Vikan


Vikan - 07.09.1961, Page 2

Vikan - 07.09.1961, Page 2
Slankbelti eða brjóstahaldari er undir- fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að vel athuguðu máli. Lífstykkjavörur eru það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar vel þekktu KANTER'S lífstykkjavörur, sem eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum, í nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið öruggar um að fá einmitt það sem yður hentar bezt frá PÚKALEGIR POSTU- LÍNSHUNDAR. . . Kæri póstur. Hvað á ég að gera við hana frænku mína? Hún er alltaf að gefa mér, við minnstu tilefni, alls konar hluti, bækur og fleira, sem mér er meinilla við. Mér finnst ég ekki geta stiilt upp í herberginu mínu púka- legum postulinshundum og öðru leiðindaskrani. Bækurnar les ég aldrei. Hvað get ég eiginiega gert? Blessuð, svaraðu mér nú, Vika mín. Dúlla. Þetta er háklassískt vandaniál, og að mér vitandi hcfur enginn fundið viðhlítandi ráð við þessu nema það að stilla mununum upp á áberandi stað, þegar von er á frænkunni eða hverjum, sem það nú er, í heimsókn. Þú þarft auð- vitað ekki að hafa áhyggjur af bókunum, en það er verra með þessa púkalegu postulínshunda. Kannski lesendur kunni ráð við þessu. Ef einhver lesenda, sem lent hefur í svipaðri klípu og snú- ið sig út úr henni ,getur orðið okkur að liði, skal bréf hans fá heiðurssess í blaðinu! ENDURSÝND. . . Iíæri póstur. Getur þú ekki komið á framfæri kvörtun fyrir mig. Ég fór i bíó í gærkvöldi og ætlaði nú að njóta góðrar myndar. Ég hafði lesið bió- auglýsinguna lauslega yfir og vissi, að Jjetta hlyti að vera góð mynd, ])ví að leikstjórinn var Ingmar Berg- man. Þetta var sem sagt myndin Niira livet, sem sýnd er í Stjörnu- bíói um þessar nmndir. Þegar ég var seztur í sæti mitt og myndin byrjuð kost ég að því, að ég hafði séð þessa mynd í Hafnarfirði fyrir svo sem ári eða tæplega það. Það var ekkert getið um það í auglýsing. unni, að ég liefði séð myndina áður. Hins vegar finnst mér, að kvilc- myndahúsunum beri skylda til þess að geta þess, að þetta sé ekki í fyrsta sinn, scm myndin er sýnd. Ég varð svo vondur, að ég strunsaði út og ætlaði að fá miðann endurgreiddan, en það varð engu tauti við miða- sölustúlkuna komið. — Um þessar mundir er einnig verið að sýna af- gamla mynd i Hafnarbíói, Because of you, og hvergi er ])ess getið, að myndin sé endursýnd. Þetta er á- byrgðarleysi hjá kvikmyndahúsun- um, þvi að ég er viss um, að ég er ekki sá eini, sem strunsað hefur út í vonzku undir svipuðum kringum- slæðum. Og annað: Það er álíka mikið ábyrgðarleysi að auglýsa dag eftir dag, að mynd sé sýnd i siðasta sinn. Þetta verður til þess, að bió- gestir forðast ])au kvikmyndahús, sem svíkja þannig og pretta með blekkjandi auglýsingum. Takk fyrir, Bíógestur. Reyndar ber kvikmyndahús- unum ekki skylda — nema sið- ferðileg — til þess að auglýsa, að myndir séu endursýndar. En hitt er svo annað mál, — nieð blekkjandi auglýsingaskrumi fá þau óorð á sig, svo að þeim er það vafasamur ávinningur »8 segja ekki allan sannleikann.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.