Vikan - 31.08.1961, Page 23
Ef þú ert handlagin, geturðu sjálf srníðað þér
lítið sængurgrindverk, eins og sýnt er á mynd'-
inni. Þú þarft bara að kaupa langa lista fyrir
þverslár, en aðeins annar þeirra sést. Sá neðri
er undir rúminu, en er notaður, þegar grind-
verkið er neglt í vegginn með fíngerðum nögl-
um. Rimlarnir f grindverkinu mega gjarna vera
aðeins þynnri en þverslárnar. Teiknið fyrst
oddalínurnar á tréplötuna, sagið svo út eftir
strikunum. Nuddið svo alla rimlana vel með
sandpappír í sárið og þar sem þeir eru ekki
alveg sléttir.
Sængurgrindverkið má mála í skemmtilegum
lit, en líka er hægt að hafa það í sínum eðli-
lega trélit og lakka það, ef það á betur við
annað, sem er í herberginu. Hugmynd þessi
er mjög lífleg, og ef blaðlaus trjágrein er hengd
upp á vegg og skreytt með fallegum kortum
eða öðru smávegis, fær herbergið á sig sér-
staklega skemmtilegan svip.
k\N:\0^L-fFn^>
SKÍKÞSTTUR
Ótrúlegt en satt.
Fáeinir skákmeistarar hafa mikið iðkað það að
tefla „blindandi", það er að segja án þess að sjá
hvorki borð né menn og náð alveg furðulegum ár-
angri. Lítum t. d. á myndina hér fyrir neðan og
sjáum þessa glæsilegu leikfléttu Aljekins í skák, sem
hann tefldi með bindi fyrir augunum í Tarnopol 1918.
Leiknir hafa verið 14 leikir og nú leggur hinn
„blindi“ Aljekin til atlögu: 15. Re5 — fV! Þessi
óvænti ridadraleikur ógnar svörtu drottningunni. Eh
hvað skeður ef svartur drepur ekki riddarann? Þá
veður hann að flytja drottninguna yfir á e8. Og þá
leikur hvítur: 16. De2xe6, Rd7—f8 (Til þess að koma
í veg fyrir Rf7—d6 með fráskák og drottningarvinn-
ingi). 17. Rf7—h6ft> Kg8—h8, 18. De6—g8t!, Rf6
xg8 19. Rh6—f7 mát. — Svartur verður þessvegna
að þiggja fórnina. 15. — Kg8xf7, 16. De2xe6t'.!
Hér hefur svartur 3 leiki um að velja. Hann getur
þegið drottningarfórninga, eða farið með kónginn
á 18 og g6. Ef við athugum fyrsta möguleikann, þá
sjáum við strax að eftir KxD þá kemur Rf3—g5f
mát. Sá næsti: 16. — Kf7—g8 er ekki heldur góður,
því þá kemur 17. Rf3—g5 með máthótun á f7. Til
þess að koma í veg fyrir það verður sv. að gefa
til baka manninn, sem hann hefur unnið og meira
til, t. d.: 17. — Rd7—e5 18. d4xe5, Bb7—d5 19. cxd5,
Dd8xd5 20. Rg5xh7t og eftir RÍ6xh7 Þá missir
svartur drottninguna. Svartur reynir þessvegna
þriðju leiðina: 16. — Kfl—g6, 17. g2—glf! og svartur
er óverjandi mát í næsta leik. (Rf3—h4 eða Bd3xd5).
Samtímis þessari skák tefldi Aljekin 5 aðrar blind-
skákir!
úr
öilum áttum
Juliet Prowse vildi hafa sinn eigin
málningarsérfræðing með til Hónólúlú,
þar sem hún átti að byrja að leika í kvik-
myndinni „Blue Hawaii“, með Elvis
Presley. Þetta og ýmislegt annað vildi
framleiðandinn ekki samþykkja, og þess
vegna missti Juliet hlutverkið, en Joan
Blackman fékk það í staðinn.
Bobby Rydell hefur skrifað undir 7
ára kvikmyndasamning við Columbiafé-
lagið og fyrsta myndin á að heita „The
hill girl“.
Aðalhlutverkið, sem Presley fer með í
kvikmyndinni „Flaming Star“ var upp-
haflega ætlað Marlon Brando fyrir fimm
árum.
Vissirðu að lagið „Are you lonesome
tonight?“ er eldra en Elvis Presley. Það
3MERÍKA
ER FyRTR-
HETTNA
LÆNDTÐ
Auður Ragnarsdóttir situr niðri i Lista-
mannaskála þessa dagana og hirðir tíkalla
í vindlakasisa. Þegar við innum hana
nánar eftir þvi, hvað hún geri, vinnur
hún lijá hókaforlaginu Helgafelli í sumar
og kann ágætlega við sig.
- Hvað gerðirðu i vetur, Auður?
— Ég var i 4. bekk Menntaskólans.
— Og þú hefur hugsað þér að halda
áfram?
— Já, auðvitað.
— Svo tekur háskólinn við?
— Já, ætli það ekki.
— Hvað gerirðu nú helzt af þér, þegar
lærdóminum sleppir?
— Ég veit ekki, les, spila, eða prjóna.
—• A hvað spilarðu?
— Píanó, en það er nú heldur lítið.
Ég varð að hætta að læra, þegar námið
þyngdist.
— En hvað gerirðu, þegar þú ferð að
lyfta þér upp?
— Ég fer eitthvað að dansa, annars er-
um við búin að fá dálítinn leiða á því.
— Og hvað tekur þá við i staðinn?
— Ferðalög, útilegur. Við erum að
hugsa um að ganga á Esjuna einhvern
daginn.
— Langaði þig ekki út í sumar?
— Jú, mig langaði til Ameríku, ég var
þar í fyrrasumar. IÞað var alveg dásamlegt.
—■ Hvernig eru unglingarnir í Ameríku?
— Likt og hérna, nema hvað strákarnir
eru miklu kurteisari og þægilegri í við-
móti. Þar tiðkast það líka að stelpur fari
út með strák, þó að þær séu ekki með
er skrifað árið 1926 af Roy Turk og Lau
Handman. Fyrst þegar það náði vinsæld-
um, var það sungið af A1 Jolson.
Hin gamla óperetta Victors Herberts
„Babes in toyland,“ er fjallar um ungt
ástfangið par, sem lifir í undursamlegu
leikfangalandi, á að komast á kvikmynd.
Og söngvarinn Tommy Sands á að fara
með aðalhlutverkið.
Danssérfræðingar í Banduríkjunum
halda því fram að nýr dans, Pachanga-
Charanga,muni ná miklum vinsældum.
Dansinum er lýst þannig, að hann sé
charlestonafbrigði af latin-amerískum
dönsum með dálitlu cha-cha og merenque
með.
Bobby Darin, sem er giftur Söndru Dee,
er 24 ára og kvartar um það, að honum
finnist hann vera gamall maður, þegar
hann er með beztu vinum sínum, Paul
Anka og Bobby Rydell. Anka er 19 ára
og Rydell 18 ára.
Adam Faith á að syngja aðalsönginn í
hinni nýju brezku mynd „The Kitchen"
og mun lagið bera sama nafn. Verið er
að taka kvikmyndina núna.
Auður Ragnarsdóttir
honum. Það er einn þetta kvöldið og ann-
ar það næsta. Hérna geta þau ekki
skemmt sér saman, án þess að eitthvert
samband sé á milli þeirra.
— Að hverju öðru mundirðu vilja finna
hérna?
— Ja, það væri þá helzt fylliríið. Það
er óþolandi mikið fyllirí. Og mér finnst,
að það eigi alls ekki að selja unglingum
vín. Maður sér þetta hvergi annars staðar.
— Hver er eftirlætishljómsveitin þín?
-—■ Ég held Svavar Gests.
En söngvari, ég meina útlenda lika.
— EIvis Presley.
— Hvað ertu gömul, Auður?
— Átján, en verð nítján eftir mánuð.
Mér finnst ég vera orðin ægilega gömul.
— Virkilega, kviðirðu fyrir ellinni?
— Nei, ég geri það ekki.
— Hvenær ætlarðu að gifta þig?
— Helzt ekki fyrr en tuttugu og fimm
ára.
— Og hvað á hann að vera miklu eldri?
— Svona þremur árum, ekki meira. En
áður en ég gifti mig, ætla ég að gefa mér
tíma til að ferðast og skemmta mér.
— Hvað mundirðu gera, Auður, ef ég
léti þig hafa nokkur þúsund hérna?
— Ég mundi líklega labba beint i bank-
ann.
— Mudirðu ekki fara að verzla?
— Nei, þetta mundi fara í ferðalög og
líklega mundi ég bjóða pabba og mömmu
til Ameríku.
— Við þökkuin Auði fyrir og óskum
lienni góðrar ferðar til Ameríku í fram-
tiðinni. 'k
vikan 23