Vikan - 16.11.1961, Page 2
Ávaxtapressa.
Grænmetis-skeri með
3 hnífum.
Ávaxta-þeytari.
Hakkavél.
Ríóma-ís-þeytari.
Starmix er ný tegund, og ein fullkomnasta hrærivélin sem er á
markaðnum. — STARMIX er Vestur-Þýzk framleiðsla og mest
selda hrærivél Vestur-Þýzkalands.
SÖLUUMBOÐ UTI Á LANDI:
Ólafsvík: Kaupfélagið Dagsbrún.
Hellissandi: Iíaupfélag Hellissands.
Súgandafirði: Kaupfél. Suðureyrar.
Hólmavík: Kaupfél. Steingrímsfj.
Akureyri: Verzl. Tómasar Jónss.
Eskifirði: Kaupfélagið Björk.
Fáskrúðsfirði: Kaupfél. Fáskrúðsfj.
AÐALUMBOÐ í REYKJAVÍK:
Valafell
Garðarstræti 2.
Sími 16976.
Sjdið tive fjölbreytt'Mi fylgjd STARMIX
athugið sérstaklega
rjómaísþeytarann
KNATTSPYRNUPÍUR...
Kæra Vika mín!
Við erum hérna nokkrar ste’piir,
sem höfum mjög mikinn áhuga ó
knattspyrnu og hörmum það mjög,
að hér skuli ekki vera neinn knatt-
spyrnufloklcur fyrir stelpur. Við lás-
um í einu dagblaðanna, að í Svíþjóð
mættu stelpur vera í knattspyrnu, og
hversvegna ekki að hafa svoleiðis
hérna líka?
Við þökkum þér fyrir allt skemmti-
lega lestrarefnið, sem þú flytur, en
af hverju ekki að hafa íþróttasiðu
í hverju tölublaði Vikunnar? Til
dæmis birta inyndir af beztu knatt-
spyrnumönnunum okltar í dag. .
Þökk fyrir birtinguna,
Nokkrar áhugasamar.
ÓGREIDDUR ELSKHUGI...
í.
Kæra Vika.
Ég er ásfangin af strák, og hann
er líka ástfanginn af mér. Við för-
um nokkuð mikið út að skemmta -
okkur, eins og gerist og gengur.
Hann gengur alltaf þrifalega til fara
að óðru leyti en því, að liann er
alltaf ógreiddur. Ég er alltaf að
nauða á honum að greiða sér, þegar
við förum út að skemmta okkur,
en hann er alltaf ófáanlegur til
þess. Mér tekst bara einstöku sinn-
um að fá hann til þess, en þá er
hann í fýlu allt kvöldið, svo að ég j
skemmti mér aldrei vel. Hvað á ég
Forsíðan
Þorsteinn Jónsson, flugstjóri hjá
Flugfélagi Islands, renndi flugvél-
inni undir skýin á Sprengisandi;
hafði Tungafellsjökull og Dyngju-
fjöll á hægri hönd en víðáttur Ódáða
hrauns á vinstri. Þegar kom á móts
við Öskju, var næsturn alhvít jörð,
nema tvennt, sem skar sig ákveðið
frá.. hvítunni:. Dökkleitur. hraun-
straumurinn út um Öskjuopið og
eldstólparnir, sem hófust til himins,
rauðgulir á lit. Þorsteinn flaug vél-
inni yfir hrauninu og þegar hann
renndi framhjá eldstöðvunum þar
sem hraunvilpan þeyttist upp í Ioft-
ið, smelltum við af út um gluggann.
Síðan varð hann að fara upp úr
skiýjunum og komst ekki vel að
eldinum eftir það, því í sama mund
þyngdi að. Þetta var á öðrum degi
gossins og samkvæmt fregnum dag-
blaðanna þá, er eldstólpinn á mynd-
inni um 300 metra hár. Eldstólparnir
voru raunar fimm talsins, en mynd-
in er tekin á því augnabliki, sem þeir
bera allir saman í einn.
2 VIKAN