Vikan


Vikan - 07.09.1961, Síða 33

Vikan - 07.09.1961, Síða 33
ir sig aldrei opinberlega, en hún f er næstum því eins falleg og ég. 1 Svo fékk fólkið sér að smakka af ölinu og það hafði aldrei smakkað neitt eins gott. Og nu fannst öllum að þetta væri reglulega skemmtilegt allt saman, svo að Gréta ölgerðar- kona varð númer tvö. Bogga dóttir smiðsins og Kolla dóttir múrarans urðu báðar númer þrjú, og þeim fannst það dálítið leiðinlegt, því að þær voru nú fallegri en nornin og ölgerðarkon- an. En þær urðu ánægðar aftur, þegar Sígauninn bauð þeim i bíó fjögur laugardagskvöld í röð. Alla næstu viku sat nornin fyrir utan búsið sitt og skrifaði nafnið sitt fyrir fólk sem kom þangað, því að albr vildu koma og sjá þessa frægu pönnukökunorn, Minný Maggý Möllu. Presturinn og fatlaða stúlkan. i Framhald af bls. 13. að auðgast á kosnað kirkjunnar, bætti hann við stuttur í spuna. Þér sjáið um, að þetta verði tafarlaust lagfært. Ráðsmaðurinn hneigði sig og fór. Úðalseigandinn bauð séra Hartwig vindil. — Reykiö þér? spurði hann. — Þegar svo góður vindill er í boði, get ég ekki hafnað honum, svaraði presturinn. — Það var góð hugmynd að biðja dóttur mína aðstoðar við sönginn, varð óðalseigandanum að orði. Hvernig stóð á, að yður kom það til hugar ? — Eg held, að það hafi verið fyrir samtal, sem ég átti við gamla þorps- lækninn, svaraði prestur. —• Þið hafið verið að ræða um hana? mælti óðalseigandinn. Slys hennar hefur vakið áhuga yðar. . . — Já, mjög svo, svaraði prestur- inn og varð alvarlegur á svip. Hún er þó alltaf eitt af sóknarbörnum min- um. Óðalseigandinn brosti og hristi höfuðið. — Ef þér gerið yður vonir um að fá hana í hjörðina, er ég hræddur um, að þér verðið fyrir vonbrigðum. Og það var ekki laust við hæðnis- hreim í röddinni. Ungi presturinn leit fast á hann. — Það stendur skrifað, að lokið verði upp fyrir þeim, sem knýja dyra, svaraði hann. Við smölum ekki stræti og gatnamót, herra óðalseigandi, við bíðum þess, að þeir knýi dyra, sem hafa þörf fyrir að komast inn. Von Gronau sló öskuna af vindlingi sínum. — Ég ætla að vera hreinskilinn, herra prestur. Við hérna í höllinni stöndum ekki í sérlega nánu sam- bandi við kirkjuna. Hún gat ekki veitt okkur neina aðstoð, þegar konan mín lézt, og hún hefur ekki heidur megn- að að veita okkur neina aðstoð nú, þegar dóttir mín varð fyrir þessu slysi. Ég tek þetta fram eingöngu til þess, að þér gerið yður ekki neinar vonir umfram það, sem efni standa til. — Ég þakka yður hreinskilnina, svaraði ungi presturinn lágt. En mað- ur þarf ekki að vera neinn trúboði til þess að sjá, hvað dóttir yðar hefur mesta Þörf fyrir. — Dóttir mín hefun mesta þörf fyrir skui'ðaðgerð, svaraði óðalseig- andinn hranalega. Það gæti ef til vill orðið henni að liði, en hins veg- ar fæ ég ekki séð, að neinir trúarórar geti komið henni að haldi, nema síð- ur sé. Presturinn reis úr sæti sínu. — Ég skil afstöðu yðar, von Gronau, enda þótt ég geti ekki verið yður sammála. En . . . Heimsfrægir hugvitsmenn: Raforkukerfið Hugvitsmenn víöa um heim voru farnir að leita að uppsprettu raf- magnsins löngu áður en Samuel Morse hóf rannsóknir sinar, er leiddu til tiikomu ritsímans. Þeir drógu þá ályktun, að ef hægt væri að framleiða nógu sterkan raf- straum, ættu þeir að geta „leitt“ hann inn á heimili og verkstæði og notað hann til að framleiða l.jós, hita og vélorku. Sennilegt er, að af hinum mörgu gáfuðu og hugvits- sömu mönnum, sem lögðu fram skerf til framleiðslu rafmagnsins, hafi enginn komizt lengra en Nikola Tesla. Tesla fæddist í Króatíu. Hann stundaði framhaldsnám í Graz í Austurriki, og þar kynntist hann dínamónum, sem belgíski uppfinn- ingamaðurinn Zenobe Gramme hafði þá fyrir nokkru fundið upp. Það var upphafið að hugmynd hans að aflvakanum, sem ljyggð er á gjörólíkri forsendu. Árið 1884 kom hann til Bandaríkjanna til að vinna á verkstæði Thomas Edisons. Edison kom fljótt auga á hæfileika hins unga manns, sem var aðeins 27 ára, tiu árum yngri en hann sjálfur, og tók vel hugmyndum hans. En þeir voru ósammála um, hver væri bezta leiðin til að vekja rafmagn og leiða það. Edison reisti fyrstu raforkumið- stöð í heimi, og var hún i Ncw York-borg. Stöðin framleiddi jafn- straum, sem varð að tengja við raf- magnsflutningslínurnar, og var raf- spennan ekki hærri en svo, að hún væri neytendum hættulaus, því að ekki var hægt að hækka eða lækka spennu straumsins með netspenn- um. En sá hængur var á, að vegna mótstöðu í flutningslinunum var mikið úr orkunni dregið, þegar hún kom til neytenda. Lausn Tesla á þessu vandamáli var riðstraumur — þ. e. rafstraumur, sem brerytir um stefnu oft á sekúndu. Hann sýndi fram á, að hægt var að leiða strauminn og halda spennunni nógu hárri til þess að yfirbuga mótstöð- una i flutningslinunum, og með einföldum spennubreyti var spenn- an síðan lækkuð að þvi marki, sem liættulaust var, áður en straumur var kominn inn í línur neytenda. Riðstraumurinn náði með. öðrum orðum til fleira fólks og var ódýrari i nolkun heldur en jafnstraumur- inn. Tesla stofnaði sjálfur lítið raf- orkul'yrirtæki og sótti um einka- leyfi i Bandarikjunum fyrir full- komnu raforkukerfi. Innan fárra ára hafði hann fengið 30 einkaleyfi fyrir uppfinningum sínum. Þekkt- ust þeirra eru riðstraumsmótorinn, sem var tuttugu sinnum aflmeiri en jafnstraumsmótorarnir, sem þá voru i notkun. Ameriskir verkfræðingar komu brátt auga á kosti rafkerfis Tesla. í maí 1888 var liinum unga upp- finningamanni boðið að halda fyr- irlestur um það í stéttarfélagi ame- riskra rafverkfræðinga. George Westinghouse, sem auðgazt hafði af uppfinningu sinni í sambandi við lofthemla í járnbrautir, kostaði framkvæmdir Tesla. Árið 1801 höfðu þessir tveir menn umsjón með byggingu vatns- og raforkustöðvar við Nigarafossa norður við landa- mæri Kanada og Bandaríkjanna. llin geysimikla orka fossanna var Jjeiziuð með tíu risavöxnum túrbín- um. Innan örfárra ára streymdi rafmagnið inn á heimili og verk- smiðjur í Buffaloborg, sem var í 35 km fjarlægð. Um svipað leyti voru raforkumiðstöðvar, sem not- uðu riðstraum, i smíðum í Evrópu. Raforkuöldin var runnin upp. Og enn var hugur Tesla fullur af nýjum hugmyndum. Hann fékk alls um ævina einkaleyfi fyrir kringum 700 uppfinningum i sambandi við riðstraum. Þegar hann var áttræð- ur árið 1936 voru haldnir fundir og ráðstefnur í ýmsum bæjum Ev- rópii honum til heiðurs. Þeir eru fáir, sem hafa séð um ævina svo miklar og góðar breytingar verða til al' hugmyndum sínum. Heil kyn- slóð hafði alizt upp við raforku, þegar Tesla dó i New York-borg árið 1943, 86 ára að aldri. Nú eru íbúar afskekktra héraða Nikola Tesla, imm 8h ! ; ■ i, ■ . -p: • jgj og byggðarlaga i hinum yngstu löndum heims að kynnast þægind- um, sem samfara eru rafmagninu. Það mætti jafnvel skoða þessi nýju raforkuver sem minnismerki um snillinginn N'ikola Tesla. -á Við eruin lieimsfrægir fyrir full- komna þjónustu! VIKAM 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.