Vikan - 16.11.1961, Blaðsíða 38
Góðnr kæliskápnr er gnlli betri'
KELVINA lOR kæliskapurinn
Verið hagsýn — Veljið Kelyinator
ER EFTIRLÆTI HAGSÝNNA HÚSMÆÐRA
Hin hamingjusama húsmóðir,
sem á KELVINATOR, getur alltaf
hrósað honum við vinkonu sína.
II Verð:
! 7,7 cubfet kr. 12.961
9,4 cubfet kr. 14.837
Kynnið yður kosti KELVINATOR
Wtj E nm Austurstræti 14
sími 11687
Blóm á heimilinu:
Pálnuir
eftir Paul V. Michelsen.
Pálmar eru hér á landi orðnir
mjög eftirsóttir aftur, og því er ekki
að neita, að fáar grænar plöntur
eru fallegri og tigulegri en þessar
myndarlegu og risavöxnu plöntur.
Þeir vilja þó með tímanum verða
of stórir fyrir venjulegar stofur, en
þá er alltaf hægt að losa sig við
þá á staði eins og hótel, sjúkrahús,
sýningarsali og ekki sizt kirkjur.
Þar sóma þeir sér afar vel og myndu
gera kirkjurnar að mun hátíðlegri.
Til eru margar tegundir pálma og
vil ég þá fyrst nefna dvergpálma,
sem nú fást í gróðrarstöðvum og
eru sérlega meðfænlegir í smærri
stofum, þar sem þeir verða tæpast
meira en 1—1% meteri á hæð. Hann
heitir Chamaedorea elegans. Það
má með sanni segja að það sé glæsi-
leiki yfir þeirri plöntu. Þetta er
fjallapálmi, vel vaxinn, blöðin mjó,
sverðlaga, ydd i endann á löngum
stilk, aðeins hrufótt og Ijósari á
neðra borði, þolir töluverðan
skugga.
Þá eru og svokallaðir blævængs-
pálmar og fjaðurpálmar. Cocos
weddeliana (kokospálmi) frá Brasi-
líu er fallegur og fíngerður fjaður-
pálmi, en frekar viðkvæmur. Verður
1—1% m hár. Phoenix roehelenia,
dvergdöðlupálmi eða Fönixpálmi
frá Austur-Indlandi, mjög fallegur,
grannvaxinn, allt að 2 m hár með
þétta hægsveigða krónu, dökkgræn
blöð, fjaðurskipt. Kentiapálmar eða
Howeapálmar frá Lord Howesey 1
Ástralíu geta orðið mjög stórir, en
eru engu að síður mjög góðir stofu-
pálmar. Blöðin eru stilklöng og upp-
rétt fjaðurskipt. Þegar þeir eru
orðnir gamlir myndast á þá stofn.
Pálmar eru eðlilega misjafnlega
sterkir, en flesta er hægt að hafa
í góðri birtu án sólar. Gott er að
úða oft yfir pálma að sumri til
og gefa góðan blómaáburð, minnst
á 10—14 daga fresti yfir vaxtar-
tímann. Það fer svo eftir vexti
pálmans hve oft þarf að skipta
mold á honum. Gamlir pálmar, sem
eru orðnir mjög rótarmiklir og
erfitt er að skaffa stærra ilát undir
er bezt að taka úr ilátinu og skera
neðan af rótunum, svo hægt sé að
endurnýja moldina undir án þess
að skipta um ilát. Nýjar rætur
myndast þá í staðinn og pálminn
verður betri á eftir. En athugið að
rætur má aldrei skera nema á þeim
tíma sem plantan er ekki í vexti.
Bezta jarðvegsblanda á pálma er
vel feit en þó gljúp, þ. e. a. s.
blönduð mosa, vikri, gamalli garð-
og grasrót og gömlum húsdýra-
áburði.
— Eruð þér nú kominn aftnr ...
Hve oft á ég að segja yður, að yið
viljum ekki kanpa rykaugu?
38 VIKAN