Vikan - 11.07.1963, Blaðsíða 7
EG
HEF OFT
HAFT
MIKIÐ AÐ
GERA
VIKAN HEIMSÆKIR
ÁGtJST ÞORVALDSSON
húsbóndinn kominn út á tröppur. Stór maður og gjörvulegur.
Ágúst Þorvaldsson, alþingismaður, bóndi, hreppsnefndaroddviti og fleira.
Neðan við túnfótinn voru nokkrir hrútgemlingar á beit. í heimatúninu gekk
ein svört kind. Lamblaus.
Þetta var fyrir kosningar.
Ágúst bauð okkur inn að ganga og til stofu. Inni var allt hreint og fágað, en
ekki íburður og ekki mikið af húsgögnum. í stofu var borðstofuborð á miðju
gólfi, dívan undir suðurglugga, borðstofuskápur við vesturvegg og annar við
norðurvegg, stóll og hornborð í suð-austur-
horni. Heimilisfólk utan Ágústs sást ekki.
Við fengum okkur sæti og viðtalið hófst.
— Ertu fæddur hér á Brúnastöðum, Ágúst?
— Nei. Ég er fæddur á Eyrarbakka og var
þar til ellefu ára aldurs. Þá fluttist ég hingað
og hef verið hér síðan. Árið 1932, þegar ég var
24 ára, tók ég svo við búskap hér.
VIKAN 28. tbl.
7