Vikan - 31.08.1961, Page 22
SERT WEEDON
Nú á síðustu timum er það mjög mikið í tizku, að söngv-
arar spili sjálfir undir hjá sér á gítar. En það þýðir lil
allrar hamingju ekki það, að ekki séu not fyrir dug’.cga
gitarspilara, eins og t. d. Bert Weedon.
Þessi enski gítarleikari vinnur sérstaklega að því að lána
hæfileika sína á fjölda af grammófónplötum. Það er að
segja, þegar Tommy Steele, Marty Wilde, Terry Dene
og Laurie London, syngja sem bezt þeir geta og slá gítarinn
af mikilli kúnst er það oftast Bert, sem spilar á gítarinn,
en bak við tjöldin. Og söngstjörnurnar hafa alls ekkert
á móti þessu. Þessar stjörnur standa þvi allar í mikilli
þakkarskuld við hann.
Weedon, sem sérfræðingar segja, að sé einhver færasti
gítarspilari i heimi, byrjaði að spila þegar hann var smá-
strákur, og á nú að haki sér rúmlega 25 ára hljómlistar-
feril. Auðvitað hefur hann einnig spilað inn á fjölda af
plötum einn og nokkur laga hans eru eftir hann sjálfan.
eins og t. d. „Bert‘s hoogie“ og „Twilight theme“. Flestar
plötur hans gefa samt ekki í skyn, live mikill listamaður
Bert er, því hann hugsar fyrst og fremst um það, að þær
seljist, og lagar sig þvi eftir smekk fólksins. Fyrsta platan
hans var tekin upp hjá Parlophone, en síðan fór hann
yfir til Top Rank, þar sem það var eina félagið', sem vildi
leyfa honum að spila lagið „Guitar hoogie shuffel“, eftir
Arthur Smith, sem hann með réttu spáði miklum vin-
sældum.
Bert Weedon er einn mikilvægasti gítarleikarinn í enska
sjónvarpinu og starfar þar í mörgum vinsælum þáttum.
Hann á fimm gítara, spilar klassiska hljómlist einn dag-
inn og rokk þann næsta, og á kvöldin spilar hann kannski
undir hjá Rosemary Clooney, Eartha Kitt, eða Frank
Sinatra. En sú stjarna, sem hann er hreyknastur af að
hafa spilað fyrir, er hinn lieimsfrægi tenór Benjamino Gigli.
Okkur hafa borizl margar fyrirspurnir um
það, hvernig eigi að orða bréf til leikara. Ef
þið munið eitthvað af því, sem þið hafið lært
í ensku, er það ekki svo erfitt. Þú getur t.d.
skrifað: „As one of your Icelandic admirers,
I would be happy to receive your photo with
autograph. With kind regards, sincerely yours“.
Og fyrir neðan setjið loið nafn og heimilis-
fang. Aðalatriðið er, að innihaldið sé skýrt og
skorinort. Aðdáunarhréf þessi komast sjaldán
lengra en til einkaritara stjarnanna, sem legg-
ur mynd af leikaranum ásamt eiginhandar-
áskrift í umslag og sendir til baka. Mjög lítil
líkindi eru til að fá persónulegt svar. Munið
að senda alþjóðafrímerki með fyrir kostnaði
svarhréfsins.
<] Brigitte Bardot: Unifrance
Film, 77 Champs Elysées,
Paris.
Tony Curtis: Screen Actors
Guild, 7046 Hollywood.
■SÉlSBljB ^ , John Kerr: 20th Century Fox,
Bjf ^ Beverly Hills, Kaliforniu.
■ i
Debbie Reynolds: Metro-
Goldwyn Mayer Studios, Culver [>
City, Hollywood.
<1 Ghita Nörby: ASA. Asavænget,
Lyngby, Danmark.
I-------------------------------
Bréfnviðskipti
Dagbjört Höskuldsdóttir, Austurgötu 9, Stykkis-
hólmi, vill komast í bréfasamband við stráka á
aldrinum 13—100 ára. — Samúel Friðriksson, S.
S. Stavangerfjord, N. A. L. Oslo, vill komast í
bréfasamband við stúlkur á aldrinum 16—22 ára.
Æskilegt að mynd fylgi bréfi. Skrifar á íslenzku.
— Lovísa Símonardóttir, Brunnastöðum, Vatns-
leysuströnd, Gullbringusýslu, vill komast í bréfa-
samband við pilta eða stúlkur, á aldrinum 13—16
ára. — Hér er svo svar til I. H., sem langar til
að eiga pennavin í Bandaríkjunum, og biður um
adressu einhvers bandarísks dagblaðs. Hér er það,
sem við náðum í, og við vonum að það gagni:
The Sunday Bulletin, 30th and Market Streets,
Philadelphia 1, Pa. •—• Ása Hafliðadóttir, Kristín
Hallgrímsdóttir og Sigríður Hallgrímsdóttir óska
eftir bréfaviðskiptum við pilta á aldrinum 16—24
ára. Heimilisfang þeirra allra er: Josef — Utne,
Rygge, Norge.
<] Platan að þessu sinni er gítarplata spiluð af Bert
Weedon. Hún er mjög skemmtileg og fjörug og mun
falla vel í smekk rokkunnenda. Þetta er fjögra laga
plata og lögin eru, Ginchy, Nashville boogie, Guitar
boogie shuffel og Sorry robbie. Tvö af lögunum, það
fyrsta og síðasta, eru eftir Weedon sjálfan. Platan
er gefin út af enska hljómplötufyrirtækinu Top Rank
og fæst í hljómplötudeild Fálkans og kostar 130,00 kr.
Allar unglingsstúlkur
munu taka þessum
skólakjól fegins hendi.
Efri hlutinn er laus
og nær niður í mitti,
þannig að auðvelt
er að hreyfa sig
i honum.
Þar að auki er efra
stykkið ermalaust og
eina skrautið eru
nokkrar fellingar að
framan. Pilsið er fóðrað
vlieselini, og lagt í
einfaldar fellingar, og
eina skrautið er
einfaldur borði að
neðan, sem gefur
kjólnum vídd.
Innan undir er svo
hægt að vera i hlússu
eða peysu eftir vild.