Vikan - 07.09.1961, Page 34
II
cléktffm
/ /
Elebtrim
//
Bý'ður yður fjölbreytt tæki fyrir hvers konar
mæiaborð;
TT nioving-coil — moving-iron — electro-
dynamic and induction.
af ýmsum gerðum nreð óskeikula nákvæmni og
fjö.hæfni.
//
EUktrim
//
býður ennfremur þessar tegundir;
★ D.C. and A.C. ammeters
D.C. and A.C. voltmeters
★ Meters for measuring active and reactive
power
~k Frequency meters
Power factor meters
★ Synchronisation colums —
'k Apparatus meters
k Switchboard measuring equipment for vol-
tage and current recording, and other
switchboard instruments.
Sendið fyrirspurnir og vér munum senda yður
allar tæknilegar upþlýsingar sem þér óskið.
POLISH FOREIGN TRADE COMPANY
FOR ELECTRICAL EQIPMENT. Ltd.
//
Etektrim
//
Warszawa 2, Czackiego 15/17 — Poland
Teiegrams: Elektrim-Warszawa. Telephone:
(5-62-71 Telex: 10415 P.O. Box 254.
Hann þagnaði við, þvi að ráðs-
maðurinn kom inn með nýja leigu-
samninginn í þessum svifum. Óðals-
eigandinn renndi augunum yfir hann
og reit síðan nafn sitt undir.
— Hvernig er það, stendur það
ekki einhvers staðar í ritningunni,
að eigi beri að safna þeim sjóðum,
sem mölur og ryð fái grandað? spurði
óðalseigandinn dálítið hæðnislega, um
leið og hann fékk presti plaggið og
fylgdi honum til dyra. — En kirkjan
er þar kannski sjálf undanskilin?
— Eigum við ekki að láta yður um
að túlka samningana, en mig
að túlka orð ritningarinnar spurði
prestur, um leið og hann kvaddi.
Framhald i næsta blaði.
Biðtími.
Framhald af bls. 21.
þangað til frú Larsen kom út. Jæja,
— sagði frú Teraly næstum þvi í
spaugi, — hvernig gekk það? —
Hin horfði á hana, hún varð allt i
einu svo þreytuleg og óhamingjusöm
á svipinn. — Það verður ekkert sjö-
unda barn hjá okkur, — sagði hún
hægt.
— Verður ekki? Var þetta þá eftir
ailt saman tómur misskiiningur?
— Nei, sagði frú Larsen og brosti
aðeins, — misskilningur var það
ekki, en barnið mun ekki -fæðast.
Læknirinn segir, að það megi ekki
koma fyrir. — Hún ieit á hinar kon-
urnar. — Ég var ekki glöð, þegar
ég komst að raun um, að ég væri
ófrísk, en — ég er ekki heldur glöð
núna. Svo brosti hún; húsmóður-
hjápin fær vist eitthvað að biða, en
þetta bjargast allt einhvern veginn..
Dyrnar að lækningastofunni opn-
uðust: — Næsta.
— Frú Teraly stóð upp. Skyndi-
lega stakk hún hendinni niður í
veskið. — Andartak, iæknir. — Hún
reif ávísunina hægt í tætlur, en
hönd hennar var hröð, þegar hún
útfyllli aðra nýja. Og áður en frú
Larsen raunverulega vissi, hvað
gerzt hafði, stóð hún með ávísun
upp á eitt þúsund krónur, en dyrn-
ar að lækningastofunni iukust aftur
á eftir frú Teraly.
Þegar Ása var orðin eftir, sat hún
grafkyrr, og hugur hennar reikaði
víða. Hún heyrði þvi ekki, er hurðin
opnaðist. Þess vegna hrökk hún við,
er hún allt í einu kom auga á brúna
skó, — stóra skó — karlmannsskó.
Karlmannsskór hérna? Hún leit
upp og mætti augum Toms. — Tom,
þú hérna? Hvernig vissir þú, — ég
meina . . .
Hann leit alvarlega á hana. —
Ása, þú mátt ekki gera þetta, heyr-
irðu það. Hvernig vissir þú, að ég
væri hér? endurtók Ása, eins og
hún hefði ekki heyrt það, sem hann
sagði.
— Ég hringdi til þín i matarhlé-
inu, og Margí sagði, að þú værir
hér, og hún sagði . . . ég hélt . . .
og Ása, — gerðu þetta ekki, heyrirðu
það. Komdu bara. — Hún brosti til
hans og greip í hönd hans. — Gera
hvað, Tom? Ég ætlaði bara . . . trú-
ir þú þessu virlcilega?
— Hann fór allt i einu að brosa,
hann varð bara glaður, og hann
reyndi að gera hana líka glaða.
— Þetta gengur allt saman, Ása,
— það fer allt vel, sannaðu til. Ég
þekki mörg stúdentahjón. Þau hafa
börn sín á barnaheimilum á dag-
inn, — sagði hann ákafur, — og
þú getur unnið, og ég skal hjálpa
þér við húsverkin og — með barnið.
Allt mun blessast fyrir okkur, vertu
viss. --
Ása brosti við honum ... — En
þetta er ekki vísl enn þá . . ? En
hún leit út fyrir að trúa alls ekki
því, sem hún var að segja, og allt
í einu sagði hún: — Jú, þetta bless-
ast allt fyrir okkur, Tom. — í sama
bili var barið hægt á dyrnar, og
ein konan enn kom inn.
Ég fer og bíð eftir þér fyrir utan,
sagði Tom, — blessuð á meðan . . .
— Og hann sendi henni geislandi
augnaráð og tók stigann i löngum
stökkum, og var koininn út á götu
fyrr en varði. Þar staðnæmdist hann
á gangstéttinni við hliðina á dökk-
rauðum Mercedesbíl. Snöggvast gaf
hann sig bildraumum á vald, svo
rétti hann úr sér og brosti. k
YIKAN og TÆKNIN
Framhald af bls. 18.
alls ekki verða neitt glæfraspil, að
þvi er varðar fjárfestingu, jafnvel
þótt stofnkostnaður yrði mikill, en
það er þegar vitað.
Það, sem gerir þetta mannvirki
torveldast í framkvæmd og hleypir
um leið mest fram kostnaðinum við
það, eru göng, allt að 50 km löng,
sem sprengja verður gegnum fjall-
garð á Kyrrahafsströnd, svo og
skipastigar, sem gera verður þar
sökum hæðarmismunar. En verk-
fræðingar telja það ekki neina frá-
gangssök með þeim tækjuin og
tækni, sem þeir hafa nú yfir að
ráða. Það mundi aftur á móti draga
nokkuð úr framkvæmdakostnaðin-
um, að allt vinnuafl er sérlega
ódýrt i Mexíkó.
Þegar úr þessum framkvæmdum
verður, — en talið er, að mælingum
ljúki á næsta ári, og þær eru að
sjálfsögðu grundvallaratriði þeirra,
— þá mun skipaskurður þessi verða
hið mesta mannvirki í heimi í sinni
röð. Hve lengi það met stendur, er
hins vegar ekki gott að vita.
BÍLLINN ÞVEGINN ...
Það eru Bretar, sem eiga frum-
kvæðið að gerð og sölu þessa fljót,
virka og einfalda bílþvottatækis,
sem myndin sýnir. í rauninni er
þarna aðeins um að ræða ramma
úr venjulegum vatnsleiðslupipum
með stútgötum, og þarf ekki annars
\ið en setja hann í samband við
vatnsleiðslu — og aka bílnum siðan
hægt í gegnum hann. Öllu fljótlegra
og auðveldara getur það varla
verið.
ÞVEGIÐ í BÍLNUM ...
Þannig fara bandarískar konur
að, þegar þær þurfa að vinda úr
spjör á ferðalagi, — og þarf myndin
varla neinna skýringa við nema þa
kannski helzt, að þarna er um að
ræða bíl af Chevrolet-gerð. Hvori
aðrar bilategundir eru jafnvel tu
þess arna fallnar, skal ósagt látið,
en þeim, sem eru það ekki, verður
þá áreiðanlega breytt, áður en langt
um líður, svo að eigendur þeirra
geti líka notið þessa hagræðis.
34 VÍKAN