Vikan - 31.08.1961, Qupperneq 29
7 '4
’K>tfPnai°
HrúXsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Ef til vill
gengur ekki allt eins'og þú helzt vildir framan
af, en Þó mun þessi mótbyr verða til þess að
kenna þér ærlega lexíu. Á fimmtudag mun allt
breytast til batnaðar. Amor verður talsvert á
ferðinni i vikunni, einkum þó á sunnudag Það hefur borið
á leiðinlegum þætti í fari þínu undanfarið, og bitnar það
einkum á fjölskyldunni. Heillatala 5.
NautsrnerkiS (21. apr,—21. maí); Þú munt þurfa
að leysa verkefni í vikunni, sem þú ræður alls
ekki fram úr á eigin spýtur. Þú skalt um-
fram allt leita hjálpar, enda þótt sá, sem þér
hjálpar. hljóti mest hrós fyrir vinnuna að henni
lokinni. Þú hagnast einnig á þessu. Eitthvert vandamál
mun valda þér óþörfum áhyggjum um helgina.
Tvíburamerikð (22. maí—21. júní): í þessari
viku áttu von á einhverju, sem þú hefur lengi
beðið eftir, en enn mun það bregðast Láttu
samt ekki hugfallast, því að senn líður að þessu.
Það mun verða lögð fyrir þig gildra um helgina,
einkum þó ef þú tilheyrir kvenþjóðinni. Vikan er eigin-
mönnum til mikilla heilla.
KrabbamerkiS (22. júní—23. júli): Vikan verður
í alla staði hin þægilegasta, en ekki máttu búast
við neinum stórviðburðum, og þú verður að gera
þér mat úr hversdagslegustu hlutum. og einmitt
nú ert Þú hæfur til þess. Tvö kvöld vikunnar,
laugardags- og sunnudagskvöld. skipta framtíð þina miklu
Þá muntu taka veigamikla ákvörðun.
LjónsmerkiS (24. júlí—23. ág): 1 þessari viku
skaltu hugsa þig vendilega um, áður en Þú tekur
nokkra veigamikla ákvörðun, því að þér hættir
til þess að líta ekki hlutina fyllilega réttum aug-
um. Heima við verður lífið þér mjög ánægjuríkt,
og í sambandi við einhvern merkisatburð í fjölskyldunni,
verður þér komið þægilega á óvart.
MeyjarmerkiS (24. ág.—23. sept ): 1 fyrstu virð-
ist vikan ekki ætla að verða síðustu vikum í
neinu frábrugðin, en þegar líður á vikuna, mun
koma i ljós að Þessi vika verður í hæsta máta
óvenjuleg. Ekki verður fyllilega séð, hvort síð-
ustu dagar vikunnar verða þér til heilla. en liklega þarftu
ekki neinu að kvíða. Þú hefur ekki komið fram af einlægni
VogarmerkiS (24. sept.—23. okt.): Það gerist
ýmislegt óvænt i þessari viku, og þú munt njóta
lífsins i ríkum mæli. Farðu samt dálítið varlega
í peningamálum. Um helgina ferð bú að likind-
um í furðulegt samkvæmi. Eitt þarftu að varast
í því samkvæmi — það er að fara ekki síðastur — þá mun
fara illa. Vikan er konum undir þritugu til mestra heiila.
DrekamerkiS (24. okt.—22. nóv.).: Þú munt eiga
mjög annríkt í vikunni, en þú munt einnig upp-
skera ríkulega. Þú skalt samt reyna að sinna
einu áhugamáli þínu og sleppa því fremur að
fara út að skemmta þér. Um helgina dettur þú
rækilega i lukkupottinn. Sjálfselska þín fer dálitið í taug-
arnar á vinum þínum um þessar mundir.
BogmaSurinn (23. nóv.—21. des.): Föstudagur-
inn er sá dagur. sem skiptir þig mestu í þessari
viku. Hugsaðu því vandlega fyrirfram allt það,
sem þú leggur út í, ekki sízt ef það snertir á
einhvern hátt vin eða vini þína. Atburður sem
gerðist fyrir svo sem mánuði og Þú varst búinn að gleyma,
endurtekur sig næstum nákvæmlega i þessari viku, en í
þetta sinn kanntu að bregðast rétt við.
GeitarmerkiS (22. des.—20. jan ): Þú ert fullur
einhverrar nýjungagirni i vikunni, og verður
háttarlag þitt vægast sagt undarlegt. Þetta stafar
líklega af einhverju, sem olli þér vonbrigðum i
síðustu viku, og koma vonbrigði þín þannig fram.
Ef þú hugsar málið dálítið betur, muntu komast að þvi, að
enn er hægt að bæta úr þessu. Þú mátt alls ekki gefast upp.
_ VatnsberamerkiS (21. jan.:—19. feb.): Það blæs
MVjB byrlega fyrir þér í þessari viku, og þú munt loks-
■p-*l ins fá leyst þetta verkefni, sem þú hefur unnið að
undanfarið. Gættu tungu þinnar i náveru vina
þinna. Þér hættir til þess þessa dagana að segja
Það, sem þú sízt skyldir segja. Þú verður fyrir áhrifum af
einhverju, sem þú heyrir eða lest.
FiskamerkiS (20. feb.—20. marz): Þú hefur reynt
að losna við að gera eitthvað undanfarið, en sann-
leikurinn er sá, að þú kemst alls ekki hjá því að
gera það, og nú skaltu hefjast handa, svo að ekki
fari illa. Einhver, sem þér er næstum ókunnugur,
fer að skipta sér af þínum eigin málefnum. Þú skalt reyna
að flæma hann burt, en vertu þó kurteis.