
um og Ástralíu. „Frakkar nota eik-
ar tunnur enn mikið en Bandaríkja-
menn nota stáltanka, sem hefur
áhrif á bragðið. Þá er jarðveg-
urinn líka ólíkur svo aðeins nokk-
uð sé nefnt. Þetta er heil fræði-
grein og hægt að sökkva sér ofan
í hana,“ segir framkvæmdastjór-
inn. Hann segir áhuga Íslendinga
á vínum hafa aukist gríðarlega síð-
ustu tíu ár. „Áður var nánast bara
ein tegund sem fólk drakk með
mat en það var rósavínið Mateus.
Nú hefur fólk meiri þekkingu á
þrúgunum og getur oft valið vínið
út frá því.“
En hvernig vín ætti fólk að velja
með fiskréttum? „Margir telja að
það megi ekki drekka rauðvín með
fiski en það er rangt. Til eru létt
vín með góðri fyllingu sem henta
vel með þeim,“ segir hann og ít-
rekar að vínmenning landans sé að
breytast. „Það er stór hluti af góðri
máltíð að drekka góð vín, sem
passa vel með matnum. Margir eru
orðnir öruggir og geta pantað sjálf-
ir en síðan eru þjónarnir
vitaskuld til þess að
aðstoða við valið.“
Ágúst Reynisson hefur ferðast víða vegna áhugamálsins:
Skoðaði vínekrur í nýja
og gamla heiminum
VÍNÁHUGAMAÐUR Ágúst Reynisson hefur skoðað vínekrur víða í heiminum og smakkað á víni þar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UTAN ÚR heimi
vín&veisla fylgir laugardagsblaði Fréttablaðsins l Útgefandi: 365 miðlar l Forsíðumynd:
NordicPhotos/Getty
Árlega kemur út fjöldinn allur af bókum um vín, enda er áhuginn mikill svo að segja um allan heim. Hver um sig eru þessar bækur
stílaðar inn á fólk sem er misvel að sér um vínsins lystisemdir, en
eiga þó flestar sameiginlegt að í þeim er tilurð og framleiðsla vína
rakin, hvernig best sé að geyma og bera þau fram og borin saman
ýmis vín frá ólíkum vínræktarsvæðum, svo fátt eitt sé nefnt.
Sú bók sem einna mestra vinsælda hefur notið í þessum geira er
The World Atlas of Wine eftir breska OBE-orðuhafann Hugh John-
son. Sá hefur á yfir fjöru-
tíu ára ferli ritað fjölmargar
bækur um vín og er jafnan tal-
inn sá höfundur sem flestar
slíkar bækur hefur selt í heim-
inum í gegnum tíðina. Heims-
atlasinn um vín kom fyrst út
árið 1971 og nýjasta útgáfan,
sú sjötta í röðinni, var gefin
út fyrir tveimur árum. Síðan
2004 hefur annar OBE-orðu-
hafi, Jancis Robinson, sem
hefur meðal annars starfað við
ráðgjöf fyrir viðamikinn vín-
kjallara Elísabetar Bretlands-
drottningar, verið meðhöfund-
ur að bókunum.
Eins og áður sagði hafa bæk-
urnar notið mikilla vinsælda og víðs vegar hlotið frábæra dóma.
Meðal þeirra sem kunnu að meta bókina er gagnrýnandinn Ben Gil-
berti hjá Washington Post, sem sagði um fimmtu útgáfuna að sam-
starf þeirra Johnsons og Robinsons væri það besta milli tveggja
Breta síðan Lennon og McCartney voru og hétu.
Besta samstarf tveggja Breta
síðan Lennon og McCartney
lesningGÓÐ
GRÆNLENSKT VERÐLAUNAHÓTEL
Hotel Arctic í Ilulissat á Grænlandi hreppti
verðlaun í ár sem kennd eru við nýja norræna
matargerðarlist. Þetta kemur fram í frétt á vef
Matvælastofnunar.
Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru
veitt, og hlýtur vinningshafinn heiðursskjal og
peningaverðlaun sem nema 100.000 dönskum
krónum. Verðlaunin eru veitt af áætlun Nor-
rænu ráðherranefndarinnar um nýja norræna
matargerðarlist. Sjö voru tilnefndir til verð-
launanna í ár, en þema ársins var menning og
hönnun tengd við matargerð og matarmenn-
ingu.
Í fréttinni kemur fram að Hotel Arctic hafi
í fjölda ára samþætt list og menningu í þeirri
upplifun sem hótelið vill veita gestum sínum.
Matseðill veitingastaðarins einkennist af græn-
lensku hráefni, innréttingar eru norræn hönnun
og listaverkin grænlensk. Auk þess er boðið
upp á grænlenska tónlist og dans.
Ágúst segir rangt
að rauðvín megi
ekki drekka með
fisk. Það sé bara
spurning um að velja
rétta vínið.