Vikan - 24.08.1961, Blaðsíða 2
GLEYMINN GALDRAKARL
Fegurð hársins hefst með
Hvers vegna? Vegna þess, að með því að nota
White Rain verður hárið lifandi og blæfagurt. Þessi
silkimjúki vökvi er með lokkandi ilmi, gerir hárið
glitrandi, gefur því blæbrigði ... vekur hina duldu
fegurð þess. White Rain er framleitt á þrennan mis-
munandi hátt til þess að fegra sérhverja hárgerð —
ein þeirra liæfir einmitt yðar hári.
Perluhvítt fyrir venjulegt hár
Fölblátt fyrir þurrt hár
Bleikfölt fyrir feitt hár
White Rain fegrunar shampoo — hæfir öllu hári.
Töframaðurinn Truxa, sem einu
sinni var einn skemmtikraftanna á
kabarett hér í Austurbæjarbíó, kom
fram á skemmtun i Sviþjóð fyrir
nokkru. Meðal annars sýtndi hann
listir sinar í vasaþjófnaði. Að sjálf-
sögðu skilaði hann hlutunum aftur
til viðkomandi aðila. Sjálfsagt vegna
mikilla hita, láðist honum að láta
eitt fórnarlambanna hafa armbands-
úr sitt aftur. Eitt kvöld, er Truxa
sat makindalega við lestur á hótel-
herbergi því er hann bjó í, var barið
all harkalega að dyrum hjá honum.
Var þar kominn maðurinn, sem ekki
hafði fengið úrið sitt til baka, og
í fylgd með honum var þrekvaxinn
lögregluþjónn.
Maðurinn fékk úrið án nokkurra
málalenginga.
★
ÚLFARNIR HÉLDU SIG 1
BURTU:
Danska leikkonan Greta Thyssen
hefur oft átt í töluverðu basli við að
halda áleitnum náungum í hæfilegri
fjarlægð. Kvenlegur yndisþokki henn-
ar hefur að sjálfsögðu heillað margan,
að ég ekki mynnist á blaðamenn.
í vikDbfrjnn
Fyrir nokkru skrapp hún yfir til
Kaupmannahafnar, en þegar hún kom
aftur til Hollysvood og mætti þar I
samkvæmi, hafði hún meðferðis
hvorki meira né minna en hlébarða
í bandi!
★
Hljómsveitarstjóri einnar dans-
hljómsveitanna hér i bæ skrapp inn
í Vesturver um daginn. Að vanda
gekk hann að afgreiðslu Hljóðfæra-
verzlunar Sigríðar Helgadóttur, og
víkur sér að afgreiðslustúlkunni.
„Eigið þið til gítarstrengi?" Já, svar-
aði stúlkan, hvaða streng? „Já! Það
skiftir engu máli. Ég ætla bara að
skera ost með honum?“
★
JAPÖNSK SÁLFRÆÐI:
Frumburðurinn er yfirleitt sá gáf-
aðasti i barnahópnum, segja nútíma
sálfræðingar í Tokio. Þessi yfirlýsing
er byggð á stórkostlegum rannsókn-
um, sem sálfræðingar við Shizouka-
Háskólann hafa framkvæmt. 10.000
skólabörn voru rannsökuð í þessu
sambandi. Ennfremur uppgötvuðu
þeir, að röskustu börnin eru fædd í
marz, og börn fædd í febrúar og
janúar koma í annað og þriðja sæti.
Maí- og júni-börn hafa verst gáfna-
far, halda japönsku sálfræðingarnir
fram.
Það er tóm vitleysa. Ég veit þetta,
því ég er sjálfur fceddur í júní.
★
Lögregluþjónn einn í París fékk ný-
lega orðu fyrir góða frammistöðu
í stöðu sinni. Hann hafði nefnilega
sýnt sérlega hæfni í að finna stolna
bila .Nú er búið að loka hann bak við
lás og slá, og ástæðan . . . bílþjófnað-
ur. 1 ákærunni var hann sakaður um
að hafa ekið bílunum á afskekkta
staði, og síðan „fundið“ þá næsta
morgun og fengið orðu fyrir afrekið.
2 VIKAN