Vikan


Vikan - 17.05.1962, Side 8

Vikan - 17.05.1962, Side 8
$«ensk fegurð 1962 Sænska fegurðarsamkeppnin fer fram með svipuðu sniði og hér hjá okkur; þár er það viku- blaðið Vecko Revyn, sem birtir myndir af fegurðardísunum. Sænskar stúlkur eru orðlagðar fyrir fegurð og í landi þar sem hálf áttunda miiljón manna býr, ætti ekki að vera erfiðleiium l)undið að finna átta sæmilega frambærilegar. Það eru þær líka allar saman og meir en það. Eft- irtektarvert er það, að stúlkurn- ar eru allar 170 cm á hæð eða meira og þær stáyfa allar að ein- hverju leyti við sýningar á tízku- fatnaði og ljósmyndatökur í því sambandi. Einhver hafði orð á því, að þær væru nálega a'lar eins. Það er að vísu of sterkt að orði komizt, en skýringin er vafalaust atvinna þeirra: Þeir herrar, sem fá þær til þess að kynna fatnað, vilja hafa jiær eftir ákveðinni formúlu og með aðstoð hárlagningarmeistara og snyrtistofa tekst að steypa þær i svo ákveðið mót, að sumum finnst einum um of. Þegar þetta er skrifað, vitum við ekki, hver var kjörin „Ungfrú Svíþjóð 1962“. OQ QÍNA ORÐTN LJOgHÆRÐ Það er með frægðina eins og auðinn: Það er ekki nóg að afla hennar, það verður líka að gæta fenginnar frægðar, ef fólk vill eitthvað með hana hafa. Annars eru aðr- ir komnir „á toppinn" eins og það er kallað. Ein snjallasta auglýsingastjarna Banda- ríkjanna, Jayne Mansfield, útbjó sjávarháska, þar sem hún komst nauðulcga undan hákörlunum og komst í blöð um allan heim fyrir vikið. Gina Lollobrigida, var að vísu ekki nærri eins frumleg. En hún var allt í einu orðin ljóshærð svona til til- bveytingar og það nægir henni þar til auglýsingastjóri hennar finnur upp eitthvert snjallara bragð. Iin óneitanlega fer Ginu ljósa hárið vel. 8 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.