Vikan


Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 35

Vikan - 14.09.1961, Blaðsíða 35
 sem vettlingi geta valdið, hjálpa nú til, þvi að mikið er að gera. Mar- svínin geta verið allt upp í eitt þús- und. Eftir þessar aðgerðir kemur sýslu- maðurinn á vettvang, og eru mar- svínin talin og merkt, og siðan eru þau seld eða skipt jafnt á milli allra. Barnið í vöggunni fær jafnt og sá, sem er orðinn gamall, og allt, sem hefur tapazt eða ónýtzt, hnífar, bát- ar og annað, fær maður borgað hjá sýslumanninum. Þegar hvalirnir hafa verið skornir á háls, eru þeir skornir í bita og teknir heim í bát eða bíl, og heima fer skiptingin fram. Iivalirnir eru siðan saltaðir niður í tunnur, og finnst okkur það góður matur. Spikið er það bezta. Það er bezt, að það liggi a. m. k. 4 mánuði i saiti. Þá er þetta mesta lostæti. Baldur Freyr. EKKI ER ALLT GULL SEM GLÓIR. Framhald af bls. 27. En Jenný var lagleg, og kvenlegri fegurð verður ekki haldið leyndri. Kvikmyndafélög og myndatökumenn gripa hana gjarnan. í ágústmánuði vann Jenný i fegurðarsamkeppni hjá vikublaði einu og fór nú til Eondon. En þar uppgötvuðu ýmsir karlmenn — aðrir en Bill —, að hún væri bæði aðlaðandi og fögur. Jenný keypti sér dagbók og fyllti hana með mörgum nýjum nöfnum. Kvöld eitt, þegar Bill spurði, hvað gera skyldi næsta laugardag, svar- aði húri: — Nei, á laugardag get ég ekki verið með þér, — ekki þennan laugardag að minnsta kosti. — Og það kom i Ijós, að hún var upptekin næstn tvær vikur fram i timann. Þau sátu ( litlu ibúðinni hennar i Chelsea. Hún hnipraði sig saman á sófanum. Hann sat i hægindastól hennar. ,— En þú hlýtur nú, Jenný, að geta fundið upp einhverja afsök- un til þess að geta farið út með mér, sagði hann. — Þú ert þó vist ekki hrifin at neinum þeirra, — er það? — f raun og veru var þetta ekki hugsað sem ákveðin spurning. Hann var svo sannfærður um, að hún kæijði sig ekki um neinn hinna. — Einhver mundi taka eftir okk- ur, svo framarlega sem við sætum ekki heima allt kvöldið, mótmælti hún. — Og það er svo illa varið tima. Mig langar að skoða og reyna svo margt hér í T.ondon. En ég get sýnt þér I.ondon, sagði hann. — Hún andvarpaði. — Kæri Framhald á bls. 38. Hún skapar sjálfstraust og öryggi, vissan um það að vekja jákvæða eftirtekt. í7 mrn wm WM Mé Það leynir sér ekki að í slíku tilliti er aðdáun og viss ótti — um að gefa of mikið til kynna. Kirkjustræti. Sfmi 12838. A A y A-K-x-x-x-í-x ^ x-x * 10-x-x ^ X-x-x y G-x-x 4 D-x-x Jf, D-x-x-x A V ♦ * Útspil: tromp. Norður 1 hjarta 3 hjörtu 5 hjörtu pass Austur pass pass pass J pass K-D-G-10-x-x-x ekkert A-K-x-x-x A Suður 2 spaðar 4 grönd 7 spaðar Vestur pass pass pass Sálfræði í bridge er ákaflega þýðingarmikil og í spilinu hér að ofan var hún eina von sagnhafa. Vestur hafði heppnina með sér, þegar hann kaus að spila út trompi, þvi að trompútspil er oina útspilið, sem banar alslemmunni. Öll önn- ur útspil gefa alslemmuna. Tveimur tíglum er kastað í tvo hæstu í hjarta og sá þriðji trompaður. Það er sú trompun, sem trompútspilið kemur í veg fyrir. Auðvitað gat suður ekki vitað að trompásinn væri einspil. En hann bar sig karlmannlega. Án þess að sýna hin minnstu óánægju- tnerki, spilaði hann sig heim á laufaás og tók út öll trompin. Þegar því var lokið átti hann á hendinni A-K-x-x-x i tígli, en í borði A-K-x- x-x í hjarta. En hvað með varnarspilarana? Þegar suður gerði spilaáætlun sína setti hann sig í spor andstæðing- anna, þ. e. liagnýtti sér sálfræðina. Austur var sannfærður um að sagn- hafi ætti eitt hjarta i þeim fimm spilum, sem hann átti eftir. Annars hefði hann áreiðanlega tekið tvo hæstu i hjarta, þegar hann var inni á trompásinn í fyrsta slag. Vestur var fórnarlamb sönm blekkingar- innar. Hvor varnarspilari, i sínu lagi, gekk út frá þvi að félagi sinn ætti í mesta lagi tvö hjörtu, og hann, hann einn, með þrjú hjörtu, gæti komið í veg fyrir að sagnhafi fengi alla slagina á blindan. Til þess að halda hinum gagnslausu hjörtum, fleygðu austur og vestur báðir sin- um dýrmæta tígli. Spilið vannst því, vegna þess að dáleiðsluáhrif hinna ónýtu hjartna i blindum gerðu tígultapslagi sagn- hafa að vinningsslögum. U1 >1 Þó það sé hinsvegar ljóst að það er maðurinn sjálfur sem mestu varðar, gefur smekklegur klæðaburður nokkuð til kynna um — hinn innri mann. Kirkjustræti. Sími 12838. V.IKAK 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.