Vikan - 07.09.1961, Síða 42
MÁ
BIDÐA
YÐUR m
Husíð verður reist fgrir
ifður hvur sem er í by^ð
DRAUMAR.
(Framhald af bla. S8J.
og sá þá aö það var mýri í túninu,
rétt fyrir innan mig, sem þó er ekki
til í raunveruleikanum. Mér fannst
þetta vera botnlaus fúi og var svo
hrædd um að þetta yrði einhverjum
að slysi. Sé ég þá að tengdafaðir
minn kemur frá bænum og stefnir
bcinl á mýrina. Ég sá að hann ætlar
þarna yfir og kalla í hann að fara
ekki þarna, en hann svarar því ekki
og heldur áfram út 1 og fer strax að
sökkva. Ég verð svo hrœdd að ég
kemst ekki neitt. Ég kalla þá í mann-
inn minn að koma fljótt og hjálpa
honum. Kemur hann strax og með
honum maður, sem ég þekki ekki,
d.kkur yfirlitum, i dökkum fötum.
Ég kalla þá til þeirra að fá sér fleka
til að ganga á svo þeir sökkvi ekki
líka, en þeir svara því ekki og fara
út í. Ekki minnkaði hræðslan við
það. Lit ég þá snöggvast undan og
þegar ég lít aftur við sé ég að þeir
liggja báðir aftur á bak og eru farn-
ir að sökkva og alltaf stækkuðu og
dýpkuðu gryfjurnar. Við þetta vakn-
aði ég. Fyrir hverju er þessi draum-
ur? Með fyrirfram þökk.
Huldukona.
Svar til Huldukonu.
ur munu lenda í málaferlum eSa
einhverjum svipuðum erfiðleik-
um á næstunni. Málaferli þessi
munu verða miklu umfangsmeiri
heldur en þeir gerðu sér grein
fyrir í byrjun, þrátt fyrir að þér
væri það fyllilega ljóst og reynd-
ir að vara þá við veilunni. Dökk-
. .Tengdafaðir þinn og eiginmað-
klæddi maðurinn er tákn lög-
mannsins í draumnum og hann
er að einhverju leyti tengdur
manni þínum.
Kæra Vika,
Mig langar til að fá lausn á draum,
sem mig dreymdi eigi alls fyrir
löngu. Mér fannst ég vera staddur
út á götu og stóð rétt bjá bíl. Hjá
mér stóð stelpa, sem ég er ekkert
brifin af og var ég að tala við
bana. Þar stutt frá stóð önnur
stelpa, sem kunningi minn er ást-
fanginn af og var bún ákaflega dap-
urleg. Fram bjá mér gengur svo
stelpan, sem ég er brifin af og vill
bún ekkert við mig tala en er samt
greinilega óánægð. Siðan kemur
kunningi minn, úr þeirri átt sem
stelpan, sem ég er brifinn af gekk í.
Er bann að reyna að bugga stelpuna,
sem liann er ástfanginn af, en bún
vill ekkert við bann tala. Þess skal
getið að við böfum ekki kynnst þess-
um stelpum mikið og vita þær ekkert
um ást okkar á þeim og við vitum
ekkert bvaða bug þær bera til okk-
ar.
Með fyrirfram þökk,
Tvær eftirvæntingarfullir.
Svar til Tveggja eftirvæntingar-
fullra.
Ég álít að draumur þessi sé
fremur tákn um dagleg vandamál
ykkar fremur en að hann hafi
eitthvað gildi fyrir lífstíðina.
Eftir því er svo að sjá sem þú
sért ekki á þeirri línu í daglegu
starfi, sem þú ættir að vera.
Kæri Draumaráðandi.
Mig dreymdi að ég var að tala
við mann, sem ég kannast við og
spurði hann, hvort það væri lika
gufubað þar sem hann ætti heima.
Hann sagði já og fór að útskýra
fyrir mér hvað það væri og eitt-
hvað nefndi hann Kleppsveg. Tek ég
þá eftir því að hann er með fjóra
gullhringi, tvo og tvo saman, en
sitt á bvorri hendi. Voru þeir allir
með steinum, einn með þrem litlum,
hvítum steinum, en hinir með einum
hver, en ekki eins. Ég fór þá að gá
hvort hann væri ekki lika með gift-
ingarhringinn, en sá hann ekki.
Bið þig að ráða fyrir mig þennan
draum.
Bréf þetta var vélritað, en undir_
skrift vantaði.
Svar.
Spurningin, sem spurð er í upp-
hafi draumsins bendir til að þú
hafir verið að leita einhvers jöfn-
uður eða samlíking í fari ykkar,
þar sem skilja má að gufubað sé
heima hjá þér. En við þessa at-
hugun sérðu að maðurinn er nieð
fjóra hringi. Að mínu áliti eru
þessir hringir tákn fyrri sam'-
banda mannsins við konur, sem
hann hafi eignast börn með eftir
tölu steinanna á hringnum.
42 V.IKAN