Vikan - 12.12.1963, Side 6
Fremst á myndinni cr viðskiptahverfið í Grjótaþorpi, með háum skrifstofuhúsum. Frá því Iiggur gönguhrú yfir Suðurgötu
til ráðhússins við Tjarnarendann. Síðan kemur gamli miðbæjarkjarninn, hvcrfi banka og sérvcrzlana, með Austurvelli, Dóm—
kirkjunni og Alþingishúsinu. I>að hverfi cr tengt með byggð yfir Lækjargötu við vcrzlanahverfið í Bankastræti, en verzlana-
hverfið tengizt aftur menningarhverfinu með hrúm yfir Hverfisgötu. — Niður við höfnina má sjá skipaafgreiðsluna, fiskmarkað-
inn og klúbbhúsið.
Reykjavík er borg í örum vexti. Hún hefur 80
þúsund íbúa, og um síðustu áramót voru 10753 bíl-
ar skráðir í borginni. Árið 1980 er áætlað, að íbúarn-
ir verði 160 þúsund, og eftir því hlutfalli ættu bílarn-
ir að verða orðnir 21500. Þetta bendir til þess, að
þótt Reykjavík sé nú lítil borg á heimsmælikvarða,
verði hún á næstu áratugum öflug borg með fjöl-
skrúðugu lífi, og ef vel tekst til, borg með svipmót
stórborgar og höfuðborgar.
En til þess þarf að færa ýmislegt í lag og breyta
öðru. Þar á meðal þarf að blása nýju lífi um kjarna
(center) borgarinnar.
Komið hafa fram tillögur um að flytja kjarnann
frá gamla miðbænum og endurreisa hann á öðrum
stað innan borgarmarkanna. Ýmsir hafa litið á flug-
vallarsvæðið sem hugsanlega og eðlilega viðbót við
núverandi kjarna, enda verði Reykjavíkurflugvöllur
fluttur á annan og heppilegri stað. Aðrir staðir hafa
einnig verið nefndir, svo sem Kringlumýrarsvæðið
sunnan Miklubrautar og niður 1 Fossvog.
VIKAN hafði spurnir af því; að nýkomnir væru
heim frá námi í skipulagsfræðum við Tækniskól-
ann í Stuttgart, tveir ungir arkitektar, Ormar Þ.
Guðmundsson og Haraldur V. Haraldsson, sem ein-
mitt hefðu fengið að spreyta sig á því verkefni, að
gera tillögu að nýjum kjarna í Reykjavík. Þetta verk
unnu þeir ásamt þýzkum skólabróður sínum, Romin
Köbel, undir handleiðslu Rolf Gutbier, prófessors
í skipulagsfræðum. Tillaga þeirra var sýnd á sýningu,
sem Tækniháskólinn í Braunsweig efndi til með
skipulagsverkum frá öllum Tækniháskólum í Þýzka-
landi, og vakti tillagan um kjarna Reykjavíkur mikla
athygli. VIKAN gekk því á fund þeirra félaga, og
fékk leyfi til þess að birta myndir og frásögn af
skipulagsteikningu þeirra og módelinu, sem þeir
gerðu af nýjum miðbæ í Reykjavík.
Þeirra tillaga setur nefnilega fram allróttækar og
ákveðnar skoðanir um hvar og hvernig borgarkjarn-
inn skuli vera. Andstætt þeim hugmyndum, sem að
framan eru nefndar, að búa til nýjan kjarna á nú
g — VIKAN 50. thl.