Vikan - 31.08.1961, Side 2
Sírial «0^3142...
amtTitH_________
GOOD HOUSEKEEFDHi DISmUTE
ÍSVMKUÆNTÆWM
RIMJHD W HOMEr M VlUCItm
II «01 n (MIMMITI »11« IM
mmuin s»«m«k
CLOZONE er grófkornað þvottaefni
sem náð hefur miklum vinsældum hér
sem erlendis.
CLOZONE hefur hlotið viðurkenningu
sem úrvals framleiðsla.
CLOZONE er þvottaefnið sem leysir
vandann með ullarföt og viðkvæm efni.
CLOZONE fer vel með hendur yðar.
CLOZONE gerir þvott yðar hvítan
sem mjöll.
CLOZONE ER HVITAST.
CLOZONE er drjúgt og kraftmikið —
sléttfull matskeið nægir í 4,5 lítra
vatns.
Heildsölubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F.
Sími 11400
1 kóngsins Kaupmannahöfn hafa
íbúarnir fylgst af áhuga með athygl-
isverðu réttarfari. Spurningin er,
ihvort 39 ára gömul ungfrú sé skyldug
til að borga skatt —• einnig kirkju-
skatt — af þeim aukatekjum, er hún
vinnur sér inn, sem vændi. Hún hefur
lagt fram ákæru gegn ríkisvaldinu,
til að komast til botns í málinu. Síð-
astliðið ár gaf hún upp, á skattfram-
tálinu sínu, að hún hefði fengið 2000
d. kr. í laun fyrir húshjálp á hinum
og þessum stöðum. En þegar skatta-
nefndin komst að því, að hún einnig
hafði ýmis aukastörf, sem gerðu henni
kleift að búa í stórri nýtízku íbúð,
lögðu þeir á hana fleiri þúsund
I vikubyrjun
danskra króna 1 aukaskatt. Nú heldur
ungfrúin því fram, að það sé ósiðsam-
legt af skattnefndinni að þvinga, hana
til að bæta við aukavinnu sína, svo
hún sé fær um að borga skattana.
★
Konan mín vann 5000 kr. i póker í
gærkvöldi og gerði upp við mig.
Fékkst þú helminginn?
Nei, hún tók saman föggur sínar
og skildi við mig.
★
„Enginn er eins þekktur og hann
heldur sig vera,“ sagði hinn frægi
tenorsöngvari Enrico Caruso, eitt
sinn. „Ég var í ökuferð í New York
ríki, þegar bifreiðin, sem ég var f bil-
aði skyndilega. Á meðan gert var við
bilunina, gerðist ég gestkomandi á
bóndabæ í nágrenninu. Bóndinn tók
vel á móti mér og spurði um nafn
mitt, og ég sagði honum að ég væri
Caruso. Bóndinn starði á mig smá
stund með undrunarsvip, og sagði síð-
an. „Ekki datt mér í hug að svo
frægur maður, sem þér myndi nokk-
urntíma koma í mitt hrörlega hýsi.
CARUSO hinn heimskunni ferðamað-
ur Robinson Caruso.“
★
SÖLUTÆKNI
„Hér hef ég bók, sem þú getur ekki
verið án“, sagði sölumaðurinn. Ég
les aldrei neitt, sagði viðskiptavinur-
inn. „Kauptu hana þá handa börn-
unum.“ „Ég er ógiftur og á engin
börn. Það eina sem ég á er hundur."
E'inmitt, þá hlýtur þig að vanta bók
til að geta hent í hann við hentug
tækifæri."
2 VIKAN