Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 100
vín&veisla18
Peter Lehmann Wildcard Shiraz
Kirsuberjarautt, meðal fylling, þurrt, fersk sýra, lítil tannin.
Dökk ber, eucalyptus, eik, barkarkrydd. 1.898 kr.
Jacob’s Creek Shiraz - Cabernet Sauvignon
Plómur og sólber áberandi ásamt kryddi og vanillu.
Aðgengilegt með smá sætu, mildri eik og afar góðu
jafnvægi. Eitt vinsælasta vín frá Ástralíu hérlendis.
Gott eitt og sér en frábært með fjölbreyttum mat.
Jacob’s Creek Chardonnay
Melóna í bland við sítrusávexti og þægileg
vanilluangan. Frískandi sítrus sem tvinnast við ávexti eins og melónu, an-
anas og jafnvel banana. Mjúkt og þægilegt eftirbragð. Gott eitt og sér en
hentar sérstaklega vel með sjávarréttum af ýmsu tagi. Silungur og bleikja
passa einnig vel með sem og salöt og kjúklingur. 1.899 kr.
Jacobs Creek Sparkling
Chardonnay - Pinot Noir
Opið vín þar sem sítrus er áberandi í bland við ristaðar hnetur. Ávaxta-
ríkt og bragðmikið freyðivín. Skemmtilegt vín sem passar við flest tæki-
færi hvort sem það er brúðkaup, stórafmæli eða á venjulegum degi.
1.999 kr.
Peter Lehmann Cabernet Sauvignon
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, ferskt, miðlungs
tannín. Dökk ber, lyng, jörð, sólber. 2.599 kr.
Peter Lehmann Wildcard Chardonnay
Ljóssítrónugult. Meðalfylling, þurrt, ferskt. Sítrus, stjörnuá-
vöxtur, eplakjarni. Kr. 1.598.-
ÁSTRALÍA5 RAUÐVÍN
5 HVÍTVÍN
Framleiðsla á víni er ung at-
vinnugrein í Ástralíu enda ekki
mörg hundruð ár
síðan landið var
numið. Fyrstu
heimildir um
vínframleiðslu
má rekja til lok 18.
aldar en þær gengu
ekki sem skyldi. Það
var ekki fyrr en um 1820 sem
það tókst. Víngerðarmaðurinn
Gregory Blaxland var sá fyrsti
sem sem flutti út ástralskt vín og
hlaut verðlaun fyrir vínið. Í fyrstu
voru innfluttar sérvaldar franskar
og spænskar þrúgur en smám
saman festu sig í sessi vínekrur
Ástralíu, eins og Barrosa Valley
sem varð þekkt vínhérað. Það
tók sinn tíma því fyrstu áströlsku
víngerðarmennirnir þurftu að
læra inn á loftslagið í Ástralíu,
sem var þeim framandi. Í dag er
ástralski víniðnaðurinn sá fjórði
stærsti í heiminum og flutt eru
út yfir 400 milljónir lítra á ári, þar
af töluvert til gamla heimsins og
sterkra vínlanda eins og Frakk-
lands, Ítalíu og Spánar.
Ungur víniðnaður í Ástralíu
Barossa-dalurinn í Suður-Ástralíu er stórt vínræktar-svæði sem lokkar til sín
ferðamenn alls staðar að úr heim-
inum. Dalurinn er mótaður af
Nyrðra-Parafljóti og er þrettán
kílómetra langur og fjórtán kíló-
metra breiður. Dalurinn dregur
heiti sitt af bardaga sem átti sér
stað milli Breta og Frakka árið
1837 sem lauk með sigri Breta.
Sá bardagi var kallaður Orrustan
um Barrosa en þegar átti að skrá
opinberlega nafn dalsins breytti
ritarinn óvart Barrosa í Barossa
og hefur sú stafsetningarvilla
fengið að halda sér.
Árið 1847 kom ungur bæ-
verskur innflytjandi í dalinn og
setti niður vínvið við lítinn læk
sem kallaður var Jakobslækur,
eða Jacob‘s Creek. Ungi maður-
inn hét Johann Gramp og honum
þótt fátt jafn skemmtilegt og að
rækta plöntur. Viðhorf hans til
vínræktar var einfalt, hann vildi
gera ferskt og auðdrekkanlegt vín
með sterkum ávaxtakeim, sem
ekki þyrfti að geyma í kjöllurum
í mörg ár.
Vínframleiðandinn Jacob‘s
Creek hefur haldið tryggð við upp-
runalega hugsjón Johanns Gramp.
Vín Jacob‘s Creek eru góður vitnis-
burður um það en framleiddar eru
nokkrar tegundir úr vínþrúgunum
Chardonnay, Pinot Noir, Riesling,
Shiraz og Cabernet Sauvignon.
Þess má geta að Jacob‘s Creek var
í fararbroddi þeirra áströlsku vína
sem tóku að sækja út fyrir eigin
heimsálfu á 7. og 8. áratugnum.
Jacob‘s Creek byrjaði smátt í Ástralíu:
Fann upp einfalda
speki við lítinn læk
VINSÆLL VIÐKOMUSTAÐUR Tré með skófum í forgrunni ástralskrar vínekru, en vínekrur þar í landi laða til sín ferðamenn.
Jinda-Lee Cabernet Sauvignon
Dökkrúbínrautt að lit, angan af kirsuberjum, sólberj-
um, bláberjum og fjólum. Í bragði hefur vínið fínlega
blöndu af vanillu og súkkulaði. Mjúk fylling, sætuvott-
ur, fersk sýra, lítil tannín, höfugt. Dökk ber. Kröft-
ugt. Einnig kemur vel fram flauelsmjúkt og þrosk-
að tannin með plómum og góða samsetningu í
sýru. Fer vel með villibráð og rauðu kjöti eins og
lambi og naut, virkilega gott með bragðmiklum
ostum og súkkulaði. 1.698 kr.
Jinda-Lee Shiraz
Rúbínrautt að lit með ferskum litatónum, Shir-
az er fjörlegt vín með mikla angan af rauð-
um berjarunnum, sultaðir ávextir svo sem
brómber, kirsuber og rifsber ásamt lakkr-
ís og appelsínuberki. Í bragði hreinlega spring-
ur vínið í munninum þar sem finna má einn-
ig beikon og anís í viðbót við ávöxtinn. Gott vín
með villibráð með til dæmis rósmarín, fennel og
hvítlauk, nautakjöti og bragðmiklum kjötrétt-
um. Frábært með öndinni hvort heldur sem er
með orange-sósu eða soðsósu. Einnig gott
með bragðmiklum ostum. 1.698 kr.
Jacob´s Creek Riesling
Ferskur og blómlegur með sítrusvott. Frekar þurrt en jafnframt ávaxta-
ríkt vín, mjög aðlaðandi karakter með undirliggjandi lime og sítrus. Vín í
góðu jafnvægi með kraftmiklu og þægilegu eftirbragði.
Jinda-Lee Chardonnay
Dökkgylltur og tær með angan af nektarínum, perum og eplum sem
blandast við vanillu og ristaða eik. Tært bragðið einkennist af ferskjum,
nektarínum og sítrus ásamt smjörkenndri ristaðri vanillu. Ferskt ávaxt-
aríkt eftirbragðið fyllir munninn smjörkenndri vanillu. Passar með skel-
fisk, humar og kjúklingi. 1.598 kr. Áramót
Kemur út 29. desember
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Benedikt Freyr • Benediktj@365.is • Sími 5125411
Bjarni Þór • Bjarnithor@365.is • Sími 5125471
Hlynur Þór • hlynurs@365.is • Sími 5125439
Sigríður Dagný • sigridurdagny@365.is • Sími 5125462