Vikan


Vikan - 24.08.1961, Side 10

Vikan - 24.08.1961, Side 10
LÍTIÐ PEÐ ÍSTÓRU TAFLI Karli fannst taskan dálítið skugga- leg og var að velta því fyrir sér, hvort nokkur tæki eftir þvi. Þegar vinir hans höfðu afhent honum hana fyrir stuttu (ásamt meðfylgjandi leiðarvísi) og hann hafði náð sér i leigubíl til að aka á flugvöllinn, var hann viss um, að bílstjórann grun- aði, að innihald töskunnar væri fimm hundruð gramma glas af heróíni. Það var miV!ð ^hættuspil að ferðast um með slíka hluti, — og honum fannst, að hann hlvti að draga dám af því. Á leiðinni reyndi hann að tel.ia sjálf- um sér trú um, að þessi ótti væri ástæðulaus, menn höfðu þó ekki röntgenaugu. Honum létti. þegar hann sá, að bílstiórinn sat áhyggju- laus við stýrið og flautaði lagstúf. Þegar þeir komu að flugstöðinni, greip Karl töskuna og flýtti sér út. Fyrst datt honum í hug að greiða bilstióranum óvenjulega háa þóknun í þakklætisskyni, en hætti við það, þegar hann minntist þess, að ein höf- uðreglan i þessum viðskiptum var að vekja sem minnsta eftirtekt, — og fékk honum bara 25 eent. Hann gekk að afgreiðsluborðinu til að láta skrá farangurinn, — þessa einu tösklu. Honum þótti mjög slæmt að þurfa að sleppa henni, en það var ekki um annað að ræða. Ef hann þrjózkaðist við, mundi það áreiðanlega vekja grun. Hann fór fram á ganginn og kveikti sér í sígarettu. Honum leið að sumu leyti betur, þegar hann var laus við töskuna, og fannst næstum því eins og hann bæri ekki ábyrgð á henni lengur. Fram að þessu hafði vinna hans aðallega verið i því fólgin að inn- heimta peninga fyrir félagið. Hann skildi ekki, hvers vegna honum hafði verið falið þetta hættulega starf, en að þeirra áliti var það vist ekki eins hættulegt og hann hélt. Hann þurfti ekki að gera annað en setjast inn I flugvélina, og þegar hún lenti I Chicago, átti hann að afhenda tösk- una tveimur mönnum, sem biðu hans þar, og fara síðan heim með næstu flugvél. Þetta var nú allt saman ágætt, — bara ef hann yrði ekki handtekinn, en á því var víst ekki mikil hætta. Ef til vill var þetta hið gullna tæki- færi. Hann hafði unnið fyrir þetta félag í tíu ár og aldrei fengið neitt almennilegt verkefni. Hann hafði allt- af verið trúr og iðinn, — það vissu hinir háu herrar vel, — og kannski var þetta nokkurs konar prófraun, og hann átti í vændum að hækka í tign, eftir að hafa verið léttadrengur hjá þeim í tíu ár. Hann sökkti sér niður í ljúfa framtiðardrauma um allt, sem þessi breyting gæti haft t för með sér: dýr föt, fína bíla, fagrar konur. virðingu starfsbræðranna. Hann hrökk upp úr þessum sælu- draum við það, að um það bil tíu lögregluþjónar komu inn i biðsalinn. Hann ætlaði að þjóta upp af legu- bekknum og hlaupast á brott, en sem betur fór, var hann svo felmtsfullur, að hann gat sig ekki hreyft. Þegar hann hugsaði sig betur um, sá hann, að lögregluþjónarnir gátu varla verið að leita hans. Hann reis á fætur og fór fram á ganginn til að athuga, hvað um væri að vera. Lögregluþjón- arnir stóðu við afgreiðsluborðið ásamt tveimur höfðinglegum, rosknum mönnum. — Hvað er um að vera? spurði Karl flugfreyju, sem hann mætti. — Eigið þér við lögregluna? sagði hún. — Þeir eru hérna vegna for- sætisráðherrans. Nú mundi Karl eftir því, að þessi erlendi stjórnmálamaður var i hring- ferð um landið. Hann hafði lesið i blaðinu, að hinn tigni gestur væri á leið til Chicago frá Washington, þar sem hann hafði leitað aðstoðar landi sínu, þar sem allt logaði í innan- landserjum. Það var auðséð, að hann ætlaði með sömu flugvél og Karl. Karl andvarpaði af feginleik og Hjónawornin: Sólbað í duftinn — Jón . . . — Já . . . —• Að þú skulir geta gert mér slíka skömm . . . — Hana-nú, — hvað hef ég nú gert af mér? — Gert af þér? Þú . . . þú hefur gert okkur bæði að athlægi, hvorki meira né minna. —- E'kki annað? — Ekki annað? Jæja, áttirðu kannski von á einhverju öðru? Nei, því miður er nú ekki sú i .iannrænan í þér. Þú dugir bara til að gera mér skömm með því að gera okkur bæði að at- hlægi, punktum basta . . . — Er það ekki líka hátt upp í þó nokkuð? • - Hcaitu að lesa þetta bölvað ekki sen blað, — og umfram allt, hættu að láta eins og þú sért upp yfir það hafinn að ræða þina eigin galla. — Er ekki nóg, að þú ræðir þá, og þar að auki er ekki svo oft, sem ég kem orði að, þeg- ar það umtalsefni ber á góma. —- Hættu að lesa þetta blað, segi ég . . . — Gerðu svo vel. — Ég? Heldurðu, að ég ætli að fara að lesa það? — Jæja, góða min, jæja ... Ef ég má ekki lesa það og þú vilt ekki lesa það, . . . til hvers erum við þá að kaupa það? — Jón . . . Manstu í Nauthólsvikinni í gær? — Ó, er það Það, heillin. Nú skil ég . . . En hvernig í ósköpunum á maður að geta stillt sig um að renna til þeirra augunum, þegar mað- ur hefur þær svona allt í kringum sig? — Veiztu, hvað Gugga sagði? — Æ-já, hún lá þarna rétt hjá okkur. Jú, ég fer svo sem nærri um, að hún hafi tekið eftir þvi, að ég skotraði augunum á þessa með jarpa, hrokkna hárið og gagnsæju brjóstahöldin, . . . enn nær um það, að hún hafi skilið augnaráðið, og þó næst um það, hvað hún hefur sagt . . . — Jæja, svo að þú gerir það? Og skammast þin ekki samt? — Nei, eiginlega ekki. Fyrst maður hefur þó að minnsta kosti einhvern tíma verið karlmað- ur, því skyldi maður þá . . . ? — Jón, á ég að segja þér, hvað hún sagði . . . Framhald á bls, 42. !□ VJKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.