Vikan - 12.10.1961, Page 35
og dálítið af mjólk; og siöan fór hann
úr fötunum fyrir framan eldinn. Hún
horföi á hann úr rúminu, eins og hann
hafði áður horft á hana.
Eftir nokkrar mínútur lagðist hann
niður við hlið konunnar. Hann lét
dálitið bil vera á milli þeirra og lá
á bakinu og horfði á flöktandi elds-
bjarmann leika um loftsbitana. Úti
fyrir öskraði óveðrið án afláts.
Lengi lágu þau hreyfingarlaus.
Síðan hreyfði hún sig ofurlítið og
fætur hennar snertu, eins og óvilj-
andi, fætur hans. Skyndilega fann
hann hönd hennar leita handar hans.
'Hann greip hana og sneri sér að kon-
unni og sá tárin blika í augum henn-
ar; og allt í einu kastaði hún sér í
fang hans og grét, eins og hjarta
hennar mundi springa: og einnig hann
iafði nærri tárazt ,og hann vafði
hana örmum og hélt henni, eins og
hann mundi aldrei sleppa henni
framar.
Og á milli gráthviðanna stundi hún:
„Guð! Ó Guð!“
Og hann hvíslaði að henni sundur-
lausum orðum og setningabrotum;
og vegna geðshræringarinnar flutu
með skozkar áherzlur og skozk orð
og gelisk orð, sem hann ólst upp við
sem drengur fyrir norðan:
„A Mháiri a ghráidh, mo chridhe!
Tha mo chridhe lán! María min, kon-
an mín, hvers vegna yfirgafstu mig?
Og hvar hefurðu verið?“
(Þýtt eftir esperanto-þýðingu
gerðri úr skozku).
LÆKNIRINN SEGIR.
Framhald af bls. 11.
en arkitektinn á eiginlega sök á þvi,
að hreyfingar hennar geta naumast
orðiS eðlilegar. Það* er eiginlega
arkitektinum að kenna að frú Sig-
ríður leitar til læknisins . . . að
minnsta kosti er henni samsekur.
Hann á sér aðeins eina afsökun, sem
er reyndar fyrirtaksafsökun: Það
er dýrt að byggja, og plássið verður
að nýta til hins ýtrasta. Arkitektinn
átti við erfitt vandamál að etja,
þegar hann teiknaði þetta litla eld-
hús, og ekki er svo sem hægt að
ætlast til þess að einn arkitekt sé
útlærður i kúnstum læknislistarinn-
ar.
Nú kemur maður frú Sigriðar
heim og finnur ilminn úr ofninum
og hann fær vatn i munninn. Hann
stingur höfðinu inn um eldhúsdyrn-
ar:
— Púh, ég hef átt óttalega ann-
ríkt í dag . .. það verður notalegt að
fá eitthvað gott að borða og hvila
sig svo rækilega á eftir. En það er
drjúg stund þar til frú Sigríður
gefst tækifæri til þess að hvíla sig!
QSTUR
Nú er búið að draga úr þeim
fjöldamörgu lausnum, sem bárust
við gátunum. Eins og gefur að skilja
voru þau ekki öll rétt, en samt gekk
þetta mjög vel. Fyrstu verðlaun
hlaut Þóra Sigurbjörnsdóttir, 8 ára,
til. heimilis. að. Hjalteyri.. Önnur
hlaut Ástríður Ólafs, 11 ára, Tjarn-
argötu 37, og þriðju fékk svo Haf-
steinn Ágústsson, Garðarstræti 17.
Rvík. Þau eru beðin um að koma á
Vikuna og vitja verðlaunanna.
(OIGATE tannhrem EYDIR AHDRENNU
vinnur GEGN TANNSKEHHDUH
Með þvíTað bursta tennurnar með COLGATE Gardol tannkremi
myndast virk froða sem smýgur á milli tannanna þar sem burstinn
nær ekki til, og eyðist þá hverskonar lykt úr munni og bakteríur
sem valda tannskemmdum skolast burt. Andremma hverfur strax.
Burstið tennurnar reglulega með COLGATE Gardol tannkremi og
verjist tannskemmdum um leið og þér haldið tönnum yðar hvítum
og fallegum.
KAUPIB í DAG,
COLGATE TANNKREM í
HVÍTU OG RAUÐU
UMBÚÐUNUM
Colgate er mest selda tannkrem heims-
ins vegna þess að það gefur öndun yðar
friskan og þægiiegan blæ um leið og
það hreinsar tennur yðar.
VIKAN 35