Vikan


Vikan - 16.11.1961, Blaðsíða 3

Vikan - 16.11.1961, Blaðsíða 3
nú a Sgera, Vika min? Hann er eins og fuglahræða ógreiddur, þó að hann gangi anars vel til fara. Þakka þér svo allt liðið og bið að heilsa Stínu og Stjána. Didda. P. s. Hvernig er skriftin? Strákurinn heldur bersýnilega, að hann sé „sjarmerandi" svona úfinn. En það er ótækt að láta hann vera í fýlu, ef einhverjum tekst að ginna hann til að greiða sér. Sýndu honum einhvern tíma hvernig Þ Ú lítur út ógreidd — það ætti að koma fyrir hann vit- inu. En ef honum er alveg sama um það, kann ég fá ráð við þessu mikla vandamáli ... — Skriftin er nokkuð áferðarfalleg. Þó eru upphafsstafirnir í nokkru ósam- ræmi við heildina, og getur þú hæglega bætt úr því. ÁST OG EKKI ÁST — -NIRÓTÍN OG EKKI NIKÓTÍN ... Kæra Vika. Ég er alveg í öngum mínum vegna þess að það er stelpa, sem er gasa- lega hrifin af mér, en ég er ekkert hrifinn af henni, vegna þess að hún er byrjuð að reykja. En til dæmis á böllum dönsum við oft saman, vegna þess að hún og aðrir segja mér að dansa við hana. Gefðu mér .nú einhver góð ráð. Einn frá Húsavík. P. s. Hvernig er skriftin? Gefa þér ráð við hverju? — Þú þarft ekkert að vera montinn af skriftinni, því síður stafsetning- unni. HVERT HAFA VERÐLAUNIN FARIÐ? 'Kæra Vika. Hvernig er eiginlega með þessa verðlaunaveitingu hjá Ungfrú Ynd- isfrið? Það er alltaf lofað verð- launum í hverju blaði og 1 hverju blaði er birt nafn þeirrar, sem hlaut verðlaunin síðast, þegar dregið var. En er það svo búið? Eru verðlaunin aldrei afhent? Kannski til þeirra, sem geta komið sjálfar á skrifstof- una að sækja þau. En hinar, sem eru úti á landi, verða þær útundan? í Vilcunni 31. ágúst s.l. er sagt frá því, að ég hafi hlotið verðlaunin síðast, þegar dregið var. Viku sið- ar hringdi ég í ritstjórðnn sjálfan mg spurði, hvernig það væri með verðlaunin, hvort þau væru ekki send til þeirra, sem væru úti á landi, og sagði hann svo vera, þeir yrðu að gera það. Hann lofaði ákveðið að senda verðlaunin, en bað mig að hringja aftur, ef ég fengi þau ekki innan skamms. Nú, ég hringdi enn, viku siðar. Þá tók stúlka við skilaboðum til ritstjór- ans. En nú situr við það sama ... Ég veit ekki til hvers verið er að lofa þessum verðlaunum, þegar ekki ær hugsað um að koma þeim til skila. Þú segir sjálf, Vika góð, í blaðinu 7. sept., að það sé ósvifni og lítil blaðamennskukænska, ef ekki sé staðið í skilum. En stendur Vikan í skilum með verðlaunaaf- hendingu hjá þessari Ungfrú Yndis- fríð? Ein á Akranesi. Hér hafa greinilega orðið ein- hver mistök á, getur ekki verið, að heimilisfangið hafi brenglazt? Okkur dugir ekki „Ein á Akra- nesi“. BRÉFASKÓLI ... Kæra Vika. Komdu blessuð og þakka þér kærlega fyrir allt gamalt og gott. Ég byrjaði að kaupa Vikuna í vor, þegar skólinn hætti og ætla alltaf að gera það. Nú langar mig til að spyrja þig, hvert ég á að skrifa til að komast 1 bréfaskóla SÍS. Með fyrirfram þakklæti og beztu kveðju, Ólöf Sveinsdóttir. Skrifaðu einfaldlega Bréfaskóla SÍS, sem er til húsa í Sambands- húsinu við Sölvhólsgötu. Póstinum hafa boriz mörg bréf út af Keflavíkurgreinunum, sem birzt hafa í blaðinu. Yfirleitt eru þetta nöldurbréf og lesendur hvergi ánægðir, ýmist skamma þeir okk- ur fyrir að taka málstað Bandaríkj- anna eða þá fyrir að birta um þá alls kyns níð, svo að enginn virðist vera ánægður með þessar greinar (a. m. k. hafa þeir ánægðu ekki gefið sér tima til að skrifa). Svo að við stöndum uppi ráðalausir og höfum ekki hugmynd um, hvernig við eigum að bæta ráð okkar. Það er svo erfitt að þjóna tveimur herr- um samtimis ... PÖDDUR .. - Vika mín. Af því þú leysir úr öllum spurn- ingum, sem þú ert beðin um að ráða úr, ætla ég að biðja þig að hjálpa mér, Ég er afar hrædd við allar pöddur og orma, en svoleiðis er nú ástatt á mínu heimili, að á kvöldin er svo krökt af einhverjum dökkum pöddum um allt húsið, að ég er i vandraeðum með, hvernig ég á að losna við þær, Þær eru svo litlar, að þær eru eins og smákorn. Þær fljúga um allt, skriða og sækja mik- ið i allt, sent hvitt er, en eru svo fljótar, að það er ekki nokkur leið að handsanja þær. Þegar ég er hátt- uð, eru þær í hópum á sængurver- inu mínu og fötunum, sem ég sef í, Ef ég er roeð blað að lesa, eru þær óðar konjnar þar, en fljúga svo strax, áður en maður getur lógað nokkurri þeirra. Ég lief ekki orðið vör við þær fyrr e.n i haust. Mér býður svo við þessu, að ég get ekki sofið, Nú langar mig til að biðja þig um ráð til að lpsna við þennan ófögnuð og segja mér, hvaða pödd- ur þetta eru. Ég er búin að gera allt, sem mér dettur í hug, en ekk- ert dugar. Með beztu kveðju. Þær sjást ekki á daginn. Iíona hrædd við pöddur. Þú verður strax að tilkynna þetta borgarlækni, því að ekki dugar að láta pödduveiðar halda fyrri þér vöku öllu lengur. Þú losnar ekki við þær með því að „lóga“ einni og einni. Það þarf að fá meindýraeyði til þess að farga þessum ósóma í eitt skipti fyrir öll. Póstinum barst bréf frá „Einni, Útgefandír, VIKAN H.F. Rllatjóri: Gísli SigurBsson (áhm.) Augiýsingastjóri: Jóhannes Jörundsson. Framkvæmdaatjóri: Hilmar A. KrÍHtjánsson. 'RStstjórn og auglýsingar: Sklpholtl; 33. Stmar: 35320, 35321., 35322. Póst- hólf 149. AfgreiSslft og dreifing: BiaCadreiílng, Mlklubraut 15, stmt 36720. Dreiflngnrstjórl: Oskar K'arls- son. Verð S lausasðlu kr. 15. Áskrift- arverO er 200 kr. ArsþriOJungslega, greiöist fyrirfram. Prentun: HHmir h.f. Myndamót: Raígraf h.£ næsta blaði verður m. a.: * Heim að Hólum. Smásaga eftir nýjan smásagnahöfund, sem kallar sig Snjólf. * Lesið í myndir. Frú Valgerður Briem, teiknikennari við Handíðaskólann, les í myndir, sem börn hafa teiknað og segir, hvað þær gefa til kynna. * I aldarspegli: Jón Axel Pétursson, bankastjóri. * Skakkt númer. Sakamálasaga eftir Robert Arthur. * Hús og húsbúnaður: Stórt einbýlishús í alþjóðlegum stíl. * Sjöundi. og síðasti hluti kvikmyndasögunnar, Skæruliðar næturinnar. * Nóvembergrein Helga Sæmundssonar. Hin fjallar um íslenzka kímni. * Á bak við strompinn. Grein og svipmyndir af lífinu á bak við senuna í Þjóðleikhúsinu, meðan Strompleikurinn fer fram. * Á prófsvindl að verða skólatízka? Grein eftir dr. Matthías Jónasson. * Vikan og tæknin: Heimssýningin í Moskvu og ýrnis smáatriði um tækni. * í fullri alvöru eftir Drómiind: Gaman er að gefa smátt. sem lifir fyrir kjöt“ (hvernig nú sem það má vera) og spyr hún m. a. um, hvað „frosið dilkakjöt“ sé á dönsku (af hverju nú sem það er). Sannleikurinn er sá, að frosið diíkakjöt er ekki til á dönsku! Kindakjöt er beinlínis ekki étið i Danmörku og hugtakið því ekki til — og danski sendikennarinn við Háskóla íslands treysti sér ekki einu sinni til að ráða úr þessu mikla máli. Nú er skrýtið. Vikan, Reykjavik. --------og fyrir alla muni leggið þið áherzlu á þetta alþjóðlega út- lit eða umbrot eða hvað það nú er kallað, og verið þið nú ekki hræddir. Það hefur verið hörmulegt að sjá íslenzk blöð. Það mætti gjaran minnka sveitamennskusvipinn á þeim. Svei mér þá, mér finnst stund- um að ég sé mteð skólablöð úr Gaggó Áust.------ Lárus B. Karlsson. — Já, það er alveg satt. Ég þarf að muaa aftir að borga skattinn minn á morgun. POSTURIKJM

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.