Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 63

Fréttablaðið - 12.12.2009, Síða 63
vín&veisla 11 Tilnefnd til gourmand- verðlaunanna Maturinn hennar Nönnu er tilnefnd til Gourmand World Cookbook Awards 2009 í tveimur flokkum, Best Innovative Cookbook og Best Cookbook Illustrations. Enginn hvítur sykur, ekkert hvítt hveiti og allar marineringar heimalagaðar. Við sýnum og sönnum að hollur matur er líka gómsætur matur! Ekki er svo langt síðan jólabjór varð vinsæll á Íslandi en ástæð-una má sjálfsagt rekja til þess hversu seint bjórinn almennt kemur til landsins; ekki fyrr en árið 1989. Hann hefur eins og annað þurft þennan tíma til að ná fótfestu. Fyrst um sinn voru menn sólgnir í lagerbjór en í framhaldi af því fóru þeir að prófa sig áfram, flytja inn ýmsar tegundir og svo framleiða í beinu framhaldi,“ segir Dominique Pledel Jónsson, eigandi Vínskólans. Dominique segir jólabjórinn til marks um þessa þróun og bætir við að þessi siður berist hingað frá Danmörku líkt og jólahlaðborðið danska. Þar er mjög algengt að framleiða bjór eftir árstíðum, eins og fyrir jólin, þegar matarvenjur taka dálitlum breytingum,“ segir hún og tekur fram að jólabjórinn sé meiri matarbjór en lagerbjór. „Bragð hins fyrrnefnda er pínulítið bragðmeira og beiskara.“ Sérviska bruggmeistarans Dominique segir að jafnframt megi líta á jólabjór sem tjáningu á ákveðinni sérvisku bruggmeistarans. „Meðal annars vegna þess að þessir litlu framleiðendur, eða „micro“-framleiðendur á Íslandi og líka í Danmörku og á Englandi, geta eiginlega gert það sem þeim dettur í hug. Sem dæmi um það nota þeir í Ölfusi gám undir bruggfram- leiðsluna sem undir venjulegum kringumstæðum fer í að reykja hangikjöt. Það gefur jólabjórn- um þaðan ákveðið kryddbragð.“ Hún bætir við að stórir fram- leiðendur séu þó ekki síður nýj- ungagjarnir. „Þeir eru vissulega bundnir öðrum lögmálum, en til dæmis Ölgerðin framleiðir bjór sem ber með sér skemmtilegan keim af malti og appelsíni.“ Dominique bendir á alltaf sé að bætast við bjórflóru lands- manna, til marks um það séu nú um sextán jólabjórar í Vínbúðinni, bæði innlend framleiðsla og erlend. „Stóru brugghúsin eins og Ölgerðin og Vífilfell eru með nokkrar gerð- ir bjóra en bjórarnir frá minni brugghúsunum eins og Skjálfti frá Ölv- isholti á Suðurlandi, Jökull frá verksmiðjunni Miði í Stykkishólmi og Kaldi frá Bruggsmiðjunni Árskógssandi, sem er elst þeirra, njóta ekki minni vinsælda. Enda eru þeir flokkaðir sem sælkerabjórar. Jólabjór- inn er því orðinn hluti af mat og drykk Íslendinga á aðventunni og að- eins eitt merki um þær breytingar sem hafa átt sér stað á vínmenn- ingu hér. Menn drekka nú bæði minna magn af víni en áður og frekar í þeim tilgangi að njóta þess með mat heldur en að nota það sem vímu- gjafa.“ Í matargerð Aðspurð segir Dominique að jólabjórinn megi hæglega nota í matar- gerð. „Til dæmis hefur Friðrik V. soðið kjúkling í jólabjór og svo hefur Hákon notað bjórfroðu með rétti þar sem bygg kemur við sögu en bygg er auðvitað grunnurinn að maltbjór.“ En hvernig er að drekka jólabjórinn án þess að matast með? „Það fer nú bara eftir því hversu kröfuharða bragðlauka fólk hefur en bjór- inn er ágætur einn og sér. Bragð hans magnast hins vegar um helm- ing með rétta matnum, eins og til dæmis hangikjöti,“ segir Dominique og bætir við að jólabjór sé yfirleitt betri við stofuhita á meðan flestum þyki lagerbjór góður ískaldur. „Annars er enginn munur hvað drykkju viðkemur,“ segir hún og brosir. Magnast með matnum SÉRVISKA Dominique segir að líta megi á jólabjór sem tjáningu á ákveðinni sérvisku bruggmeistarans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON N O R D IC P H O TO S /G E TT Y MEÐ STEIKINNI Dominique segir bragð bjórsins magnast með tilteknum mat.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.