Vikan - 16.11.1961, Blaðsíða 43
RB!5u
deaUMulBlnW
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Kæri draumráðandi.
Ég er átján ára gömul og er mjög
hrifin af strák á sama aldri, en því
miður þá er hann alls ekkert spennt-
ur fyrir mér. Ég hef verið með
mörgum strákum en enginn af þeim
hefur haft eins mikil áhrif á mig
og þessi eini. En fyrir stuttu síðan
þá dreymdi mig að mér fannst ég
vera stödd í stórhýsi og var þar
mikið um glaum og gleði. Samt var
alltaf eins og að andlitið á mér væri
ein sorgarmynd. Þessi áður um-
ræddi strákur var staddur þarna
ásamt ungri stúlku. Þegar slcemmt-
unin stóð sem liæst fannst mér
skyndilega lcveða við þessi agalega
sprenging' svo að allt lék á reiði
skjálfi og allt varð dimmt, aðeins
á cinum stað sást Ijósskíma og
þangað reyndi ég að komast og gekk
mér hálf illa en um síðir tókst mér
samt að ná til ljóssins en þar eru
þau stödd fyrir strákurinn og stúlk-
an, sem mér fannst vera með hon-
um og snéru þau baki í mig, en í
því að ég ætla að læðast burt, snéri
hann sér við og kom til mín og
sagði: „Loksins hefi ég fundið þig
og héðan í frá mun enginn geta tek-
ið þig frá mér.“ Að svo mæltu
kyssti hann mig á kinnina og leiddi
mig í burtu án þess að yrða á hina
steipuna, þá fór skyndilega allt að
verða bjart í kring um okkur og i
þvi vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk.
Ein ástfangin.
Svar til Einnar ástfanginnar.
Að heyra sprengingu í draumi
er fyrir velgengni við það við-
fangsefni, sem maður fæst,
enda bendir endir draumsins til
þess að óskum þínum í ástamál-
unum verði fullnægt innan tíðar.
Þetta þarf þó ekki að þýða að
þú náir í hinn umrædda pilt,
sem hugur þinn girnist svo mjög,
heidur getur verið um annan að
ræða, sem mun ekki reynast þér
síðri. Greinilegt er að þið náið
ekki saman fyrr en eftir tals-
verða barninga og villu, en end-
irinn verður þér hagstæður
Til draumráðandans.
Mig dreymdi fyrir nokkru að ég
og bróðir minn og einhverjir tveir
aðrir strákar, sem ég þekkti ekki
vorum að spila „wliist“. En við spil-
uðum á tvenn spil eða eitthundrað
og fjögur og var ég með heil mikið
af hjarta og aðeins af dökkum lit.
Ég var með tvo hjartaása. Næst
dökka litnum var hjartagosi, svo
drottningin og kóngurinn og ásarn-
ir voru saman inni í miðri hjarta-
sortinni.
Við spiluðum ekki framsóknar-
vist, heldur venjulega og ég sagði
hálfa. Bróðir minn sat til hægri
handar og setti út spaðadrottningu.
Ég gái í spilin og segi hátt: „Jú,
hérna á ég gosann,“ en þegar ég
lit á borðið, þá sé ég að bróðir minn
er búinn að taka drottninguna aftur,
en setur út laufasjö. Ég var ógur-
lega ill, því nú vissi hann að ég
átti gosann, en upp frá þessu vakn-
aði ég.
Hinum mönnunum man ég ekkert
eftir og get elckert lýst. Dökki lit-
urinn lá upp í hægri höndina en
hjartaliturinn í þá vinstri.
Fyrirfram þakkir.
Laufdrottning.
Svar til Laufdrottningar.
As í draumi má túlka á fernan
hátt eftir lit. Hjartaásinn er tákn
um velgengni í ástamálum, tíg-
ulásinn velgengni í fjármálum,
spaðaásinn árangurslausa baráttu
og laufaásinn niðurlægingu.
Spaðadrottningin er tákn per-
sónu sem fellur undir merki
Meyjarinnar í dýrahringnum, þ.
e. s. athugula, jafngeðja, upp-
finningasama og gáfaða. Höfuð-
einkenni slíkrar manneskju er
tilhneiging til skilgreiningar og
gagnrýni á öllu. Spaðagosinn,
samsvarar manni sem fæddur er
undir merki Steingeitarinnar í
dýrahringnum, þ. e. a. s. kröft-
ugur, hlédrægur og gætinn. í
þessum spilum felst lausnin á
draumnum. Þau spil, sem þú
hafðir á hendi, en rnest af þeim
voru hjartaspil, benda til að eitt-
hvað mikið fari að eiga sér stað
í ástamálunum hjá ykkur. Þó
þarf það ekki að vera í sambandi
við spil bróður þíns, sem benda
til atvinnu hans og viðfangsefna
fremur en ástamálanna, þar sem
hann leggur laufasjö í borðið í
staðinn fyrir drottninguna.
Laufasjö er hins vegar tákn um
velgengni við að kenna og spilið
táknar í rauninni tileinkunn eða
ástundun. Spil hans getur því
bæði verið bending um starf
hans og ef til vill einnig að kona
hans verði sama eðlis og spaða-
drottningin, sem ég lýsti áðan
að nokkru. Spaðagosinn er hins
vegar tákn þess manns sem geng-
ur að eiga þig. Ef þú hefur hug
á að kynna þér eðli hans nánar
geturðu flett upp á lýsingu á
fólki, sem fætt er undir merki
Steingeitarinnar í hvaða stjörnu-
spekibók sem er.
heimilistækin hafa staðist
dóm reynslunnar
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
M<nr?4Hk
•‘h-1 i i*
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI
fii;
VIKAN 43