Vikan - 13.06.1963, Blaðsíða 2
I fullri alvöru:
vex er nýtt syntetiskt þvottaduft, er léttir störf þvottadagsins.
vex þvottaduftið leysir upp óhreinindi við lógt hitastig vatnsins
og er sérstaklcga gott i allan þvott.
ENN EIN
NÝJUN6
FRÁ SJÖFN
ES
Áfram með um-
ferðina
Tveir eru þeir aðilar, sem mest
hafa orðið fyrir gagnrýni og aðkasti
í þessu þjóðfélagi: Ríkisútvarpið og
lögreglan. Næstum daglega þarf
einhver að hella úr skálum reiði
sinnar yfir þessar stofnanir og send-
ir í tilefni af því skammarbréf til
póstsins í Vikunni eða dagblaðanna.
Þessum bréfum fer heldur fjölg-
andi hvað útvarpið áhrærir, en held-
ur færri sjá ástæðu til að skamma
lögregluna nú orðið.
Enda þótt það þyki góð latína að
veitast að lögreglunni fyrir eitt og
annað, skal það viðurkennt, að þar
hefur margt breyzt til bóta. Undan-
tekningalítið eru lögregluþjónar
mjög kurteisir og verður vafalaust
miklu meira ágengt á þann hátt en
með þjósti og valdsmannssvip. Ég
hef nokkrum sinnum orðið vitni að
því, að lögreglan hefur af einhverj-
um ástæðum stöðvað menn í umferð
og vandað um við þá. Það hefur æv-
inlega verið gert með stillingu og
kurteisi en fullri einurð þó.
Það verður ævinlega erfitt fyrir
lögregluna að gera svo öllum líki.
Sumir halda því fram, að alltof
mikil áherzla sé lögð á það eitt að
rápa meðfram stöðumælunum og
sekta menn fyrir fáeinar mínútur.
Svo líðist allskonar umferðarbrot,
sem enginn taki eftir. Hér skal ekki
dæmt um, hvort þetta er réttmætt,
en einn er sá hlutur, sem lögreglan
mætti gefa meir gaum að en gert
hefur verið. Það eru „sleðarnir“ í
umferðinni og hraði umferðarinnar
yfirleitt. Það sem þarf eru ný lög
og reglur til að mæta breyttum að-
stæðum.
Það virðist regla að kenna of hröð-
um akstri flest slys. Það er líka vel
líklegt, að eitthvað drægi úr um-
ferðarslysum, ef allir tækju sig sam-
an um að aka aldrei hraðar en á 25
km hraða. En hvort tveggja er, að
það verður aldrei gert og eins hitt,
að fáir virða lögin um hámarks-
hraða. Menn telja þau út í bláinn
og það þykir engin vansæmd að
brjóta fjarstæðukennd lög. Allur
fjöldinn ekur á 60 km hraða á greið-
ustu umferðargötunum, svo sem
Hafnarfj arðarvegi, Suðurlandsbraut
og Miklubraut. Bæði þar og annars-
staðar eru það sleðarnir í umferð-
inni, sem meiri hættu valda en hinir
sem greitt aka. Þeir valda truflun-
Framhald á bls. 51.