Vikan


Vikan - 17.05.1962, Qupperneq 16

Vikan - 17.05.1962, Qupperneq 16
Eitt af þvi fyrsta, sem Goebbels hófst handa um þegar Hitler skipaði hann úibreiíSslu- og mennta- málaráðherra, var gerbreyting á öllu innanveggja í ráðuneytisbyggingunni, hinni hundrað ára gömlu konungshöll við Wilhelmsstrasse. Hann lét rífa alil gipsskraut og flúr af veggjum og loftum, hreinsa allt og fága og flytja á brott hauga af gömlum og rykföllnum doSröntum. Starfsmenn ráSuneytisms, sem flestir voru gamlir í hettunni, vöruðu hinn nýja yfirboSara sinn viS svo óheyriiega rótækum aSgerðum og kváSu fangelsissök, en þegar hann lét sér ekki segjast, bundust þeir samtökum gegn þessu athæfi, svo hann fékk enga smiði til að vinna „skemmdarverkiS", en varð aS láta stormsveitar- menn framtvæma það aS næturþe'i. Er svo að sjá, sem það hafi farið framhjá þessum gömlu og grand- vöru starfsmcnnum, aS nýir tímar voru gengnir i gará'í Þýzkalandi; að þeir hafi ekki skilið tákn þess atburðar, sem gerðist tveim dögum áður e:n Goebbels tók við embættinu — þegar Hitler til- kynnti J)jóSinni það í útvarpsræðu, að hakakross- fáninn skyldi upptekinn sem þjóðarmerki — en þess varð ekki langt að bíða, að bæði beir og aðrir gengu þess ekki duldir. Goebbels tók strax til hendinni svo um munaSi, Hann hafði ekki setið hálfan mánuð í cmbættinu, þegar útgáfa um sextíu kommúnistablaða og sjö- tiu sósialdemókratískra i)laða og málgagna hafði verið bönnuð. Mánuði síðar komu engin blöð út i Þýzkalandi, sem ekki fylgdu nazistum. Utvarps- starfsemin var enn auSveldari viðfangs, þar sem hún var að mestu leyti í ríkisrekstri frá þvi árið 1928. Goebbels hafði og þegar gert sér ljóst, hvillka þýðingu skipulögS hagnýting útvarpsins gat haft, og um leið og hann tók við ráSherraembættinu, lagði hann starfsemi þess undir ráðuneyti sitt og stóð þá ekki á framkvæmdum. Hann skipaði örugga nasista í allar mikilvægustu stöður, stöðvum var fjölgað og styrkur þeirra aukinn, og samtimis voru framleiðendur viðtækja hvattir til að hefja fjölda- framleiðslu á ódýrum og einföldum „almennings- viðtækjum". Þetta hafSi þann árangur að tala út- varpsnotenda jókst áriS 1933—34 um cina milljón, eða upp í sex milljónir, árið 1938 voru þeir orðnir 9V2 milljón, og þegar enn ódýrari viðtæki komu á márkaðinn, mátti svo heita að útvarp væri á hverju þýzku heimili. Auk þess var hátalaralerfum komið fyrir í samkomusölum, skó’um, verksmiðjum og úti við torg, svo ekki var sönnu fjarri þótt Goebbels lýsti því yfir árið 1935, að 56 milljónir Þjóðverja hlýddu á, þegar Hitler flutti þjóðinni boðskap sinn. „Með útvarpinu höfum við gerdrepið allan upp- reisnaranda,“ fullyrti Goebbcis. Og þar sem hann var yfirleitt ekki með neitt hálfkák i aðgerðum sínum, skipulagði hann heilan herskara „hlustunar- varða“, sem skyldu fylgjast vandlega með því hvernig fólk notaði viðtæki sin, og sjá svo um að ekki færi fram hjá neinum, þegar þeir stóru komu að hljóðnemanum. ASeins mánuði eftir að Goebbels tók við. ráð- herraembættinu, hóf hann Gyðingaofsóknir af fullnm krafti; Fyrst í stað lét hann sér nægja aC AROÐURSMEISTARI HITLERS ÞRIÐJI HLUTI HREINSANIR, MORÐ, BRENNUR OG BÖNN AF FJÓRUM

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.